Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2017, Síða 26

Skessuhorn - 11.01.2017, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 201726 Hver er uppáhalds þorramaturinn þinn? Spurning vikunnar (Spurt við miðasöluna á þorrablót Skagamanna) Ármann Smári Björnsson: Þetta er allt góður matur. Jóhannes Karl Guðjónsson: Sviðakjammarnir eru í upp- áhaldi. Jófríður Guðlaugsdóttir: Lundabaggarnir. Sigrún Ríkharðsdóttir: Sviðin. Magnús D Brandsson: Súr lifrapylsa, annars er þetta allt góður matur finnst mér. Snæfell tók á móti ÍR síðastliðinn fimmtudag þegar keppni hófst að nýju í Domino‘s deild karla í körfu- knattleik eftir jólafrí. ÍR-ingar voru yfir nánast allan leikinn en leikur Snæfells var nokkuð kaflaskiptur. Náðu þeir aldrei að gera alvöru at- lögu að sigrinum og að lokum fór svo að ÍR hafði betur með 98 stig- um gegn 82. Nokkuð jafnræði var með liðun- um í upphafi leiks. Gestirnir voru þó ívið sterkari en ekkert meira en það. Um miðjan upphafsleik- hlutann fundu ÍR-ingar taktinn og náðu tólf stiga forskoti undir lok fyrsta leikhluta, 23-35. Snæfelling- ar svöruðu fyrir sig og minnkuðu muninn í fimm stig snemma í öðr- um fjórðungi en þá tóku gestirnir mikinn sprett sem skilaði þeim 18 stiga forskoti í hálfleik, 41-59. Snæfellingar komu ákveðnari til síðari hálfleiks og söxuðu jafnt og þétt á forskot ÍR-inga. Gestirnir hleyptu þeim þó aldrei nær en sex stigum og sá munur hélst að kalla óbreyttur allt til loka þriðja leik- hluta. Í lokafjórðungnum bætti ÍR við forskot sitt en Snæfell náði ekki að svara fyrir sig. Þegar lokaflaut- an gall var munurinn á liðunum 16 stig. ÍR sigraði 82-98. Andrée Fares Michelsson var at- kvæðamestur leikmanna Snæfells með 26 stig. Snjólfur Björnsson var með 19 stig, sjö fráköst og fimm stoðsendingar og reynsluboltinn Sveinn Arnar Davíðsson var með 15 stig og tíu fráköst. Snæfell situr enn stigalaust á botni deildarinnar, átta stigum á eftir Haukum og Njarðvík í sætun- um fyrir ofan. Næst mætir Snæfell einmitt síðarnefnda liðinu, Njarð- vík, á útivelli föstudaginn 13. janú- ar. kgk Tap hjá Snæfelli í fyrsta leik eftir jólafrí Reynsluboltinn Sveinn Arnar Davíðs- son gerist hér aðgangsharður við körfu ÍR-inga. Ljósm. sá. Úrslitaleikur meistaraflokks karla í Futsal fór fram í Laugardalshöll síð- astliðinn sunnudag. Þar áttust við Selfoss og Víkingur Ólafsvík. Fyr- ir leikinn átti Víkingur möguleika á því að vinna titilinn þriðja árið í röð. Svo fór þó ekki því Selfoss vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitili í Futsal og endaði leikurinn 3:2. Víkingur komst tvisvar sinnum yfir í hörku- leik þó úrslitin hafi ekki verið þeim í vil í lokin. Árangur Víkings er þó mjög góður en þeir hafa spilað til úrslita í Futsal sex sinnum á síð- ustu sjö árum, þrisvar orðið í öðru sæti og þrisvar orðið Íslandsmeist- arar. Næsta verkefni hjá strákun- um í Ólafsvík er Fótbolta.net mótið en þar eiga þeir leik við Grindvík á laugardaginn í Reykjaneshöllinni. þa Víkingur í öðru sæti á Íslandsmótinu í Futsal Christian David Covile, nýr leik- maður Snæfells, gat ekki leikið með Stykkishólmsliðinu í fyrsta leik síðari umferðar Domino‘s deildar karla í körfuknattleik síð- astliðinn fimmtudag. Ástæða þess að leikmennirnir gátu ekki leik- ið með liðum sínum er sú að Út- lendingastofnun hafði ekki afgreitt dvalarleyfi leikmannanna í tæka tíð, en dvalarleyfi þurfa þeir að hafa áður en hægt er að sækja um at- vinnuleyfi til Vinnumálastofnunar. „Okkur þykir leitt að tilkynna að Christian hefur ekki fengið dval- ar- og atvinnuleyfi í tæka tíð og mun því ekki vera með á móti ÍR í kvöld,“ var ritað á Facebook-síðu kkd. Snæfells á fimmtudag. Sömu sögu var að segja af þeim Myron Dempsey, nýjum leikmanni