Skessuhorn - 11.01.2017, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 201720
Margrét Olsen var með hæstu með-
aleinkunn stúdenta sem útskrifuð-
ust frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga á
haustönn, en útskrifað var frá skól-
anum skömmu fyrir jól. Margrét
var í fríi með fjölskyldunni í Flór-
ída þegar Skessuhorn hafði sam-
band við hana. „Við fórum rétt fyrir
áramót og komum heim 11. janúar
[í dag]. Við erum bara búin að liggja
hérna í sólbaði og njóta þess að vera
ekki í snjó, vindi og hálku,“ segir
Margrét. Hún gat því ekki flett upp
stúdentsprófinu sínu, en minnti að
hún hefði fengið 8,84 í meðalein-
kunn.
Margrét er fædd árið 1997 og hóf
nám við FSN haustið 2013. Hún
tók hlé á frá skólanum eftir eitt ár
og lauk því fjölbrautaskólanáminu
á aðeins tveimur og hálfu ári, eða
fimm önnum. „Ég byrjaði á að taka
eitt ár í FSN, fór síðan sem skipti-
nemi til Spánar í eitt ár og kláraði
síðan á einu og hálfu ári eftir að
ég kom heim,“ segir hún og bæt-
ir því við að skiptinámið hafi ver-
ið skemmtileg lífsreynsla. „Það var
rosalega gaman þó það hafi verið
krefjandi. Fyrst um sinn var erfitt
að vera manneskjan sem sker sig úr
fjöldanum, af því enginn þekkti mig
og ég þekkti engan, ég talaði ekki
tungumálið og vissi ekki hvað fólk
var að segja. En þegar leið á dvölina
þá fór maður að komast inn í hóp-
inn og þá varð allt einfaldara, ég var
búin að ná tökum á tungumálinu og
eignast vini,“ segir hún.
Margrét útskrifaðist af náttúru-
og raunvísindabraut FSN og að-
spurð segir hún að eftirlætis fögin
sín hafi verið eðlisfræði, stærðfræði
og efnafræði. „Þetta voru uppáhalds
fögin mín og ég er langsterkust í
þeim, sérstaklega efnafræði. Bæði
var ég sterkust í henni og fannst
hún skemmtilegust,“ segir hún.
„Mér finnst gaman að leysa vanda-
mál eftir ákveðinni formúlu þar sem
er bara eitt rökrétt svar mögulegt.
Auk þess gerði kennarinn fagið líka
rosalega skemmtilegt,“ bætir hún
við.
Snýst um skipulag
En hvernig fór hún að því að dúxa?
Lærði hún frá morgni til kvölds alla
daga? „Nei, alls ekki. Ég veit ekki
alveg af hverju ég dúxaði,“ segir
Margrét og hlær. „Ég var í 100%
vinnu með skóla allan tímann, vann
þrjá til fjóra virka daga í hverri viku
og allar helgar. En vegna vinnu
lærði ég reyndar stundum á nótt-
unni,“ segir hún. „Ég held þetta
snúist bara um skipulag, ekki síst
þegar maður vinnur með skóla. Ég
sleppti því aldrei að læra og pass-
aði mig á að skila öllum verkefn-
um. Ég lærði mikið í skólanum þeg-
ar ég átti dauðan tíma. Ef ég gerði
það ekki þá kom það bara í bakið á
mér og ég hefði þurft að sleppa því
að fara í ræktina eftir skóla eða byrja
á heimanáminu þegar ég kom heim
úr vinnunni á miðnætti,“ segir hún.
„Þannig að ég get ekki sagt að það
hafi verið markmiðið hjá mér að
dúxa, en það er greinilega allt hægt
með góðu skipulagi og samvisku-
semi.“
Margt sem heillar
Aðspurð um framtíðaráformin seg-
ir dúxinn þau vera að mestu óráðin.
