Skessuhorn - 11.01.2017, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 20172
Eins og greint er frá í Skessuhorni vik-
unnar hefur Vesturland verið valið einn af
17 áhugaverðustu áfangöðum heims af
CNN-Travel. Áfram ættu því að vera tæki-
færi í ferðamennsku á komandi árum og
þörf á frekari uppbyggingu. Þeim sem
hafa áhuga á að starfa í ferðaþjónustu
og bera góða hugmynd undir belti er t.d.
bent á að umsóknarfrestur í viðskipta-
hraðalinn StartupTourism rennur út 16.
janúar nsætkomandi.
Á morgun, fimmtudag, er útlit fyrir norð-
læga átt, víða 5-10 m/s en 10-18 m/s aust-
ast á landinu. Dálítil él norðanlands en
annars bjartviðri. Frost, yfirleitt á bilinu 5
til 15 stig. Hæg breytileg átt á föstudag, en
norðvestan 5-13 m/s á Austurlandi. Víða
léttskýjað og talsvert frost. Él við norður-
og norðausturströnd landsins. Á laugar-
dag spáir suðlægri átt og stöku éljum. Fer
að snjóa á Suðvestur- og Vesturlandi síð-
degis en slydda og rigning um kvöldið
og víða hlánar. Áfram talasvert frost í öðr-
um landshlutum. Suðaustanátt og súld
eða dálítil rigning á Suður- og Vestur-
landi á sunnudag, en léttskýjað á norð-
austan til. Hlýnar talsvert en gengur síðan
á með suðvestanátt og éljum á mánudag-
inn kemur.
„Hvernig fannst þér áramótaskaupið?“
var spurning síðustu viku á vef Skessu-
horns. Flestir þeirra sem tóku afstöðu voru
ánægðir með skaupið, en 33% sögðu
það hafa verið „mjög gott“ og 32% töldu
það „gott“. „Hvorki gott né slæmt“ svör-
uðu 16%, 12% sögðu það „slæmt“ og 7%
fannst skaupið „mjög slæmt“.
Í næstu viku er spurt:
„Í hvaða stjörnumerki ert þú?“
Hrefna Berg Pétursdóttir og Margrét Ól-
sen útskrifuðust með hæstu einkunn á
stúdentsprófi þegar útskrifað var á haus-
tönn frá FVA annars vegar og FSN hins
vegar nú fyrir jólin. Báðar þakka þær
skipulagi og samviskusemi námsárang-
urinn. Rætt er við dúxana í Skessuhorni
vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Vélsleðafólkið
fannst heilt
á húfi
LANGJÖKULL: Björgunar-
sveitir Landsbjargar leituðu á
fimmtudagskvöld að pari sem
orðið hafði viðskila við félaga
sína í vélsleðaferð við sunn-
anverðan Langjökul. Fólk-
ið fannst um kvöldið. Var það
heilt á húfi en orðið kalt þegar
það fannst skammt frá Skálpa-
nesi. Var fólkinu komið í hlýj-
an björgunarsveitarbíl þar sem
heitir drykkir biðu þess, að því
er fram kemur í tilkynningu
frá Landsbjörgu. Fólkið var
í skipulagðri vélsleðaferð frá
Skálpanesi sem lagði upp frá
skála við Geldingafell og það-
an að jökulsporðinum norðan
við Skálpanes. Þar sneri hóp-
urinn við en á bakaleiðinni
skall á með vonskuveðri og
fólkið varð viðskila við hóp-
inn. Voru björgunarsveitir
ræstar út um kl. 17. Parið hélt
kyrru fyrir og beið aðstoð-
ar eftir að það áttaði sig á því
að það væri villt og hefði orð-
ið viðskila við ferðafélaga sína.
Alls tóku um 180 björgunar-
sveitarmenn þátt í leitinni frá
björgunarsveitum í Borgar-
firði, Suðurlandi, höfuðborg-
arsvæðinu og Reykjanesi. -kgk
Ú
T
S
A
L
A
40%
afsláttur
af öllum
útsöluvörum
Fisktækniskóli Íslands er með nám-
skeið í Samkomuhúsi Grundar-
fjarðar þessa dagana. Námskeiðið
er haldið að frumkvæði G.Run hf.
sem er með 40 starfsmenn á svæð-
inu. Námskeiðið tekur fyrir helstu
þætti fiskvinnslu allt frá örverum
upp í frágang og útflutning. Run-
ólfur Guðmundsson framleiðslu-
stjóri fyrirtækisins sagði að starfs-
menn fyrirtækisins sýni þessu mik-
inn áhuga og taki vel eftir. „Við
erum með fjörutíu starfsmenn
hérna og fjóra túlka fyrir þá,“ sagði
Runni í stuttu spjalli. „Við sögð-
um engum upp á meðan verkfall-
ið er í gangi og vildum auka þekk-
ingu starfsmanna okkar með þess-
um hætti,“ bætti hann við. tfk
Fiskvinnslufólk á námskeiði meðan
verkfall sjómanna varir
Samkvæmt upplýsingum frá HB
Granda, var afli skipa félagsins
141.867 tonn árið 2016 og var afla-
verðmætið tæpir 14 milljarðar króna.
Þetta er samdráttur í afla upp á rúm
19% milli ára en aflaverðmætið á
sama tíma dróst saman um 16%. Í
tölum um afla og aflaverðmæti skipa
félagsins má lesa að uppsjávarskip-
in tvö, Venus NS og Víkingur AK,
voru með samtals tæplega 95.600
tonna afla í fyrra að verðmæti rúm-
lega 3,7 milljarða króna. Þetta er
verulegur samdráttur frá árinu 2015
en þá nam afli þriggja uppsjávar-
skipa félagsins tæplega 128 þúsund
tonnum og aflaverðmætið var tæpir
4,6 milljarðar króna. Þetta samsvar-
ar 25% aflasamdrætti og 19% minni
verðmætum en á árinu 2015. Í þessu
sambandi er vert að hafa í huga að
verulega dró úr loðnuafla milli ára
eða alls um 41 þúsund tonn.
Frystitogarar HB Granda, sem
eru þrír talsins, voru með samtals
tæplega 21 þúsund tonna afla í fyrra
og aflaverðmæti þeirra var tæpir 5,9
milljarðar króna. Aflasamdrátturinn
var ekki nema rúm 2,5% en aflaverð-
mætið í íslenskum krónum lækk-
aði hins vegar um rúm 15% milli
ára. Ástæðuna má fyrst og fremst
rekja til styrkingar krónunnar gagn-
vart gjaldmiðlum í helstu viðskipta-
löndum. Afli ísfisktogaranna fjög-
urra dróst saman um rúm 4% milli
ára. Hann var tæplega 25.300 tonn
að verðmæti rúmlega 4,4 milljarða
króna. Það er rúmlega 14% sam-
dráttur milli ára. Ef litið er á tog-
araflotann í heild var aflinn tæplega
46.300 tonn að verðmæti tæplega
10,3 milljarða króna. Aflasamdrátt-
urinn milli ára er um 3,5% og verð-
mæti togaraaflans dróst á sama tíma
saman um 15%.
mm
Afli og aflaverðmæti skipa
HB Granda dróst saman milli ára
Venus NS og Víkingur AK í höfn í Reykjavík. Ljósm. HB Grandi: Kristján Maack.
Forsvarsmenn Akraneskaupstaðar
hafa lýst sig jákvæða gagnvart því að
taka á móti yfir 400 skátum í sumar
í tengslum við heimsmót skáta á Ís-
landi. Í gærmorgun mætti Jón Ingvar
Bragason, framkvæmdastjóri móts-
ins, ásamt Daníel Mássyni verkefn-
isstjóra til viðræðna við bæjaryfir-
völd. Áætlað er að skátarnir dvelji á
Akranesi frá 26. til 29. júlí og slái upp
tjaldbúðum. Þeir munu meðan á dvöl
þeirra stendur bjóða sveitarfélögum
sem þeir gista hjá upp á sjálboðaliða-
starf. Að sögn Regínu Ásvaldsdótt-
ur bæjarstjóra felst kostnaður sveit-
arfélagsins í salernisaðstöðu, ókeyp-
is aðgangi að sundlaugum og söfnum
og einni léttri máltíð fyrir hópinn.
„Það verða ellefu staðir og sveitarfé-
lög á Íslandi sem taka munu á móti
skátum í sumar en Akranes verður
eina sveitarfélagið hér á Vesturlandi.
Af öðrum stöðum má nefna sveitar-
félögin Árborg, Hveragerði, Akur-
eyri og Reykjavík,“ segir Regína.
Gert er ráð fyrir að um 6.000
manns sæki þetta alheims skátamót-
mót hér á landi, langflestir koma
erlendis frá og eru frá um hundrað
þjóðlöndum. Af heildarfjöldanum
verða 5.000 þátttakendur á aldrinum
18 til 25 ára og þúsund verða sjálf-
boðaliðar 26 ára og eldri sem munu
aðstoða við framkvæmd mótsins. Til
að setja mótið í samhengi við annað
er stærð þess tvöföld á við Vetraról-
ympíuleikana. mm
Von á 400 skátum á Skagann í sumar
Jón Ingvar og Daníel frá skátunum ásamt Regínu bæjarstjóra.
RARIK hefur lokað fyrir rafmagns-
sölu til fyrirtækisins GMR á Grund-
artanga vegna vangoldinna rafmagns-
reikninga. Vísir greindi frá á mánu-
daginn. GMR starfar sem kunnugt er
á sviði málmendurvinnslu og starfs-
menn eru um 20 talsins. Óvissa ríkir
um áframhaldandi rekstur fyrirtækis-
ins, sem hefur verið strembinn alveg
frá byrjun. Á Vísi er haft eftir Daða
Jóhannessyni að bakslag hafi komið
í reksturinn fyrir tveimur árum þeg-
ar heimsmarkaðsverð á stáli lækk-
aði verulega. Fyrirtækið hefur síðan
ítrekað komist í fréttirnar vegna at-
hugasemda til dæmis Heilbrigðis-
nefndar Vesturlands og Umhverfis-
stofnunar vegna mengunar af rekstr-
inum og að ekki hafi verið farið eftir
ákvæðum starfsleyfis. Þurfti GMR að
sæta dagsektum vegna þessa á síðasta
ári, eins og greint var frá í Skessu-
horni á sínum tíma. kgk
Lokað fyrir rafmagn til GMR
Frá Grundartanga. Húsnæði GMR er næst í mynd, svart að lit. Ljósm. úr safni.