Skessuhorn


Skessuhorn - 15.02.2017, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 15.02.2017, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2017 11 SK ES SU H O R N 2 01 7 Rekstur tjaldsvæðis í Búðardal Dalabyggð auglýsir eftir aðilum sem kunna að hafa áhuga á að taka að sér rekstur tjaldsvæðis í Búðardal. Áhugasamir hafi samband við sveitarstjóra á skrifstofu Dalabyggðar eða með tölvupósti á netfangið sveitarstjori@dalir.is. hollur kostur á 5 mín. Gríms fiskibollur SK ES SU H O R N 2 01 7 Skipulagsauglýsing Varmaland - tillaga að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 - 2022. Lýsing á breytingu á landnotkun á svæði fyrir þjónustustofnanir Þ6 á Varmalandi Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á 152. fundi þann 9. febrúar 2017, að auglýsa lýsingu á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, samkvæmt skipulagslögum 30. gr. nr. 123/2010. Tillagan er sett fram í greinargerð dags. 3. febrúar 2017. Fyrirhugað er að breyta aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 - 2022. Á Varmalandi verður skilgreint svæði fyrir verslun og þjónustu S8 á 6404 m² reit sem nær til lóðar gamla Húsmæðraskólans. Reiturinn er í aðalskipulagi hluti af svæði fyrir þjónustustofnanir Þ6, Grunnskóli Borgarfjarðar á Varmalandi. Þ6 nær til tveggja svæða, norðursvæði er 19593 m² og nær yfir grunnskólabyggingu, félagsheimili auk íbúðar- húsnæðis sem er sambyggt grunnskólabyggingu og suðursvæði sem nær til lóðar gamla Hjúsmæðraskólans. Reitur S8 er í eigu einkaaðila. Breyting verður gerð á skipulagsuppdrætti þar sem svæði fyrir verslun og þjónustu S8 verður skilgreint. Helstu ástæður breytinganna eru að innra skipulag hefur breyst á þann hátt að öll kennsla fer fram í hús- næði Grunnskóla Borgarfjarðar Varmalandi. Í kjölfarið hefur húsnæði gamla Húsmæðraskólans verið selt og er fyrirhugað að opna hótel þar. Skriflegum ábendingum vegna lýsingar á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022, ef einhverjar eru, skal komið á framfæri í bréfi eða í tölvupósti við umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar, í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi, borgarbyggd@borgarbyggd.is eigi síðar en mánudaginn 27. febrúar 2017. Lýsing liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar og er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar – www.borgarbyggd.is. Umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar, borgarbyggd@borgarbyggd.is, veitir fúslega nánari upplýsingar, sé þess óskað. SK ES SU H O R N 2 01 7 Fjölþjóðlegt málþing um varðveislu báta og skipa haldið í Tónbergi fimmtudaginn 23. febrúar Fyrirlestrar frá kl. 9:15-16, fara fram á ensku Vinnustofa frá kl. 16-18 um gildi kútters Sigurfara fyrir samfélagið, fer fram á íslensku og eru Skagamenn og nærsveitamenn hvattir til að mæta Nánari upplýsingar í viðburðadagatali á www.akranes.is Þátttaka er ókeypis en það þarf að skrá sig í síðasta lagi 20. febrúar með tölvupósti á museum@museum.is Byggðasafnið í Görðum Akranesi Snæfellsjökulshlaupið fékk góða viðurkenningu á dögunum þegar það var valið utanvegahlaup ársins af hlaup.is og lesendum vefjarins. Verðlaunin voru afhent síðastliðinn sunnudag. Þetta var í áttunda skipti sem verðlaun þessi eru afhent. Fjög- urra skóga hlaupið varð í öðru sæti og Gullspretturinn í þriðja. Í flokki götuhlaupa var Vestmannaeyja- hlaupið valið besta hlaupið, í öðru sæti Fossvogshlaupið og Stjörnu- hlaup VHE í því þriðja. Laugardaginn 1. júlí í sumar fer svo sjöunda Snæfellsjökulshlaupið fram. Það eru þau Rán og Fannar sem hljóta viðurkenninguna nú fyr- ir frumkvöðlastarf sitt og atorku, en hlaupið hefur vaxið og dafnað síð- an þau stóðu fyrir því fyrst enda er þátttaka mikil. þa Snæfellsjökulshlaupið valið utanvegahlaup ársins Rán og Fannar ásamt Kára Steini Karlssyni. Í ágúst á síðasta ári kom hingað til lands hópur vaskra Vínlandsvíkinga til að taka upp leikna heimildamynd um lokabardagann í Grettissögu úti í Drangey á Skagafirði. Fólkið í hópn- um er félagar í víkingaklúbbnum Hurstwic í Massachusetts í Bandaríkj- unum. Í ferð sinni hingað til lands fékk hópurinn aðstoð við gerð myndarinn- ar frá fólki í sambærilegum klubbum hér á landi. Nú er myndvinnslu lok- ið og hefur myndin „The Final Battle of Grettir the Strong“ verið frum- sýnd í Bandaríkjunum. Af þessu til- efni hyggjast framleiðendur mynd- arinnar frumsýna hana í Tjarnarbíói í Reykjavík þriðjudaginn 28. febrúar klukkan 20:00. Aðgangur er ókeypis, en áhugasamir verða að panta miða í tölvupósti á netfanginu: tickets@ hurstwic.com en einnig er hægt að panta miða á á sýninguna á facebook síðu klúbbsins: Premiere of “The Fi- nal Battle of Grettir the Strong”. Áður hafði þessi sami hópur kom- ið til landsins til að gera leikna heim- ildamynd um lokabardaga Gísla sögu Súrssonar vestur á fjörðum. For- sprakki hópsins heitir William R. Short og er heimasíða Hurstwic klúbbsins er: http://hurstwic.com/ þg Sýna leikna heimildamynd um lokabardaga Grettissögu Meðfylgjandi mynd er tekinn af hluta hópsins hjá Borg á Mýrum í ágúst síðast- liðnum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.