Skessuhorn - 11.01.2017, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 201724
frumgreinadeild Háskólans á Bifröst
og þar með aðsókn að Háskólanum.
Við hrunið breyttust síðan forsend-
ur ungs fólks fyrir að flytja að heim-
an til að koma á Bifröst. Háskólinn
á Bifröst lenti því í mikilli vörn og
í stað þess að yfirvöld menntamála
kæmu skólanum til aðstoðar og
styrktu hann sérstaklega til að sækja
fram var þrengt að honum og erfið
staða gerð enn verri. Það skipti engu
máli fyrir yfirvöld menntamála þótt
eignir Íbúðalánasjóðs væru að rýrna
um 200 – 300 milljónir á ári á þessu
tímabili. Nú hefur mun meiri alvara
færst í tilraunir Íbúðalánasjóðs og
skólans til að endurskipuleggja fjár-
hag íbúðafélaganna en reynt var að
bjóða um helming íbúðaeininga á
Bifröst til sölu á síðasta ári án þess
að tækist að ljúka málinu. Nú er ný
tilraun að fara af stað og verður þá
hluti af eignum skólans jafnframt
boðinn til sölu ásamt hótelrekstr-
inum sem skólinn hefur verið að
byggja upp síðustu fjögur árin. Von-
andi ganga áformin nú eftir en góð-
ur stígandi hefur verið í hótelrekstr-
inum og æskilegt væri að fá öflugt
ferðaþjónustufyrirtæki til að taka við
honum og tilheyrandi eignum til að
halda uppbyggingunni áfram og efla
staðinn.
Háskólinn á Bifröst hefur verið í
góðri sókn síðustu árin og nemend-
um hefur fjölgað á nýjan leik og voru
þeir tæplega 600 á síðasta hausti. Sú
breyting er orðin á að fjarnámið er
helsti vaxtarbroddurinn í skólanum
en yfir 80% nemenda eru nú í fjar-
námi. Þessi þróun setur enn meiri
þrýsting á byggðina á Bifröst og
rekstur íbúðafélaganna. Þeim mun
mikilvægara er að byggja upp störf
á Bifröst til hliðar við skólann og
eins hefur verið farið út í að leigja
nokkrar íbúðir til Útlendingastofn-
unar fyrir hælisleitendur sem hefur
gengið mjög vel.
Fjarnámið í Háskólanum á Bif-
röst er í fremstu röð og skólanum
er mikið í mun að halda stöðu sinni
á því sviði. Á síðustu árum hefur
einkum verið sótt fram í meistara-
námi sem nú er allt komið í fjarnám.
Meistaranám í forystu og stjórnun
var sett af stað haustið 2014 sem
hefur gengið mjög vel. Nú um ára-
mótin fór í gang nýtt meistaranám
í viðskiptalögfræði sem lofar góðu.
Næsta haust fer af stað nýtt meist-
aranám í markaðsfræði. Háskólinn
á Bifröst var fyrsti íslenski háskólinn
til að bjóða fram grunnnám í lög-
fræði í fjarnámi. Fjarnámið hefur
bætt möguleika fólks til að stunda
háskólanám. Margir vilja stunda
nám með vinnu eða hafa ekki tök
á að flytja með fjölskyldu á Bifröst
og fjarnámið gefur mikið frelsi og
sveigjanleika til að ná árangri.
Háskólinn á Bifröst hefur ekki
gefist upp á að bjóða nemendum
upp á staðnám með búsetu á Bifröst,
þótt tíðarandinn undanfarin ár hafi
ekki unnið með skólanum að þessu
leyti og að tilraunir skólans til að
halda fram kostum búsetu á Bifröst
hafi ekki skilað því sem vonast var
til. Skólinn vill vera hluti af sjálf-
bæru og góðu samfélagi í Norðurár-
dalnum og öflugur kjarni nemenda
í staðnámi á Bif-
röst er því eftir-
sóknarverður fyrir skólann. Nú á
næstunni verður farið rækilega yfir
hvernig skólinn getur hlúð að stað-
námi á Bifröst með því að að skapa
enn betra umhverfi og aðstæður til
að laða að nemendur til búsetu á
staðnum. Fólki sem býr á Bifröst
líður almennt mjög vel og það má
ekki vera neitt falið leyndarmál.
Þegar á reynir í skólanum og gera
þarf erfiðar aðgerðir til að ná utan
um reksturinn á sama tíma og mikil
óvissa er um framtíð íbúðafélaganna
á Bifröst er eðlilegt að mikið sé spáð
og spekúlerað í samfélaginu um
skólann bæði á Bifröst og í Borgar-
byggð. Því er ekki að leyna að stund-
um hefur hrikt í og tilvera skólans í
núverandi horfi verið í hættu. Skól-
inn hefur fundið mikla velvild í sinn
garð og stuðning frá forystufólki
í samfélaginu. Það hefur hjálpað
mikið við að komast í gegnum erf-
iðleikana. Það er því mikil ánægja
og léttir sem fylgir því að geta sagt
frá því að Háskólinn á Bifröst er að
stíga mun fleiri skref áfram en aft-
ur á bak. Háskólinn á Bifröst hef-
ur alltaf þurft að berjast fyrir til-
veru sinni en hann verður 100 ára
stofnun á næsta ári sem segir að ár-
angur hafi náðst í þeirri baráttu og
hún hefur líka mótað Bifrastarand-
ann. Það „skeður ekkert fyrir okkur“
segjum við á Bifröst. Við þurfum að
hafa fyrir öllu hvort sem í hlut eiga
prófgráður eða rekstur skólans.
