Skessuhorn - 15.02.2017, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 201712
Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir hjúkr-
unarfræðingur var sett í starf for-
stjóra Heilbrigðisstofnunar Vest-
urlands 1. febrúar síðastliðinn. Jó-
hanna er fædd og uppalin á Akranesi
og hefur starfað við stofnunina frá
árinu 1981. Lengst af var hún deild-
arstjóri á lyflækningardeild en hef-
ur auk þess verið verkefnastjóri þró-
unar- og gæðamála, hjúkrunarfor-
stjóri, verkefnastjóri hjúkrunar og
frá árinu 2012 hefur hún verið fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar og rekstrar
við stofnunina. „Ég ætlaði upphaf-
lega ekki að vera hér lengi,“ segir Jó-
hanna í samtali við Skessuhorn. „Ég
ætlaði í ævintýraleit en svo bara þró-
aðist það þannig að ég hef verið hér
allan þennan tíma. Það sem festi mig
hér er sérlega góður starfsandi og
skemmtilegur hópur. Hér hefur mér
alltaf liðið vel og verið í skemmtileg-
um verkefnum. Ég hef því ekki séð
neina ástæðu til að skipta um vinnu-
stað,“ heldur hún áfram. Jóhanna
segist þó geta sagt að hún hafi unnið
á þremur stofnunum á þessum tíma.
„Ég byrjaði hér á Sjúkrahúsi Akra-
ness, svo hét þetta Sjúkrahúsið og
heilsugæslustöðin á Akranesi og frá
2010 hefur þetta verið Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands og þá breyttist
stofnunin mikið.“
Öflug starfsemi
Jóhanna er sett til eins árs á með-
an Guðjón Brjánsson er í form-
legu leyfi. Henni líst vel á starfið og
er spennt að takast á við komandi
verkefni. Hún segir þau þó vissulega
krefjandi. „Mér hefur alltaf fundist
gaman að breyta um vinkla. Þetta er
spennandi, það er öflug starfsemi í
allri stofnuninni og hér er stór hóp-
ur frábærra og traustra starfsmanna
og stjórnenda. Ég kvíði þessu því
ekkert, enda skiptir miklu máli að
hafa með sér gott fólk. En verk-
efnin eru krefjandi og þau koma
strax.“ Rósa Marinósdóttir hjúkrun-
arfræðingur og sviðsstjóri hjúkrun-
ar í heilsugæslu mun leysa Jóhönnu
af sem framkvæmdastjóri hjúkrunar
og rekstrar næsta árið. „Það var tek-
in ákvörðun um að fá aðila úr okk-
ar hópi í það. Hún hefur frá upp-
hafi verið aðili í framkvæmdastjórn
stofnunarinnar, sem fulltrúi heilsu-
gæslunnar,“ segir Jóhanna.
Stórar áskoranir
framundan
Aðspurð um hvort breytingar séu
framundan segir Jóhanna að svo sé
ekki. Þó séu nokkrar stórar áskor-
anir sem blasi við. Sú stærsta sé að
halda rekstrinum innan fjárheimilda.
„Það er þetta stóra mál, okkar stóra
áskorun. Það er ljóst að rekstur síð-
asta árs er aðeins í mínus, það er um
0,6% halli. Það kom svo sem ekki á
óvart og við óttuðumst þetta í fyrra.
