Skessuhorn - 14.12.2016, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016 9
„Litla Skrítla er með kíghósta. Fjög-
ur tilfelli voru greind árið 2015, eitt
árið 2014 en rúmlega 30 árin 2012
og 2013. Hún er að mér skilst eina
skráða tilfellið á árinu en þau eru
fleiri. Kíghósti er hættulegur, sér-
staklega börnum yngri en sex mán-
aða. Hún var tæplega sex vikna og en
verður átta vikna á mánudaginn,“ seg-
ir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins á Facebook, þar sem hún greinir
frá veikindum nýfæddrar dóttur sinn-
ar. Hún segir smit geta farið manna á
milli án þess að smitberi veikist sjálf-
ur og að óbólusett börn séu fleiri en
þau þyrftu að vera. „Það eru foreldrar
sem bólusetja ekki börnin sín og full-
orðnir geta fengið kíghósta án þess
að veikjast svo mikið að þeir kveiki
á því hvers kyns er.“ Þá bendir hún
á að virkni bóluefnisins sé einungis
um tíu ár en það sé á fæstra vitorði.
„Kíghósti er bráðsmitandi, svo hún
getur hafa fengið þetta með milljón
mismunandi leiðum en óheppnin er
ótrúleg. Það er hægt að telja mann-
eskjurnar sem hún hefur hitt og hvað
þá fengið að halda á henni og hún
hefur ekki farið víða þessi elska. Og
þar sem hún er, er sprittið alltaf við
höndina.“
Þórdís segir síðustu tvær vikur
hafa verið erfiðar og þá sérstaklega
að horfa upp á agnarsmátt barnið sitt
verða blátt í framan í hóstaköstum og
þurfa vanmáttug að treysta á fólk sem
veit og kann betur að hjálpa henni en
hún sjálf. Fjölskyldan lítur þó á björtu
hliðarnar og er þakklát fyrir að kíg-
hóstinn greindist fljótt, barnið hefur
ekki fengið hita, í lungun eða þurft
aðstoð við að koma sér í gegnum
köstin, fyrir utan einstaka súrefnis-
blástur í nokkrar sekúndur. „Hún er
svo vær - hún grætur ekki. Hún er
engri lík í værð sinni - jú bróður sín-
um. Brosir til okkar þegar hún vakir
og agúar og skríkir. Hún er alls ekki
vansæl, a.m.k. ekki ennþá,“ segir Þór-
dís sem segir einn dag í einu vera lyk-
ilorðin í margra vikna verkefni.
Í færslu sinni á Facebook bendir
Þórdís á að tæplega eitt af hverjum tíu
börnum séu ekki bólusett fyrir kíg-
hósta á Íslandi. „Foreldrar sem ekki
bólusetja börnin mega skammast sín
og lesa sér til - leyfi ég mér að skrifa
sem mamma, ekki sem þingmaður.
Ef þeir foreldrar vildu líta við í ein-
angrunarherbergi Kristínar Fjólu og
fylgjast með henni í hóstaköstum, þar
sem lífsmörk falla, hún blánar, hóstar
sárum hósta og súrefnismettun fellur
væru þeir meira en velkomnir. For-
eldrar sem höfðu ekki val fyrir mörg-
um áratugum myndu örugglega taka
undir með mér. Nýfæddu börnin sem
og börn og fullorðnir sem ekki geta
fengið bólusetningu treysta á að við
hin séum bólusett, hjarðónæmið virk-
ar bara ef nógu hátt hlutfall er bólu-
sett.“ Hún segir ótrúlegt að fylgjast
með henni, að barnið sé hraust að
öðru leyti, drekki móðurmjólkina
með hjálp sondu, sprikli og sé kát.
„En hún er þreytt. Hún er komin af
vökudeild þar sem hún þurfti að vera
á gjörgæslu í viku. Nú erum við aftur
komin á almenna barnadeild og fáum
kannski að fara heim fyrir jólin - það
kemur í ljós. Tíminn og hún vinna
þetta saman og við fylgjumst bara
með og dáumst að sterkri lítilli konu
sem kemur öllum á óvart. Þessi stelpa
verður eitthvað.“
grþ
Nýfædd dóttir þingmanns greind með kíghósta
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norðvestur-
kjördæmi.
„Litla Skrítla er með kíghósta,“ segir
Þórdís Kolbrún í færslu sinni á Facebook.
Freisting vikunnar
Flestir Íslendingar eru aldir upp
við að bornar séu á borð ýmis-
konar jólasmákökur á aðvent-
unni. Vanilluhringir, piparkök-
ur, gyðingakökur, mömmukök-
ur og svona mætti lengi telja.
Sumir baka alltaf sömu tegund-
irnar og breyta engu, á meðan
aðrir eru tilbúnir að prófa eitt-
hvað nýtt. Sumarið 1965 eignað-
ist kona nokkur M&M sælgæt-
ispoka og rakst þar á uppskrift
af smákökum. Hún klippti upp-
skriftina út og geymdi. Á aðvent-
unni dró hún upp úr skúffunni
litla sælgætisbréfið og ákvað að
baka smákökurnar. Þær þóttu
það góðar að rúmri hálfri öld
síðar bakar hún enn margfalda
uppskrift fyrir hver jól. Börn
konunnar gera það líka og leiða
má líkum að því að barnabörnin
muni baka þessa smákökutegund
í framtíðinni, enda eru kökurn-
ar sérlega bragðgóðar og mjúkar.
Athugið að til að ná fram rétta
bragðinu þarf að nota M&M úr
brúnum poka.
Smákökur með M&M sælgæti
100 gr smjörlíki
½ bolli púðursykur
¼ bolli sykur
1 tsk. vanilludropar
1 egg
1 bolli + 2 msk. hveiti
½ tsk. matarsódi
½ tsk. salt
1 bolli M&M úr brúnum poka.
Aðferð:
Þeytið saman sykur og smjörlíki
þar til verður létt og ljóst. Bætið
því næst egginu og vanilludrop-
unum út í og vinnið vel sam-
an. Setjið þurrefni saman við og
bætið M&M kúlum að síðustu út
í. Setjið bökunarpappír á bök-
unarplötu og mótið litlar kúlur.
Passið að hafa kúlurnar ekki þétt
á plötunni, þar sem þær fletjast
mikið út við bakstur. Bakið við
170 - 180 gráður í nokkrar mín-
útur, 5-10 mínútur eftir gæðum
ofnsins.
M&M smákökur
!"#$%&'#()*+,,-(./'(
!"#$0$1$(0$23456'0(7(08$#962*
Jólatónleikar
!$'5':8(;"'
<=>?@ABCD=;EFDCDC((
GHCFIC(<CDAJ(GECKELLMJ((
MK(ND@E(GECKELLMJ
OP*(N;L;!G;C((
C;QF<M=RLFECF>D((
F=(S,T,,
!"#$%&'(#)*+$%(#),(#'-.'/#)0+1'234%$'(#'-&5)6(7&#)8.79.:;$$3:5)
<&#&)!(=&)3*)>?:()@-A#*B(:$C
K&U#6(V:'(W651XYU$(8Z91&"/$([5(XZ1$08&29"956(\&"98(](WX$'8$08$#*