Skessuhorn


Skessuhorn - 15.02.2017, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 15.02.2017, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2017 27 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Ársþing Knattspyrnusambands Ís- lands var haldið í Vestmanna- eyjum um liðna helgi. Á þinginu voru veittar allnokkrar viðurkenn- ingar, bæði fólki og einstökum fé- lögum. Kvennabikarinn svokallaði kom í hlut ÍA. Bikarinn er veittur því liði sem þykir hafa sýnt af sér háttvísi og prúðmannlegan leik í Pepsi deild kvenna á síðasta keppn- istímabili. Aðeins sjö sinnum fengu Skagakonur að líta gula spjaldið í 18 leikjum síðasta sumar og aldrei var leikmanni ÍA vikið af velli með rautt spjald. Ekkert lið í deildinni státaði af jafn prúðmannlegri spila- mennsku heilt yfir á tímabilinu. Þá var kjörinn nýr formaður KSÍ á ársþinginu um helgina. Í for- mannskjörinu hafði Guðni Bergs- son betur gegn Birni Einarssyni sem einnig sóttist eftir formanns- stólnum. Guðni hlaut 84 atkvæði gegn 66 atkvæðum Björns, en 149 greiddu atkvæði og enginn skilaði auðu. Guðni tekur við af Geir Þor- steinssyni sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku eftir tíu ár í starfi. kgk ÍA fékk Kvennabikarinn 2016 Hulda Birna Baldursdóttir, formaður Knattspyrnufélags ÍA, tekur við Kvenna- bikarnum úr hendi Geirs Þorsteinssonar, fráfarandi formanns KSÍ. Ljósm. KSÍ. Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr GL á Akranesi, endaði í 51.-53. sæti á sínu fyrsta móti á Evrópu- mótaröð kvenna sem spilað var í Ástralíu fyrir og um helgina. Val- dís lék samtals á höggi undir pari á hringjunum þremur og var nokkuð sátt með spilamennskuna. Í viðtali við kylfing.is segir hún að það hafi verið fínt að spila í mótinu. „Það er langt síðan ég hef spilað í móti svona snemma á árinu, en það var bara gaman. Ég var ekkert að mikla þetta mót eða þessa mótaröð eitt- hvað fyrir mér, þetta var bara eins og hvert annað mót. Ég er kannski ekki alveg hundrað prósent sátt með niðurstöðuna en ég er ágæt- lega sátt með spilamennskuna. Hún var stöðug og ekki mikið af vand- ræðum en fleiri pútt þurfa að detta. Það kemur,“ sagði Valdís Þóra hress í bragði, eftir að hafa lokið keppni í Ástralíu. Nú heldur Valdís Þóra aftur heim til Íslands áður en undirbún- ingur fyrir næsta mót hefst. Hún er komin með þátttökurétt í móti í Frakklandi í mars en það er hluti af LET Access mótaröðinni, sem er næststerkasta mótaröð í Evr- ópu. „Ég ætla að fara til Spánar að æfa í mars fyrir mótið sem verður í Frakklandi seinna í mánuðinum. Þar mun ég svo æfa fyrir næsta mót á LET Evrópumótaröðinni. Ég kemst alveg inn á mótið í Frakk- landi þar sem það er á LETAS og ég er með fínan status þar. Það mót er aðallega hugsað til að koma mér í betra keppnisform fyrir næsta mót á LET mótaröðinni sem verður í Marokkó í apríl.“ Næsta mót á LET mótaröðinni fer fram í Kína í mars. Valdís hafði gert sér vonir um að vera með á því en svo verður ekki. Hún mætir hins vegar, eins og áður segir, aftur til leiks á mótaröðina þegar Lalla Me- ryem Cup fer fram í Marokkó dag- ana 13.