Við leggjum fram fjárhagsáætlun
núna sem er með 0,8% afgangi, sem
má ekki minna vera - það má ekkert
út af bregða,“ útskýrir hún. Þá bæt-
ir hún við að önnur stór áskorun sé
að manna þjónustuna og að sífellt sé
unnið að því að finna lausnir á þeim
vanda. Líkt og fram hefur komið í
Skessuhorni er læknaskortur yfir-
vofandi á kvennadeild sjúkrahússins
á Akranesi en auk þess er ljóst að yf-
irlæknir á háls- og bakdeild stofnun-
arinnar muni hætta á næstu misser-
um. „Það er því mikil vinna lögð í að
reyna að finna lausnir. Að fá lækna til
starfa og viðhalda því þjónustustigi
sem verið hefur. Við gerum allt sem
við getum til að viðhalda því og ver-
ið er að leita að eftirmönnum þess-
ara lækna. Síðan þarf að viðhalda
þjónustunni á heilsugæslustöðvun-
um og það er viðvarandi verkefni.“
Endurbætur
nauðsynlegar
Fjórða stóra málið sem blasir við í
rekstri stofnunarinnar segir Jóhanna
snúa að tækjabúnaði. „Við þurfum
að tryggja endurnýjun á mikilvæg-
um tækjabúnaði og það veldur okk-
ur í raun áhyggjum. Okkur sýnist
við hafa tæplega 16 milljónir í tækja-
kaup á árinu en mikilvæg endurnýj-
un hljóðar upp á 98 milljónir.“ Hún
segir stofnunina hafa verið heppna
síðustu ár að hafa getað endurnýj-
að tæki með því að afla sértekna
og með hjálp öflugra bakhjarla á
svæðinu. Nefnir hún Hollvinasam-
tök HVE, Lionsklúbba, Oddfellow,
félagasamtök auk einstaklinga. „Svo
eru nærsamfélögin að gefa á hvern
stað fyrir sig. Hvammstangi er til
dæmis með sér hollvinasamtök sem
hafa stutt vel við bakið á þeim. En
án þessara aðila allra, fyrirtækja og
einstaklinga, þá veit ég ekki hvar við
stæðum í dag. Þessar gjafir hafa gert
það að verkum að við höfum getað
haldið uppi öflugri þjónustu,“ bæt-
ir hún við.
Þá segir Jóhanna að nauðsynlegt
sé að koma endurbótum á húsa-
kosti HVE af stað. Árlega er unnið
að endurbótum á fasteignum stofn-
unarinnar en tvö stór verkefni bíða.
„Annars vegar þarf að taka miðhús-
ið hér á Akranesi í gegn, það hefði
þurft að taka það húsnæði í gegn
fyrir löngu síðan. Þetta er verkefni
sem unnið hefur verið að síðustu
tólf ár en miðað hægt.“ Kostnaðar-
áætlun og hönnun liggur fyrir en til
að hægt sé að ráðast í framkvæmd-
ir vantar fjármagn. „Þetta er miklu
hærri upphæð en hægt er að fá úr
því sem veitt er árlega til viðhalds og
þarf því sérstaka fjárveitingu. Okk-
ur liggur á að fá þetta lagað, enda er
önnur deildin að verða fimmtug á
næsta ári en hin orðin fertug. Inn-
réttingar og aðbúnaður er því löngu
orðinn úreldur,“ útskýrir Jóhanna.
Stórt verkefni í gangi í
Hólminum
Hitt stóra verkefnið sem bíður er
samþætting stofnanaþjónustu fyr-
ir aldraða í Stykkishólmi. Fyrir sex
árum voru gerð drög að því að sam-
eina dvalarheimilið og sjúkrahúss-
hlutann í Stykkishólmi, þannig að
eftir endurbætur yrði í húsnæði
HVE 18 rúma hjúkrunarheimili,
fjögur almenn sjúkrarými auk háls-
og bakdeildar. „Dvalarheimilið er í
óviðeigandi húsnæði. Þetta er verk-
efni sem er í gangi og hönnun langt
komin. Þessu var áfangaskipt og
fyrsta áfanga er lokið,“ segir Jó-
hanna og á við þegar eldhús HVE og
Stykkishólmsbæjar voru sameinuð í
nóvember síðastliðnum. „Þar erum
við búin að samþætta og bíðum nú
eftir fjármagni til að geta haldið
áfram. Við erum að vona að við get-
um hið fyrsta tekið næsta skref, sem
er að færa endurhæfinguna í Stykk-
ishólmi á einn stað á jarðhæðina og
því næst að deildirnar yrðu teknar.
Okkur liggur á að sameina þetta.“
Markmið til þriggja ára
Jóhanna segir engar umbylting-
ar framundan á hennar fyrstu dög-
um í starfi, heldur sé mikilvægt að
halda áfram því góða starfi sem unn-
ið hefur verið á undanförnum árum.
