Skessuhorn - 02.11.2016, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 201630
„Hver er besti
mánuður ársins?“
Spurning
vikunnar
(Spurt í Grundarfirði)
Sölvi Óskarsson:
„Júlí, þá er besta veðrið.“
Inga Gyða Bragadóttir:
„Júní. Þá get ég byrjað í golfinu
á fullu, það er gott veður og bara
bjart yfir fólki almennt.“
Ásgeir Ragnarsson:
„Ágúst. Ég á afmæli í ágúst og
þykir hann skemmtilegur mán-
uður. Sumrið að baki og farið að
hausta, mér líður vel á haustin.“
Ragnheiður Benidiktsdóttir:
„Maí er bestur, þá er komið vor
og allt sumarið framundan.“
Nú er unnið að því að koma upp
skautasvelli við Grundaskóla á
Akranesi. Það er skólinn sem stend-
ur fyrir verkefninu en að sögn Sig-
urðar Arnar Sigurðssonar skóla-
stjóra er nú verið að útbúa svæði
sem nýtt verður undir skautasvell
þegar viðrar fyrir slíkt. „Skauta-
svellið er hluti af miklum breyting-
um sem við vinnum að á skólalóð-
inni okkar. Skólalóð Grundaskóla
hefur verið í bið á framkvæmda-
áætlun frá 2005 og litlar endur-
bætur farið fram á henni þrátt fyr-
ir gríðarlega fjölgun nemenda. Við
höfum unnið að margvíslegri hug-
myndavinnu með nemendum og
foreldrum um málið og nú leika um
ferskir vindar framfara og sóknar,“
segir Sigurður Arnar. Hann seg-
ir skólann lengi hafa talað fyrir því
að bærinn kæmi upp skautasvelli á
þessum stað en ekki fengið stuðn-
ing við þessa hugmynd fyrr en nú.
„Hollvinafélag Grundaskóla, sem
skipað er fyrrum nemendum skól-
ans, hafa tekið hugmyndina upp á
sína arma og ætlar að koma þessu
í framkvæmd í samstarfi við nem-
endur, foreldra og bæjaryfirvöld.
Hugmyndin kemur upphaflega upp
á málþingi nemenda en slík mál-
þing eru haldin árlega í Grunda-
skóla og eru hluti af því að reyna að
gera góðan skóla betri.“
Margvíslegar breytingar
framundan
Hollvinir Grundaskóla vinna að
því að undirbúa svæðið, í samstarfi
við framkvæmdasvið Akraneskaup-
staðar. Búið er að móta svæðið og
undirbúa jarðveginn. „Nú er ver-
ið að ganga frá niðurfalli og þegar
frostakaflinn kemur í vetur verður
vatni sprautað á svæðið og skauta-
svell mótað,“ útskýrir Sigurður
Arnar. Skautasvellið verður líkt og
áður segir staðsett á lóð skólans,
á svæði sem kallað er Krúsin. Að-
spurður um nafngiftina segir Sig-
urður Arnar að náma sem nefnd
var Krúsin hafi verið í gamla daga
á því svæði sem Grundaskóli stend-
ur á. „Þar var mikið skautasvell sem
margir muna eftir. Þetta nýja svæði
hefur verið nefnt eftir Krúsinni og
því má segja að við séum að tengja
saman nýja og gamla tíma.“ Stefnt
er á að svellið verði tilbúið þegar
fer að frysta og þegar kuldakafli er
sjáanlegur verður vatni dælt á svæð-
ið. „Vonandi tekst vel til og börn og
nemendur geta skemmt sér saman á
skólalóðinni frá morgni til kvölds,“
segir Sigurður Arnar.
„Eins og fyrr segir er skauta-
svellið bara fyrsta skrefið því marg-
víslegar breytingar eru framund-
an. Við viljum hafa skólalóð sem
er sem mest náttúruleg og forð-
ast malbikið sem ræður víða ríkj-
um. Við viljum endurhanna svæð-
ið okkar þannig að það henti öllum
árstíðum og ólíkum áhugamálum
nemenda í Grundaskóla og samfé-
laginu öllu. Skólalóð Grundaskóla
hefur alla möguleika til að verða ein
af náttúruperlum Akraneskaupstað-
ar,“ segir skólastjórinn að endingu.
grþ
Skautasvell sett upp við Grundaskóla
Krúsin verður brátt tilbúin og þegar kuldakafli er sjáanlegur verður vatn sett á
svæðið. Hér ættu börn og fullorðnir að geta skemmt sér á skautum í vetur.
