Skessuhorn - 15.02.2017, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2017 21
klætt með bogavölsuðu stáli sem er
extra ammoníaksþolið, sérstaklega
ætlað í landbúnaðarmannvirki,“
segir Stefán.
Tvöfölduðu
starfsemina á Flúðum
Á síðasta ári var ráðist í töluverð-
ar fjárfestingar innan fyrirtækisins.
„Það var reist 2.700 fermetra verk-
smiðjuhús fyrir steinullareininga-
framleiðslu fyrirtækisins á Flúðum
og fjárfest í nýrri einingalínu fyrir
framleiðslu á steinullareiningum.
Þar höfum við nú tök á að fram-
leiða við bestu aðstæður mjög full-
komnar yleiningar þar sem stál er
límt á sitthvora hlið steinullarinnar.
Steinullareiningar eru einn af betri
kostunum í einangrun húsa. Með
framkvæmdunum á Flúðum höf-
um við styrkt stöðu fyrirtækisins
þar, rekum nú tvær verksmiðjur á
sömu lóðinni og framleiðum burð-
arvirki og einangraðar einingar á
sama stað. Það skilar fyrirtækinu
mun betri framleiðni og vonandi
betri afkomu,“ segir Stefán. „Með
þessari nýju framleiðslu horfum við
á nýja markaði, svo sem inná íbúð-
arhúsamarkaðinn, en eigum eftir að
sjá í framtíðinni hvaða tækifæri og
markaði þetta færir okkur. En við
erum þegar komnir með verkefni
þar sem þessi framleiðsla er nýtt í
þök og veggi íbúðarhúsa,“ bætir
hann við.
Góð verkefnastaða
Aðspurður um verkefnastöð-
una fyrir komandi ár segir Stefán
hana líta vel út og væntir þess að
verkefnum muni fjölga enn frek-
ar. „Staðan er nokkuð góð og við
höfum fengið mikinn fjölda fyrir-
spurna til okkar undanfarið. Fyrir-
spurnir gefa jafnan góða vísbend-
ingu um verkefni sem eru ókomin.
Þannig að árið 2017 lítur mjög vel
út í flestum framleiðslueiningum
okkar,“ segir hann.
„Þá hefur samstarf við endur-
söluaðila okkar verið afar gott
og góð sala verið á flestum okkar
framleiðslu- og endursöluvörum,
sérstaklega þeim sem framleiddar
eru hér í Borgarnesi. Við höfum
lagt áherslu á að vanda okkur í að
vera samkeppnishæf því annars er
ekki hægt að ætlast til þess að end-
ursöluaðilarnir kaupi okkar vöru.
Það hefur gengið vel og samstarf-
ið við þessa aðila verið afar gott,“
segir Stefán.
Naglaframleiðslu
verður hætt
Í höfuðstöðvunum í Borgarnesi er
einnig staðsett hin fræga nagla-
framleiðsla fyrirtækisins þar sem
framleiddir eru hinir landsþekktu
Vírnets naglar. „Naglaframleiðsl-
an var upphafið að rekstri fyrir-
tækisins árið 1956 og fagnaði sá
hluti fyrirtækisins 60 ára afmæli á
síðasta ári,“ segir Stefán en bætir
því við að senn verði sú framleiðsla
þó aflögð. Markar það tímamót í
sögu fyrirtækisins. „Það liggur fyr-
ir að naglaframleiðslu í Borgarnesi
verði hætt á þessu ári. Það er full-
reynt að okkar áliti og framleiðsla
á þessari vöru er engan veginn
arðbær,“ segir hann. Frumástæð-
ur segir hann vera þær að notkun
nagla hafi dregist verulega sam-
an undanfarin ár. „Það hefur orð-
ið breyting í notkun á festingum.
Í dag nota menn fyrst og fremst
skrúfur og aðrar viðlíka festing-
ar. Síðan koma naglarnir. Þegar
ég byrjaði hér árið 1999 var heild-
arframleiðsla á nöglum 500-600
tonn á ári en á síðasta ári var hún
komin niður í um 160 tonn. Auð-
vitað hjálpar okkur ekki heldur í
þessu samhengi að sterk króna hef-
ur gert okkur mjög erfitt að keppa
við innflutta nagla og festingar, því
þetta er vara sem er ekki hægt að
verðleggja nema út frá samkeppn-
inni. Reiknisdæmið lá því ljóst fyr-
ir, það er ekki hagkvæmt að fram-
leiða nagla á Íslandi miðað við ís-
lenskar markaðsaðstæður. Sömu-
leiðis er útilokað að framleiða
nagla til útflutnings. Naglafram-
leiðsla og -notkun í Evrópu hefur
dregist saman í nákvæmlega sama
hlutfalli og hér,“ útskýrir Stefán.