-16. apríl en það er þriðja mót ársins. mm/kylfingur.is Valdís Þóra sátt eftir fyrsta mótið í Evrópumótaröðinni Tilkynnt hefur verið um lands- liðshóp U17 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu sem tekur þátt í und- irbúningsmóti UEFA í Edinborg í Skotlandi vikuna 19.-25. febrú- ar næstkomandi. Í hópinn hafa ver- ið valdar tvær ungar og efnilegar knattspyrnustúlkur af Vesturlandi, þær Birta Guðlaugsdóttir, mark- vörður Víkings Ó. og Katrín María Óskarsdóttir, markvörður ÍA. Hópurinn kemur saman föstudag- inn 17. febrúar í Kórnum í Kópa- vogi þar sem haldin verður æfing og fundur. Aftur verður æft daginn eftir og síðan haldið út til Skotlands að- faranótt sunnudagsins 19. febrúar, sama dag og mótið hefst. Íslenska liðið leikur þrjá leiki í mótinu, þann fyrsta gegn Króatíu mánudaginn 20. febrúar, síðan gegn Skotlandi 22. febrúar og síðast gegn Austurríki 24. febrúar. kgk Tveir vestlenskir markverðir í U17 Katrín María Óskarsdóttir og Birta Guðlaugsdóttir munu keppa með U17 ára landsliðinu í Skotlandi í lok febrúar. Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21 árs landsliðs karla, valdi í síðustu viku hóp sem spilaði á úrtaksæfingum um helgina. Æfingarnar fóru fram í Kórnum og voru einungis leikmenn frá íslenskum félagsliðum í hópn- um sem taldi 33 leikmenn frá 16 fé- lögum. Í æfingahópnum að þessu sinni voru fjórir leikmenn meistara- flokks ÍA. Þetta eru þeir Albert Haf- steinsson, Aron Ingi Kristinsson, Hafþór Pétursson og Steinar Þor- steinsson. Leikmennirnir eru fæddir árin 1996-1998. Komu þeir allir við sögu með liði ÍA í Pepsi deild karla síðasta sumar. Albert lék 17 leiki með lið- inu, Steinar 13, Aron Ingi sjö leiki og Hafþór lék þrjá leiki. kgk Fjórir Skagamenn í U21 Albert Hafsteinsson í leik með ÍA síðasta sumar. Ljósm. gbh. Grundarfjörður tók á móti Álfta- nesi í þriðju deildinni í körfunni síðastliðinn laugardag. Heima- menn voru ákveðnir í byrjun leiks og náðu talsverðum yfirburðum strax í fyrsta leikhluta. Þeir voru svo með tangarhald á leiknum allan tímann og náðu gestirnir aldrei að saxa almennilega á forskot þeirra. Það fór því svo að leiknum lyktaði með 89-52 sigri Grundfirðinga sem tylltu sér aftur upp í þriðja sætið í deildinni. tfk Góður sigur Grundfirðinga í körfunni Ungur knattspyrnumaður frá Akranesi, Ísak Bergmann Jóhann- esson, hélt í byrjun síðustu viku til Hollands þar sem hann æfði með stórliði Ajax í Amsterdam til loka vikunnar. Ísak er fæddur árið 2003 og leikur með 3. flokki ÍA. Með honum í för var annar þjálfara hans, Heimir Eir Lárusson. Ajax er sögufrægt lið í evrópskri knatt- spyrnu og margrómað fyrir ung- mennastarf sitt. Hefur það í dag á að skipa einhverju öflugasta ung- lingastarfi í Evrópu. „Það er mik- ill heiður fyrir Ísak Bergmann og ÍA að hann fái boð til að æfa og skoða aðstæður hjá þessu sögu- fræga stórliði,“ segir á vef knatt- spyrnufélagsins. Þá mun Ísak í aprílmánuði halda til Englands því enska úrvals- deildarliðið Everton hefur einnig boðið honum til æfinga með ung- lingaliði félagsins. kgk/ Ljósm. kfia.is. Ungur Skagamaður æfði með Ajax

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.