Njarð- víkur og Anthony Odunsi, leik- manni Stjörnunnar. „Það vildi svo óheppilega til að allir leyfafulltrú- ar Útlendingastofnunar voru fjar- verandi í dag,“ sagði Róbert Þór Guðnason, formaður kkd. Njarð- víkur í samtali við Vísi síðdegis á fimmtudaginn. Þá var aðeins hálf klukkustund í að vinnudegi lyki á Útlendingastofnun. Í sömu frétt er haft eftir Skarp- héðni Eiríkssyni, formanni kkd. Stjörnunnar, að félagið hafi sent alla pappíra til stofnunarinnar fyr- ir jól. Málið hafi strandað inni á borði Útlendingastofnunar vegna fjarvista og veikinda starfsfólks. Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, hefur svipaða sögu að segja og Skarphéðinn. „Við send- um okkar pappíra inn strax eftir jól en það var heldur enginn við þá,“ sagði Ingi Þór í samtali við Vísi. „Þetta var rosalega erfitt. Þetta er ekki eins og þetta á að vera. Nógu erfitt er að skipta um erlendan leikmann og svo bætist nú við að útskýra þetta fyrir leikmönnum og leikmanninum sjálfum sem er kominn til landsins og bíður þess eins að geta spilað með liðinu,“ segir Ingi Þór. kgk Þrír leikmenn fengu ekki leyfi í tæka tíð Christian David Covile gat ekki leikið með Snæfelli í fyrsta leik Domino‘s deildar karla á nýju ári vegna þess að Útlendingastofnun hafði ekki afgreitt dvalarleyfi leikmannsins, en það leyfi verður að hafa áður en sótt erum atvinnuleyfi. Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við markvörðinn Ingvar Þór Kale til eins leiktímabils. Mun hann því standa á milli stanganna með Skagamönnum í Pepsi deild karla í knattspyrnu á sumri komanda. Leysir Ingvar mark- vörðinn Árna Snæ Ólafsson af, en hann sleit krossband í hné í byrjun nóvember og fór í uppskurð rétt fyr- ir jól. Verður hann frá næstu mánuði vegna meiðsla og á eftir að koma í ljós hvort hann getur leikið með Skaga- mönnum næsta sumar. Því þurfti fé- lagið að finna markvörð í hans stað. „Mikil ánægja er hjá félaginu að ná samningum við hinn reynda Ingvar Þór og mun hann berjast um stöð- una við Pál Gísla Jónsson,“ segir í til- kynningu frá Knattspyrnufélagi ÍA. Ingvar kveðst sömuleiðis ánægður að hafa samvið við lið Skagamanna. „ÍA er frábær klúbbur með mikla hefð og merka sögu. Ég hafði mik- inn áhuga um leið og það var haft samband við mig og ég tel mig hafa mikið fram að færa til að hjálpa lið- inu í baráttunni næsta sumar. Síðasta sumar gekk ekki jafnvel hjá mér eins og árin þar á undan og ég er orð- inn hungraður í árangur aftur,“ segir hann. Ingvar Þór er reynslumikill mark- vörður, hefur á sínum ferli spilað 260 leiki með Víkingi, Breiðabliki og Val, þar af 140 í efstu deild. Hann hefur hampað Íslands- og bikarmeistara- titlinum með Breiðabliki og sömu- leiðis orðið bikarmeistari með Val. kgk Ingvar Þór Kale til liðs við ÍA Ingvar Þór Kale í leik með Breiðabliki. Ljósm. blikar.is. Körfuknattleikskonan og landsliðs- konan Pálína María Gunnlaugs- dóttir, sem gekk til liðs við Snæ- fell í haust, hefur óskað eftir ótíma- bundnu leyfi frá félaginu. Ástæð- an er sú að hún hefur ekki náð að samræma vinnu, einkalíf og körfu- knattleikinn eins og best yrði á kos- ið. Hefur hún því óskað eftir leyfi um óákveðinn tíma. Pálína spilaði níu leiki með Snæ- felli á fyrri hluta Domino‘s deildar kvenna og skoraði í þeim 8,2 stig, tók 5 fráköst og gaf 1,8 stoðsend- ingu að meðaltali. Hún meiddist á kálfa með landsliðinu fyrr í vetur og gat því ekki leikið síðustu þrjá leiki ársins með Snæfelli. „Það er söknuður af Pálínu en við sjáum hvað tíminn leiðir í ljós. Körfu- knattleiksdeildin óskar Pálínu góðs gengis í sínum verkefnum.“ kgk Pálína í ótímabundið leyfi frá Snæfelli Pálína María Gunnlaugsdóttir í leik með Snæfelli. Ljósm. úr safni/ sá.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.