Færa út kvíarnar
Á áramótum var ákveðið að kaupa
fyrirtækið Bindir & stál í Hafnar-
firði og verður rekstur þess vænt-
anlega með tímanum felldur inn í
rekstur Límtrés Vírnets. En starf-
semi þess fyrirtækis verður þó með
óbreyttu sniði út þetta ár. „Bindir
& stál hefur verið leiðandi í þjón-
ustu við verktaka í járnabeyging-
um og fylgiefni og boðið tækni-
lausnir fyrir steypustyrktarjárn
til sölu,“ segir Stefán. Með kaup-
unum horfa stjórnendur Límt-
rés Vírnets til þess að hasla sér
völl í fleiri hlutum byggingageir-
ans. „Okkar starfsemi er náttúru-
lega í húsbyggingum en við höfum
aldrei áður verið beint í steypu-
vinnunni. Með þessum kaupum
þá sjáum við tækifæri til að koma
okkur aðeins að þar. Hugmyndin
er að færa þessa starfsemi að hluta
til í Borgarnes í framtíðinni, en að
halda hluta hennar áfram á höfuð-
borgarsvæðinu,“ segir Stefán Logi
að lokum. kgk
Alls tóku 36 sundmenn frá
Íþróttabandalagi Akraness þátt í
Gullmóti KR sem haldið var um
helgina í 50m laug í Laugardaln-
um. Sundmennirnir voru á aldr-
inum 11 – 20 ára. Kristján Magn-
ússon var einn af þeim sem bætti
sig mikið um helgina og setti nýtt
Akranesmet í 100m flugsundi í
flokki 12 ára og yngri á tímanum
1.33.53, en hann bætti met Sindra
Andreas frá árinu 2013. Alls voru
155 bætingar hjá sundmönnunum
af Akranesi af 199 stungum í laug-
ina og er það mjög athyglisverður
árangur. Margir náðu einnig lág-
marki á Aldursflokkameistaramót
Íslands sem fram fer í júní en þau
Guðbjarni Sigþórsson, Tómas
Týr, Freyja Hrönn og Aldís Thea
náðu sínum fyrstu lágmörkum á
það mót um helgina.
Rakel Katrín Sindradóttir,
Bjarni Snær Skarphéðinsson, Sól-
ey Saranaya Helgadóttir og Ma-
teuz Kuptel voru einnig meðal
þeirra sem náðu að bæta sína tíma
vel.
Á laugardagskvöldið fór svo
fram Superchallenge, en þar eru
úrslit úr 50m skriðsundi synt und-
ir tónlist og ljósasýningu og þar
áttu Skagamenn sex sundmenn
sem áttu góðar bætingar. Kristján
Magnússon endaði þar í þriðja sæti
sveina, bróðir hans Erlend hafnaði
einnig í þriðja sæti í flokki 15-17
ára ásamt Brynhildi Traustadótt-
ur. Una Lára Lárusdóttir hafnaði
í 6. sæti og Sindri Andreas í því
8. í opnum flokki. Ngozi Jóhanna
Eze nældi sér svo í 8. sætið í flokki
13-14 ára. Mjög góður árangur
hjá krökkunum.
Boðsundssveitirnar frá Akra-
nesi náðu góðum árangri og voru
í verðlaunasæti í harðri keppni við
góð lið frá Íslandi og einnig syntu
þar margir sterkir sundmenn frá
Kuwait sem gerði gæði mótsins
enn meiri og skemmtilegra.
Þeir sundmenn sem syntu til
verðlauna að þessu sinni voru:
1. sæti Brynhildur Traustadóttir
200 skrið 15 ára og eldri
2. sæti Ragnheiður Karen Ólafs-
dóttir 100 bringa 13-14 ára
3. sæti Ragnheiður Karen Ólafs-
dóttir 200 bringa 13-14 ára
3. sæti Brynhildur Traustadóttir
50 skrið 15-17 ára
3. sæti Kristjan Magnusson 50
skrið 12 og yngri
3. sæti Erlend Magnusson 50
skrið 15-17 ára.
Boðsund:
1. sæti 4x100m fjórsund 15 ára
og eldri: Sindri Andreas, Erlend,
Atli Vikar, Natanael
1. sæti 4x100m fjórsund 13-14
ára: Anita Sól, Ragnheiður, Ngozi,
Erna
1. sæti 4x100m fjórsund 13-14
ára: Ragnheiður, Anita Sól, Lára
Jakobína og Ngozi.
2. sæti 4x100m fjórsund 15 ára og
eldri: Una Lára, Ásgerður, Bryn-
hildur og Eyrún.
3. sæti 4x50m fjórsund 12 ára og
yngri: Bjartey, Íris Rakel, Ingi-
björg Svava, Freyja Hrönn.
hhf/mm
Nýtt Akranesmet og mikil bæting á Gullmóti KR um helgina
Sundfólkið frá Akranesi ásamt gestunum frá Kuwait. Ragnheiður, Aníta, Ngozi og Lára.
Brynhildur, Erlend og Magnús náðu öll góðum árangri á mótinu. Tómas Týr og Guðbjarni.
Síðasti pappasaumurinn sem nú bíður þess að fá galvanhúð.
Á síðasta ári landaði Límtré Vírnet stærsta einstaka samningi sínum frá upphafi,
þegar fyrirtækið samdi við dótturfélag Icelandair um byggingu 11 þúsund
fermetra flugskýlis á Keflavíkurflugvelli.
Ljósm. fengin af facebook-síðu Límtrés Vírnets.