Skessuhorn


Skessuhorn - 15.02.2017, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 15.02.2017, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2017 9 OPINN KYNNINGARFUNDUR UM SEMENTS- OG DALBRAUTARREIT Opinn kynningarfundur á skipulagslýsingum fyrir Sementsreit og Dalbraut – Þjóðbraut verður haldinn þann 16. febrúar í sal Grundarskóla á Akranesi frá kl. 18:00 til 20:00. Skráning fer fram á vef Akraneskaupstaðar. SKE SS U H O R N 2 01 7 SK ES SU H O R N 2 01 7 Auglýsing um starfsleyfi Samkvæmt ákvæðum 24. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að starfsleyfi fyrir Olíudreifingu ehf. til meðhöndlunar á olíumenguðum jarðvegi innan girðingar birgðastöðvar fyrirtækisins í landi Litla-Sands í Hvalfjarðarsveit. Starfsleyfið gildir fyrir meðhöndlun allt að 300 tonnum af olíumenguðum jarðvegi í einu. Starfsleyfið gildir til 12 ára en skal endurskoða að jafnaði á fjögurra ára fresti. Starfsleyfistillagan liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar frá 16. febrúar – 16. mars n.k. Einnig er hægt að afla upplýsinga um tillöguna hjá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands s. 4312750. Skriflegar athugasemdir skal senda til skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands að Innrimel 3, 301 Akranes (netfang: heilbrigdiseftirlit@vesturland.is) fyrir 17. mars 2017. Heilbrigðisnefnd Vesturlands Deiliskipulagsbreytingar í landi Hafnar II, Hvalfjarðarsveit Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti þann 22. nóvember 2016 að auglýsa tillögu um breytingu á deiliskipulagi í landi Hafnar II. Tillagan er dagsett 5. október 2016 og felur m.a. í sér færslu á lóðum nr. 69 og 77. Tillagan er auglýst samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulags- laga nr. 123/2010. Tillagan liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar. Tillöguna má einnig sjá á heimasíðu sveitarfélagsins www.hvalfjardarsveit.is frá 15. febrúar til og með 28. mars 2017. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulags- fulltrúa í síðasta lagi 28. mars 2017 á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið skipulag@hvalfjarðarsveit.is. Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar SK ES SU H O R N 2 01 7 Það er nokkuð árviss atburður að þeir sem hittast í „hádegispottin- um“ í sundlauginni í Borgarnesi haldi upp á blautan þorra. Blótið sjálft er haldið í þessum helsta vizku- brunni bæjarins. Vizkubrunnurinn er heiti pottur númer eitt í íþrótta- miðstöðinni. Þessi hefð pottalepp- anna er orðin meira en aldarfjórð- ungs gömul og varð upphaflega til í „Litla pottinum“ í innisundlaug- inni. „Þetta þorrablót er auðvitað haldið með vitund og velvilja starfs- manna Íþróttamiðstöðvarinnar sem þurftU að þessu sinni að blása lofti í fleiri sundkúta en venjulega fyrir litlu börnin því við pottalepparnir vorum búnir að stela öllum korki til eigin nota,“ segir Björgvin Ósk- ar Bjarnason einn pottaleppa í sam- tali við Skessuhorn. Þorramatur var keyptur frá Kræsingum í Borg- arnesi, hvalreki kom úr Hvalfirði en á dagskrá voru drápur, kviðling- ar, minni karla og kvenna, máls- hættir og gamanmál. „Allt þetta var á flandri og floti í velheppnuðu þorrablóti hádegispottaleppanna,“ segir Björgvin. mm Pottaleppar héldu blót í „Viskubrunninum“ „Milljarður rís 2017“ er yfirskrift dansgjörnings sem verður í Hjálma- kletti í Borgarnesi og Frystiklefanum í Rifi á Snæfellsnesi föstudaginn 17. febrúar kl. 12-13. „Ofbeldi gegn kon- um er vandamál um allan heim. Við tökum því afstöðu gegn ofbeldinu, mætum og dönsum,“ segir í fréttatil- kynningu þar sem allir eru hvattir til að mæta. Í ár verður minning Birnu Brjáns- dóttur heiðruð. „Milljarður rís er dansbylting sem haldin er víða um heim. Með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir millj- arður karla, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. Í kjölfar hvarfs Birnu Brjánsdóttur hafa kon- ur hér á landi stigið fram og lýst þeim veruleika sem þær búa við. Þeim ótta og óöryggi sem þær finna fyrir á göt- um úti og hvernig þær axla ábyrgð á mögulegu ofbeldi með því að forð- ast augnsamband, velja ákveðnar göt- ur fram yfir aðrar, halda á lykli milli fingra sinna í annarri hendi og sím- anum í hinni með 112 á hraðvali er þær ferðast milli staða að kvöld- og næturlagi. Ofbeldi eða ótti við að verða fyrir því er hluti af daglegu lífi kvenna víða um heim. Ofbeldið á sér stað hvenær sem er dagsins, á heim- ilum, úti á götum, í almenningssam- göngum, á vinnustöðum og í kring- um skóla svo dæmi séu nefnd,“ segir í kynningu á verkefninu. UN Women vinnur að því að gera borgir öruggari fyrir konur og stúlkur víða um heim. Einföld leið til þess að draga úr ofbeldi er að lýsa upp dimmar götur. Í Nýju Delí hefur ljósastaurum verið komið í borginni, m.a. við strætó biðskýli og á almenn- ingssalernum. í Mexíkóborg hafa sér- stakir kvennastrætóar verið settir á laggirnar sem gera konum kleift að ferðast til og frá vinnu óáreittar. UN Women vinnur í samstarfi við borg- aryfirvöld víða um heim að einföld- um og ódýrum aðgerðum sem miða að því að uppræta og draga úr ofbeldi gegn konum og stúlkum á almenn- ingssvæðum. UN Women á Íslandi hvetur alla til að taka þátt í að gera borgir örugg- ari fyrir konur og stelpur með því að senda sms-ið Konur í 1900 (1000 kr.) Í ár verður dansað á Akur- eyri, Reykjavík, Ísafirði, Seyðis- firði, Reykjanesbæ, Neskaupstað, Hvammstanga, Egilsstöðum, á Höfn í Hornafirði auk Borgarness og Rifs á Snæfellsnesi. Myllumerkið fyrir vitundarvakn- inguna er #fokkofbeldi. mm Dansbylting UN Women í Borgarnesi og Rifi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.