Skessuhorn


Skessuhorn - 18.01.2017, Qupperneq 6

Skessuhorn - 18.01.2017, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 20176 Erlend kortavelta 232 milljarðar LANDIÐ: Í desember nam erlend greiðslukortavelta 14,9 milljörðum króna samanbor- ið við 9,4 milljarða í desemb- er 2015. Um er að ræða ríf- lega 58% aukningu frá sama mánuði árið áður. Allt árið 2016 greiddu erlendir ferða- menn 232 milljarða hérlendis með kortum sínum, meira en helmingi meira en árið 2015 þegar greiðslukortaveltan var 154,4 milljarðar. Nærri lætur að erlend greiðslukortavelta hafi verið fjórðungur heildar- veltu greiðslukorta hérlendis árið 2016 en öll velta greiðslu- korta á Íslandi á árinu 2016 nam 1.006 milljörðum. Af þeirri upphæð var velta inn- lendra korta 773 milljarðar og velta erlendra korta 232 millj- arðar eins og fyrr segir. -mm Geta hafið frí- stundabúskap HVANNEYRI: Sveitar- stjórn Borgarbyggðar sam- þykkti á fundi sínum á fimmtudaginn nýtt deili- skipulag fyrir frístunda- búskap á Hvanneyri. Eng- ar athugasemdir bárust þeg- ar deiliskipulag fyrir svæðið var auglýst, en frestur til at- hugasemda rann út 5. janúar. Skipulagið felur meðal ann- ars í sér skilgreiningu á lóð- um og byggingareitum fyrir húsdýrabyggingar til frístund- anota, beitarsvæði og svæði fyrir reiðvöll. -mm Taldi sig vera á tveggja akreina vegi VESTURLAND: Meðal verkefna Lögreglunnar á Vest- urlandi í liðinni viku má nefna að fimm umferðaróhöpp voru tilkynnt og reyndist um smá- vægileg meiðsli að ræða í þeim. Þó var einn sem lenti í bílveltu fluttur á sjúkrahús með höfuð- áverka en hann var ekki talinn mikið slasaður. 23 voru tekn- ir fyrir of hraðan akstur í um- dæminu og nokkrir ökumenn voru aðstoðaðir vegna ófærð- ar eða álíka vandræða og var í þeim tilfellum yfirleitt um erlenda ferðamenn að ræða. Eftirlit með ótryggðum og óskoðuðum ökutækjum hélt áfram í vikunni og voru skrán- ingarnúmer klippt af hátt í tíu ökutækjum vegna slíkra mála. Loks má geta þess að afskipti voru höfð af erlendum ferða- manni sem var full lengi á öf- ugum vegarhelmingi eftir að hafa lokið við framúrakstur. Í ljós kom, þegar laganna verð- ur ræddu við hann, að hann taldi sig vera á tveggja akreina vegi í sömu átt, en hafði þó um síðir áttað sig á að slíkur munaður finnst ekki í þessum landshluta. -mm Ný stjórn Fram- leiðnisjóðs LANDIÐ: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra hefur skipað Framleiðnisjóði land- búnaðarins stjórn til næstu fjögurra ára frá 16. janú- ar að telja. Stjórn sjóðsins er þannig skipuð: Elín Aradótt- ir formaður Hólabaki, Eirík- ur Blöndal Jaðri, Jóhannes Ríkharðsson Brúnastöðum, Guðný Helga Björnsdóttir Bessastöðum og Sveinn Rúnar Ragnarsson Akurnesi 1, bæði tilnefnd af Bændasamtökum Íslands. Varamenn: Hanna Dóra Hólm Másdóttir, Sig- ríður Jóhannesdóttir Gunn- arsstöðum, Fanney Ólöf Lár- usdóttir Kirkjubæjarklaustri, Guðfinna Harpa Árnadótt- ir Straumi og Gunnar Kr. Ei- ríksson Túnsbergi. -mm Halda dagvinnu- launum í verk- falli sjómanna LANDIÐ: Í tilefni frétta að undanförnu telur Vilhjálm- ur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, rétt að halda því til haga að félagið hefur hald- ið ráðningarsambandi við allt sitt starfsfólk. „Fiskvinnslu- fólk hjá HB Granda hefur því haldið dagvinnulaunum sínum frá því að verkfall sjómanna hófst. Hjá félaginu starfa um 400 manns við fiskvinnslu- störf í Reykjavík, á Akranesi og á Vopnafirði,“ segir í til- kynningu. -mm „Þar sem umferð um Hvalfjarðar- göng er að aukast verulega er ljóst að taka verður öryggismál gang- anna föstum tökum,“ segir í álytk- un sem bæjarráð Akraneskaup- staðar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku. Vísað er til reglu- gerðar sem byggð er á Evrópu- tilskipun þar sem segir að koma eigi fyrir neyðargöngum ef dag- leg umferð um jarðgöng fer yfir átta þúsund bíla. „Bæjarráð hvet- ur nýjan innanríkisráðherra til að taka þessi mál föstum tökum en Spölur mun skila göngunum um mitt ár 2018.“ Bæjarráð áréttaði jafnframt mikilvægi þess að hugað verði þegar að vegbótum á Vest- urlandsvegi og að breikkun vegar- ins verði flýtt. mm/ Gröf: Spölur. Umferðarmet í Hvalfjarðar- göngum í öllum mánuðum Þarna sést hvernig umferðarmet er slegið í Hvalfjarðar- göngum alla mánuði síðasta árs. Ársumferð er komin yfir 2,4 milljónir bíla um Hval- fjarðargöng. Umferðaróhapp varð í Ólafsvík síðastliðinn sunnudag. Ökumaður bifreiðar sem ekið var upp Engi- hlíð missti stjórn á henni þegar bíllinn flaut upp, en mikill krapi var á veginum. Bíllinn lenti utan veg- ar og niður háan kant. Engann sak- aði en skemmdir urðu á bílnum og þurfti aðstoð við að koma honum aftur upp á veginn. Eins og sjá má á myndinni munaði ekki miklu að bíllinn ylti. þa Ók fram af Engihlíðinni Skarfar halda sig venjulega við sjó- inn. Þessi var hins vegar kominn lengst upp í sveit, nánar tiltekið við Reykjadalsá miðja vegu milli Grímsstaða og Kópareykja. Líklega hefur fuglinn verið á höttunum eft- ir seiðum úr ánni. Fuglinn fæld- ist ekki manninn og komst Björn Húnbogi Sveinsson ljósmyndari býsna nálægt honum. mm Skarfur í sveitaferð

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.