Skessuhorn - 15.02.2017, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 7. tbl. 20. árg. 15. febrúar 2017 - kr. 750 í lausasölu
Við viljum hafa
pláss fyrir allt
Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun
bilið í bílakaupunum.
Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á
arionbanki.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
7-
02
14
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
Verkir í liðum?
www.skessuhorn.is
Minnum á fríar
smáauglýsingar á
vef Skessuhorns
ÍSLENSKA
KÍSILSTEINEFNIÐ
FRÁ GEOSILICA INNIHELDUR
HREINAN JARÐHITAKÍSIL
GeoSilica kísilvatnið
fæst í vefverslun geoSilica
www.verslun.geosilica.is og
Í samgönguráðuneytinu er nú til
skoðunar hugmynd um að hefja
gjaldtöku á vegfarendur sem allar
stofnbrautir til og frá höfuðborgar-
svæðinu; á Suðurland, Reykjanes og
Vesturland. Gjaldtaka myndi standa
straum af verulegum endurbótum á
þessum stofnleiðum. Jón Gunnars-
son samgönguráðherra opnaði fyr-
ir málið um helgina. Þá sagði hann
í samtali við fjölmiðla að starfshóp-
ur innan ráðuneytisins vinni nú að
skilgreiningi þessara hugmynda um
gjaldtöku. Um yrði að ræða Reykja-
nesbraut frá Keflavíkurflugvelli,
Vesturlandsveg allt í Borgarnes, að
Sundabraut meðtalinni, og Suður-
landsveg austur fyrir Selfoss með
nýrri Ölfusárbrú, eða allar stofn-
brautir sem tengja höfuðborgar-
svæðið við landsbyggðina.
Í fyrstu hugmyndum er gert
ráð fyrir að áfram verði innheimt
veggjald við Hvalfjarðargöng og að
ökumenn hefðu þá val um að aka
fyrir Hvalfjörð til að sleppa við að
greiða gjald. Jón Gunnarsson segir
að gjaldtaka með þessum hætti af
notendum veganna sé þekkt aðferð
erlendis og segir að flýta mætti upp-
byggingu vegakerfisins hér á landi
með þessum hætti. Ruðningsá-
hrif yrðu m.a. þau að hið opinber
gæti lagt meiri peninga í uppbygg-
ingu vegakerfisins á öðrum svæð-
um landsins. Jón hafnar því að með
gjaldtöku af þessum toga sé brot-
ið gegn jafnræði íbúa og vísar þar í
gjaldtöku síðastliðin 18 ár í Hval-
fjarðargöng. Ítrekaði ráðherrann
meðal annars í viðtali við RUV á
mánudagsmorgun að ekki væri búið
að taka neina ákvörðun um að velja
þessa leið til skjótvirkari uppbygg-
ingar samgöngukerfisins, en að orð
væru til alls fyrst. Nú fengi málið
umræðu á vettvangi fjölmiðla, hjá
sveitarstjórnum og stjórnkerfinu í
heild.
Hóflegt gjald á
reglulega notendur
Ráðherrann ítrekar að eins og er
sé einungis um hugmyndavinnu að
ræða til að opna fyrir umræðuna. Í
viðtali í morgunútvarpi sagði Jón að
það væri eðlilegt að þessar pælingar
hlytu gagnrýni. Sérstaklega af hálfu
þeirra sem eru að nota vegina reglu-
lega. Þeir telja sig búa við skarðan
hlut við gjaldtöku af þessu tagi. „En
auðvitað gengur svona hugmynd út
á það að gjaldtakan verði tiltölulega
rífleg á þá sem aka sjaldan um veg-
ina, það er að segja að ferðamanna-
straumurinn myndi borga hluta í
þessu með okkur, á meðan að þeir
sem aka reglulega þessar leiðir þyrftu
að borga mjög lágt gjald,“ sagði Jón
Gunnarsson í viðtali í morgunút-
varpi RUV. mm
Í skoðun að innheimta vegtolla til að flýta vegaframkvæmdum
Núverandi stofnvegur um Kjalarnes er einn hættulegasti vegarkafli landsins.
Ljósm. mm.
112 dagurinn var á laugardaginn. Þá buðu viðbragðsaðilar víða um Vesturland til dagskrár og opins húss í starfsstöðvum sínum. Hér er svipmynd úr Búðardal.
Ljósm. sm.