Skessuhorn - 15.02.2017, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 20176
Ráðin mann-
auðsstjóri
BORGARBYGGÐ: Ingi-
björg Guðmundsdóttir í
Hafnarfirði hefur verið ráð-
in í starf mannauðsstjóra
hjá Borgarbyggð. Fjórtán
umsóknir bárust um starf-
ið þegar það var auglýst en
einn umsækjandi dró um-
sókn sína til baka. Ingibjörg
er með diplómapróf í starfs-
mannastjórnun og meistara-
gráðu í opinberri stjórnsýslu.
Hún hefur áður starfað við
starfsþróun og mannauðs-
mál hjá Hafnarfjarðarbæ.
-mm
Þrír af fjórum
leikskólum lok-
aðir í fimm vikur
AKRANES: Á fundi í skóla-
og frístundaráði Akranes-
kaupstaðar í síðustu viku
var samþykkt að þrír leik-
skólar af fjórum verði lokað-
ir í fimm vikur í sumar en að
einn leikskóli taki að sér að
reka sumarskóla leikskólanna
í tvær af þessum fimm vik-
um. Ekki kom fram í fund-
argerð hvaða leikskóli það
verður sem tekur að sér þessa
tveggja vikna sumaropnun.
Því var jafnframt beint til
næstu fjárhagsáætlunargerð-
ar að ráðstafa peningum til
leikskólanna til að bæta or-
lofstöku starfsmanna vegna
þessa. „Lögð er áhersla á að
vanda til kynningar á fyrir-
komulaginu fyrir foreldr-
um og starfsmönnum,“ seg-
ir í fundargerð skóla- og frí-
stundasviðs. -mm
Verkfall
sjómanna
hefur haft
alvarleg áhrif
AKRANES: „Bæjarráð Akra-
ness lýsir yfir þungum áhyggj-
um af yfirstandandi sjómanna-
verkfalli og hvetur samnings-
aðila til að ná sáttum án taf-
ar,“ segir í ályktun sem bæjar-
ráð samþykkti á fundi síðast-
liðinn fimmtudag. „Verkfallið
hefur þegar haft alvarleg áhrif
á einstaklinga, heimili og fyr-
irtæki á Akranesi og á íslenskt
samfélag í heild sinni.“
-mm
Áttatíu hafa
skráð heimagist-
ingu frá
áramótun
LANDIÐ: Nú má nálgast lista
á vef sýslumanna um skráða
heimagistingu hér á landi, þ.e.
þær fasteignir og þá einstak-
linga sem fengið hafa stað-
fest hjá sýslumanni að þeim
sé heimilt að bjóða heimagist-
ingu skv. lögum þar um sem
tóku gildi 1. janúar síðastlið-
inn. Slóðin er www.heimagist-
ing.is og þar efst til hægri er
hlekkur á þessar upplýsingar.
Þessi upplýsingagjöf er í sam-
ræmi við lög og nýlega reglu-
gerð. Nú hafa um 80 einstak-
lingar fengið skráða heima-
gistingu á lögheimili sínu eða
einni annarri eign í sinni eigu
frá síðustu áramótum. Af þeim
eru þrír á Vesturlandi, einn í
hverju sveitarfélaga; Grundar-
firði, Stykkishólmi og Borgar-
byggð.
-mm
Breytt skipulag á
öskudag
AKRANES: Öskudagurinn
er miðvikudaginn 1. mars.
Hann verður með breyttu
sniði í grunnskólum á Akra-
nesi að þessu sinni. „Fram að
þessu hefur öskudagur verið
frídagur í skólunum en þetta
skólaárið verður prófað nýtt
fyrirkomulag sem felst í því
að börnin verða í skólanum
frá klukkan 8:00-12:30. Dag-
skráin þennan dag mun miða
að því að gera öskudaginn
skemmtilegan og eftirminni-
legan þar sem nemendur
þjappa sér saman í hópa, klæð-
ast búningum, æfa söngva og
fara í hefðbundna öskudags-
leiki. Eftir að skóla lýkur geta
nemendur síðan farið saman í
litlum eða stórum hópum til
að gleðja starfsmenn verslana
og fyrirtækja með kraftmikl-
um söng. Skólafrístund verð-
ur lokuð á öskudag,“ segir í
tilkynningu frá Akraneskaup-
stað. -mm
Síðastliðinn föstudag var starfs-
fólki og nemendum Hvanneyrar-
deildar Grunnskóla Borgarfjarðar
færð viðurkenning frá Landvernd.
Hana fær skólinn fyrir langt og
farsælt starf í þágu jarðarinnar í
verkefninu Skólar á grænni grein.
Þessa viðurkenningu fær skólinn
ásamt Fossvogsskóla í Reykjavík,
en þessir tveir skólar hafa flaggað
grænfánanum oftast, eða alls átta
sinnum frá aldamótum. Ingibjörg
Inga Guðmundsdóttir skólastjóri
og Helga Jensína Svavarsdóttir
deildarstjóri á Hvanneyri tóku á
móti viðurkenningunni frá Björt
Ólafsdóttur umhverfisráðherra.
mm
Annar af tveimur skólum sem oftast
hefur flaggað grænfánanum
Á myndinni eru fulltrúar Landverndar og skólans. F.v. Guðmundur Ingi Guð-
brandsson, Björt Ólafsdóttir, Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, Helga Jensína
Svavarsdóttir, Caitlin Wilson og Margrét Hugadóttir.
Nú hafa bæði bæjarráð Akranes-
kaupstaðar og borgarráð Reykjavíkur
samþykkt að auglýsa tilraunaverkefni
um beinar siglingar 50 til 100 manna
ferju milli Reykjavíkur og Akraness.
Ef áhugasamir útgerðaraðilar finnast
er stefnt að sigling 50 til 100 manna
ferju gæti hafist í sumar. Ekki verður
um bílferju að ræða. Í bókun bæjar-
ráðs Akraneskaupstaðar kemur fram
að gert sé ráð fyrir kostnaði vegna
verkefnisins í fjárhagsáætlun 2017.
Verkefni þetta hefur haft nokkurra
ára aðdraganda. Fyrir um ári síðan
var auglýst eftir áhugasömum að-
ilum til að sinna flóasiglingum en í
kjölfar útboðs var ákveðið í bæjarráði
Akraneskaupstaðar og í borgarráði
að hafna þeim þremur tilboðum sem
bárust. Markmið tilraunaverkefnis-
ins er nú sem áður að kanna rekstrar-
grundvöll reglulegra bátsferða milli
Akraness og Reykjavíkur frá maí og
til hausts. Í maí á síðasta ári sam-
þykktu sveitarfélögin að endurskoða
útboðsskilmálana með það fyrir aug-
um að bjóða flóasiglingar út á nýjan
leik í tíma þannig að flóasiglingar
gætu hafist fyrir sumarið 2017.
mm
Samþykkja að setja
ferjusiglingar í auglýsingaferli
Fyrst þegar hugmyndir um flóðasiglingar komust á skrið fóru forsvarsmenn
sveitarfélaganna í siglingu. Á myndinni eru Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs
á Akranesi, Kristín Soffía Jónsdóttir, stjórnarformaður Faxaflóahafna, Dagur
B Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri á
Akranesi.