„Heilbrigðisþjónustan er í raun
þannig að við erum alltaf í aðhalds-
og hagræðingaraðgerðum, á hverju
ári. Þetta er fyrsta árið þar sem við
sjáum í fjárveitingum lið sem heit-
ir „1% raunvöxtur í rekstri“ og það
er gaman að sjá það. Það er búið að
tala mikið um að setja meira í heil-
brigðisþjónustuna, það er ekki far-
ið að skila sér alveg en þarna er
þó verið að reikna 1% inn á hvert
svið.“ Þá nefnir hún að nú sé búið
að vinna ákveðna stefnumótun fyrir
stofnunina, sem sé skemmtilegt. Öll
ráðuneyti kölluðu eftir stefnumótun
frá sínum undirstofnunum og skilaði
HVE sínu plaggi til Velferðarráðu-
neytisins í desember. „Í fyrsta sinn
er búið að setja niður starfsáætlun til
þriggja ára þar sem settar eru fram
aðgerðir og verkefni fyrir hvert af
sviðunum þremur, auk gæðaviðmiða
og markmiða sem við ætlum að ná.
Við erum að taka fyrstu skrefin og
það er í raun fimmta atriðið í okk-
ar áherslum, að koma okkur af stað
í að vinna eftir þessu og því sem við
höfum ákveðið að gera.“ Hún seg-
ir því ótal skemmtileg verkefni blasa
við. Hún nefnir að stofnuninni hafi
gengið vel í liðskiptaaðgerðaátak-
inu sem gert var í fyrra og að hald-
ið verði áfram með það á þessu ári.
„Það er gaman að segja frá því að
við byrjuðum ekki í átakinu fyrr en
1. mars og vorum með 110 aðgerðir
í okkar föstu fjárveitingum. En það
voru gerðar 52 til viðbótar og við
náðum því 162 aðgerðum. Á árinu
2017 er ráðgert að heildarfjöldi lið-
skiptaaðgerða verði 180. Það er
gleðilegt og við sjáum aukningu í
starfseminni víða í stofnuninni. Ég
get algerlega fullyrt að það er vax-
andi starfsemi á ýmsum sviðum og
það er mjög gleðilegt. En húsnæði
er því miður víða orðið þreytt.“
Eitt bros getur
miklu breytt
Jóhanna er búsett á Akranesi ásamt
eiginmanni sínum, Ara Jóhannes-
syni lækni á Landspítalanum og
rithöfundi. Saman eiga þau tvo
syni og átti Ari tvo úr fyrra sam-
bandi. Áhugamál Jóhönnu eru úti-
vist, gönguferðir og ferðalög er-
lendis. Hún segist ná að samtvinna
áhugamálin og hefur ferðast víða.
„Ég nýt þess líka að verja tíman-
um í útivist í nærumhverfinu. Við
hjónin förum í góðar gönguferðir
í hverri viku,“ segir hún. Þá segist
hún hafa gaman af fallegri náttúru
og nefnir að margir fallegir stað-
ir séu í landshlutanum. „Ég keyri
mikið um Vesturland vegna vinn-
unnar og sé alltaf nýja hluti í nátt-
úrunni í hverri ferð og eins þyk-
ir mér gaman að þekkja örnefni.“
Hún segir marga staði í Borgar-
firði og á Snæfellsnesi vera í upp-
áhaldi og hefur gaman af því að
fara í dagsferðir á þá staði. „Svo
er maðurinn minn í hestamennsku
en ég hef ekki fundið mig í því. Ég
hef stundum sagt að mér finnist
skemmtilegra að vera á hjólhesti,“
segir hún og hlær.
„En mér þykir líka mjög gaman
í vinnunni. Maður spyr sig að því
hvað maður getur gert sem ein-
staklingur til að gera stofnunina að
enn betri vinnustað og ég vil leggja
mitt af mörkum við það. Það er
mjög mikilvægt að hafa skemmti-
legt í vinnunni af því að þar eyðum
við svo miklum tíma vikunnar. Eitt
lítið bros getur gert ótrúlega mik-
ið. Ég hugsa oft út í þetta og ef það
er erfitt, þá er ótrúlegt hvað einn
lítill brandari eða eitt bros getur
breytt miklu,“ segir Jóhanna Fjóla
Jóhannesdóttir forstjóri HVE að
endingu. grþ
Skiptir miklu máli að hafa með sér gott fólk
- segir Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir nýskipaður forstjóri HVE
Jóhanna Fjóla ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni framkvæmdastjóra fjármála og rekstrar á HVE. Jóhanna gegndi starfi framkvæmda-
stjóra hjúkrunar og rekstrar þegar myndin var tekin.
Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir tók nýverið við sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands.