Skessuhorn - 11.01.2017, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2017 13
Heyrðu umskiptin -fáðu heyrnartæki
til reynslu
heyrnartækja. Fagleg heyrnarþjónusta.
Heyrnarþjónustan Heyrn • Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur • s:534-9600 • www.heyrn.is •
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Föstudaginn 13. janúar kl. 20:00
verður frumsýnt á Sögulofti
Landnámssetursins í Borgarnesi
leikverkið Svarti galdur. Í kynn-
ingu segir: „Svarti galdur á Ís-
landi er einleikur Geirs Konráðs
Theodórssonar, sem vefur saman
þremur þekktum þjóðsögum sem
ömmur hafa notað í gegnum ald-
irnar til að hræða börn fyrir svefn-
inn.“ Þann-
ig má segja
að það sé afar
v i ð e i g a n d i
að frumsýna
verkið þeg-
ar þrettánda
dag mánaðar-
ins ber upp á
föstudag. „Á
hryllingslega
glettinn máta
er sagan af
svarta galdri
sögð, hvernig
hann berst til
landsins með
S æ m u n d i
fróða á baki
Kölska í sels-
líki árið 1100
og hvern-
ig galdurinn
hefur áhrif
á Ísland og
íbúa þess, allt
þar til að fjöl-
kunnugur út-
lagi úr Surtshelli sekkur að lokum
ofan í jökul með síðust galdraleif-
arnar árið 1750.“
Leikstjóri er Theódór Þórðar-
son, faðir Geirs Konráðs, sem er
hokinn af reynslu við starf í leik-
húsum. Svarti Galdur er bölvuð
skemmtun í 90 mínútur.
mm
Svarti galdur frumsýndur
í Landnámssetrinu
Forsala á Þorrablót Skagamanna
hófst í Íslandsbanka síðastliðinn
föstudag. Gekk salan svo vel að
uppselt var fyrir hádegi. Það var
því létt yfir félögum í Club71, sem
skipuleggur samkomuna, þegar
blaðamaður Skessuhorns hitti hóp-
inn að máli um morguninn. „Við
getum ekki annað en verið rosa-
lega ánægð með viðtökurnar. Það
er ánægjulegt að upplifa hvað bæj-
arbúar taka vel í þessa samkomu og
hún er nú orðinn fastur punktur í
tilverunni hjá þeim. Það er t.d. al-
gengt að vinahópar og vinnustað-
ir taki sig saman og kaupi miða,“
sagði Eydís Líndal Finnbogadóttir.
Þetta er í áttunda skipti sem félagið
stendur fyrir Þorrablóti Skaga-
manna og hefur verið uppselt síð-
ustu fimm árin. Blótið fer fram í
Íþróttahúsinu við Vesturgötu og
verða veislugestir um 600. Veislu-
stjórar verða Sveppi og Steindi og
Gísli S Einarsson mun létta lífið
með harmonikkuleik, en dulúð rík-
ir um flest skemmtiatriða. Íþrótta-
félög og Björgunarfélag Akraness
munu útvega starfsmenn á blótið
og líkt og síðustu ár skiptist ágóð-
inn af blótinu á milli þeirra í hlut-
falli við vinnuframlag. Club-71 fé-
lagar gefa alla vinnu við skipulagn-
ingu og undirbúning og kaupa
félagsmenn miða fyrir sig, rétt eins
og aðrir gestir.
En Club-71 stendur í stórræð-
um á fleiri sviðum. Félagið hefur
nú fest kaup á 700 nýjum stólum og
100 borðum til að nota á samkom-
unni. „Það hefur verið óttalegt bras
að öngla saman nógum húsgögnum
til að fylla íþróttasalinn. Í fyrra fór-
um við alla leið upp í Skátaskálann í
Skorradal til að fá nóg af stólum og
ákváðum því að fjárfesta í þessum
húsgögnum nú og búa betur fyrir
framtíðina,“ segir Bryndís Böðvars-
dóttir. Hannes Birgisson bætir því
við að félagið ætli ekki að eiga þessi
húsgögn lengi, heldur mun ÍA taka
við þeim og leigja síðan út til þeirra
sem þurfa húsgögn til leigu fyrir
ýmsar samkomur. Það er GS Imp-
ort sem flytur stólana inn.
mm
Seldist upp á fyrsta degi
á Þorrablót Skagamanna
Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir, Hannes Birgisson, Eydís Líndal Finnbogadóttir
og Bryndís Böðvarsdóttir eru félagar í Club-71 og voru að vonum kát þegar ljóst
var að uppselt yrði á blótið.
Viltu vaxa með okkur?
Systurfyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi og 3X Technology ehf. á Ísafirði
framleiða og selja sérsniðnar hátæknilausnir fyrir matvælaiðnað á alþjóðamarkaði og er
viðskiptavini þeirra að finna víðsvegar um heiminn. Tæknistig fyrirtækjanna er hátt en þar
vinna samtals um 170 manns í þremur starfsstöðvum sem eru um 10.000m2 að stærð. Félögin
hafa vaxið umtalsvert síðustu misseri en frumkvöðla- og nýsköpunarandinn hefur viðhaldist
allt frá fyrsta degi. Áhersla er enn sem fyrr lögð á að bjóða gæðavörur og ryðja braut nýrrar
tækni sem færir viðskiptavinum og umhverfinu verulegan ávinning.
Skaginn 3X óskar eftir forritara á tæknideild
• Þarf að hafa menntun á rafmagnssviði
• Reynsla af forritun PLC véla nauðsynleg
• Góð kunnátta í lestri rafmagnsteikninga nauðsynleg
• Reynsla af rafhönnun æskileg
• Sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt lipurð í teymisvinnu mikill kostur
• Starfið krefst mikils metnaðar og agaðra vinnubragða
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti nauðsynlegt
Nánari upplýsingar gefur Gísli G. Pétursson tæknistjóri rafmagnsdeildar í síma 867 6382.
Umsóknir skulu berast á netfangið gisli@skaginn3x.com fyrir 18. janúar.
skaginn3x.is
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is