Ljósm. Grundaskóli.
Klifurfélag ÍA hélt Hrekkjavök-
umót fyrir iðkendur sína í dýfliss-
unni á Vesturgötu um liðna helgi.
Mótið var tvískipt; annars veg-
ar klifruðu 1.-3. bekkingur saman
fyrr um daginn og 4.-6. bekkingar
saman síðar um daginn. Alls tóku
25 klifrarar þátt og áhorfendastúk-
an var þéttsetin. Framundan hjá ÍA
er mót fyrir klifrara í Reykjavík 20.
nóvember og í byrjun desember
verður Íslandsmeistaramót í línu-
klifri unglinga haldið í Hafnarfirði.
mm/þs
Héldu Hrekkjavökumót ÍA í klifri
Borgarbyggð réðist fyrir fáum
árum í umfangsmiklar lagfæring-
ar á tækjasalnum í Íþróttahúsinu
í Borgarnesi. Var hann stækkaður,
aðstaðan öll bætt og húsnæðið mál-
að í líflegum litum. Þar eru tæki til
þjálfunar og aðgangur að leiðsögn
íþróttafræðinga. Þegar ljósmynd-
ari Skessuhorns var á ferðinni í
síðustu viku var Íris Grönfeldt
íþróttafræðingur að leiðbeina fólki
við æfingar í hinum ýmsu tækjum.
Íris hefur verið starfandi í Borgar-
nesi síðan 1989 við þjálfun fólks.
Hún segir aðsókn í æfingaaðstöð-
una mjög góða og þar sé ys og þys
allan daginn frá því eldsnemma á
morgnana og fram á kvöld. Það er
því óhætt að segja að sveitarfélagið
Borgarbyggð standi framarlega í
hópi sveitarfélaga hér á landi hvað
snertir aðstöðu fyrir almenning til
að stunda íþróttir sér til heilsubót-
ar.
mm
Tækjasalurinn mikið notaður
Körfuknattleiksdeild Snæfells rifti
í síðustu viku samningi sínum við
bandaríska leikstjórnandann Taylor
Brown. Leikur hún því ekki meira
með liðinu í Domino‘s deild kvenna
í körfuknattleik. Hún hélt þegar
heim til Bandaríkjanna og er brott-
hvarf hennar frá liðinu af persónu-
legum ástæðum. Þetta kemur fram
á heimasíðu Snæfells. Taylor skor-
aði 24,1 stig, tók 4,8 fráköst og gaf
2,6 stoðsendingar í fimm leikjum
með Snæfelli í vetur. „Körfuknatt-
leiksdeild Snæfells vill þakka Taylor
fyrir afar góð kynni og óskar henni
alls hins besta í framtíðinni,“ segir á
heimasíðu félagsins.
Forsvarsmenn félagsins sátu
ekki auðum höndum og þegar var
hafist handa við að leita að nýjum
leikmanni til að fylla skarð Taylor.
Strax daginn eftir höfðu samningar
náðst við bandaríska leikstjórnand-
ann Aaryn Ellenberg. Þar fer gríð-
arlega snöggur leikmaður og mikill
skorari sem getur búið til færi fyr-
ir sjálfa sig. Hún er prýðileg skytta
og hikar ekki við að lyfta sér upp
fyrir utan þriggja stiga línuna. Hún
lék með Oklahoma háskólanum
í bandaríska háskólaboltanum og
var síðan á mála hjá Chicago Sky í
WNBA deildinni. Þá á hún einnig
leiki með yngri landsliðum Banda-
ríkjanna. Undanfarin tvö ár hefur
Aaryn leikið í Evrópu, fyrst í Pól-
landi en síðast í Austurríki þar sem
hún skoraði 20 stig að meðaltali í
leik og var valin leikmaður ársins í
Eurobasket.
Aaryn er komin til landsins og
verður því klár í slaginn í kvöld
þegar Snæfell tekur á móti Keflavík
í Stykkishólmi.
kgk
Voru ekki lengi að finna
nýjan leikmann
Aaryn Ellenberg verður klár í slaginn þegar Snæfell tekur á móti Keflavík í kvöld.
Taylor Brown er nú snúin heim til USA.