„Ég er ekki alveg viss hvað ég geri,
mig langar að prófa svo margt,“ seg-
ir Margrét. „Ég er að spá í að flytja á
Akureyri með kærastanum míns og
byrja að læra líftækni við Háskólann
á Akureyri. En það er svo margt sem
heillar. Mig langar líka að fara í Há-
skóla Íslands að læra efnafræði en
langar líka til að prófa læknisfræði
eða jafnvel fara í sjúkraþjálfarann,“
segir hún. „Þannig að ég ætla bara
að byrja á einum stað og sjá hvert
það leiðir mig,“ segir Margrét Ol-
sen að lokum. kgk/ Ljósm. tfk.
Allt hægt með góðu skipulagi og samviskusemi
Margrét Olsen tekur við viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi úr
hendi Sólrúnar Guðjónsdóttur aðstoðarskólameistara á útskriftarhátíð FSN.
Margrét Olsen, dúx FSN, fyrir miðju ásamt Guðlaugu Írisi Jóhannsdóttur (t.v.) og Jórunni Sif Helgadóttur (t.h.) sem einnig hlutu viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur.
Hrefna Berg Pétursdóttir lauk
stúdentsprófi af félagsfræðabraut
Fjölbrautaskóla Vesturlands nú fyr-
ir jólin. Hún hlaut viðurkenningu
fyrir bestan árangur á stúdentsprófi
á haustönn 2016 og einnig viður-
kenningar fyrir ágætan árangur í
dönsku, þýsku, íslensku og félags-
greinum. Í samtali við Skessuhorn
segir Hrefna að lykillinn að góðum
árangri í námi sé að vera skipulagð-
ur og samviskusamur. „Þetta snýst
aðallega um að skipuleggja sig vel
og að sinna heimanáminu.“ Hrefna
lauk náminu á þremur og hálfu ári.
Hún segir styrkleika sína aðallega
liggja í tungumálum og hefur henni
þótt sérstaklega gaman að læra ís-
lensku, þýsku og dönsku. Hún
hlaut einnig viðurkenningar fyrir
góðan árangur í dönsku og íslensku
við útskrift úr grunnskóla. Hún átti
ekki von á því að dúxa á stúdents-
prófi. „Það var mjög ánægjulegt að
fá þessa viðurkenningu, þetta kom
mér skemmtilega á óvart.“
Draumurinn að
verða kennari
Hrefna hefur haft nóg að gera sam-
hliða náminu en hún hefur lært á
fiðlu við Tónlistarskólann á Akra-
nesi undanfarin þrettán ár, ásamt
því að vera meðlimur í fiðlusveit-
inni Slitnir Strengir. Nú stefn-
ir hún á að einbeita sér enn frek-
ar að tónlistinni um tíma. „Í janú-
ar er ég að fara í Sinfóníuhljóm-
sveit Tónlistarskólanna í einn mán-
uð. Þar koma nemendur úr nokkr-
um tónlistarskólum saman og æfa
tónleikadagskrá sem flutt er á tón-
leikum í Langholtskirkju í lok mán-
aðarins. Með þessu fáum við innsýn
í hvernig er að spila í svona stórri
hljómsveit.“ Hún stefnir á að leggja
mestu áhersluna á tónlistina þar til
hún byrjar í háskóla. „Ásamt tón-
listarnáminu verð ég að vinna því
mig langar einnig að ferðast áður
en nám hefst að nýju. Mig hef-
ur alltaf langað að verða kennari,
það er draumurinn. Það er mikið
um kennara í móðurættinni, hvort
þetta er ættgengt er góð spurning,“
segir hún hress að endingu.
grþ
Skemmtilegt að fá þessa viðurkenningu
Hrefna Berg Pétursdóttir hlaut viðurkenningu fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2016 með meðaleinkunnina
9,3. Hér er hún að taka við verðlaunum frá Ágústu Elínu Ingþórsdóttur skólameistara FVA.
Ljósm. Myndsmiðjan/Guðni Hannesson.
Þjóðlagasveit Tónlistarskóla Akraness heitir nú Slitnir Strengir.
Ljósm. Ómar Lárusson.