Vilhjálmur Egilsson, rektor.
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Háskólinn á Bifröst siglir inn í nýtt
ár í þokkalegri stöðu þegar á heild-
ina er litið. Skólastarfið gengur
mjög vel. Úttekt Gæðaráðs íslenskra
háskóla á skólanum lauk í febrúar á
síðasta ári og nýtur skólinn trausts
þess. Ýmsar endurbætur voru gerð-
ar á innra starfi og skipulagi skólans
í úttektarferlinu og stendur hann nú
sem sterkari og betri skóli en áður.
Glíman við fjármálin var nokkuð
ströng á síðasta ári eins og í flest-
um menntastofnunum landsins.
Mikið mál var að ná utan um áætl-
anagerð vegna nýhafins árs og það
tókst, fyrst og fremst með innleið-
ingu á nýju launakerfi akademískra
starfsmanna og öðrum aðgerðum til
að lækka launakostnað. Í vinnu Al-
þingis við fjárlagafrumvarpið und-
ir forystu Haraldar Benediktsson-
ar, fyrsta þingmanns Norðvestur-
kjördæmisins, fékkst aukið fé til há-
skólanna og hlutdeild Háskólans á
Bifröst í þessari aukningu dugar til
að ná nauðsynlegum stöðugleika í
rekstrinum.
Annað stórt mál sem unnið hefur
verið að er endurskipulagning á fjár-
hag íbúðafélaga á Bifröst en þau eru
í „eigu“ skólans. Skuldirnar sem á
þessum félögum hvíla eru langt um-
fram það sem rekstur þeirra stend-
ur undir en Íbúðalánasjóður er að-
alkröfuhafinn. Við hefur blasið allt
frá árinu 2007 að rekstur íbúða-
félaganna væri ekki að ganga og
að endurskipulagning þeirra væri
nauðsynleg. Tvennt kom til. Þeg-
ar Keilir var settur af stað fækkaði í
Háskólinn á Bifröst: Leiðin áfram 2017
Þann 23. desember síðastliðinn
felldi Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála niður og ógilti bygg-
ingarleyfi fyrir 59 herbergja hót-
el á Borgarbraut 59. Við niðurfell-
ingu byggingarleyfis bar verktakan-
um að stöðva framkvæmdir tafar-
laust. Framkvæmdin nú er því í and-
stöðu við fyrirmæli skipulagslaga og
mannvirkjalaga, sem gera afdrátt-
arlausa kröfu til þess að mannvirki
verði ekki reist nema á grundvelli
byggingarleyfis.
Frá því að byggingarleyfið var fellt
úr gildi hefur verið byggð því sem
næst heil hæð ofan á hótelið sem er
nokkuð meira en kalla má að tryggja
bygginguna eða verja hana skemmd-
um.
Vinna við framkvæmdir við hót-
elið að Borgarbraut 59 er því brot
verktakans á landslögum. Hvorki
byggingafulltrúi bæjarins, sveitar-
stjóri eða sveitarstjórn hafa heimild
í lögum til þess að samþykkja þær
framkvæmdir sem þar fara nú fram
eða hafa farið fram frá því að bygg-
ingarleyfið var fellt úr gildi.
Með hliðsjón af því að nú hefur
sveitarstjórnarmeirihlutinn í tvígang
verið gerður afturreka með deili-
skipulag og útgefið byggingarleyfi
þá væri ekki úr vegi að meirihlutinn
skoðaði stöðu sína, verklag og vinnu-
brögð við málið og um leið yrði gerð
rækileg óháð úttekt á verkefninu, allt
frá kaupum fyrri
sveitarstjórnar á
lóðunum til dags-
ins í dag.
Ástæðurnar fyrir vanda bæjar-
stjórnar eru skortur á samráði við
íbúa og fyrirtæki á svæðinu og yfir-
gangur yfir hagmuni annarra en þess
sem úthlutað var lóðunum, án aug-
lýsingar og án útboðs.
Vandamálið mun ekki leysast með
nýju aðal- og deiliskipulagi þar sem
hagsmunir íbúa og fyrirtækja á svæð-
inu eru enn og aftur fyrir borð born-
ir.
Líklega gengju byggingarfram-
kvæmdir nú hnökralaust fyrir sig ef
forysta sveitarstjórnar hefði hlustað
á athugasemdir íbúa og fyrirtækja,
farið að lögum, viðhaft góða stjórn-
sýslu og vandaðan undirbúning við
upphaflega afgreiðslu málsins.
Væri ekki rétt fyrir sveitarstjórn
að hlusta nú eftir viðhorfum bæjar-
búa sem gerðu athugasemdir við
byggingarmagn, skipulag og skort
á aðstöðu á Borgarbraut 57 og 59,
ræða málin og lagfæra það sem bet-
ur má fara, leita sameiginlegra og
ásættanlegra lausna áður en áfram er
haldið?
Borgarnesi, 8. janúar 2017.
Guðsteinn Einarsson.
Höf. er íbúi og skattgreiðandi í
Borgarbyggð.
Allt óbreytt?
Pennagrein
Pennagrein