Skessuhorn - 15.02.2017, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2017 23
Ingibjörg Jónsdóttir, Imba á Rauðs-
gili eins og hún var jafnan kölluð,
er látin 76 ára að aldri. Imba var
fædd í Biskupstungum vorið 1940.
Hún missti föður sinn ung og flutti
þá ásamt móður sinni og tveim-
ur systkinum til Reykjavíkur þar
sem hún ólst upp. Ung gerðist hún
kaupakona að Rauðsgili í Hálsasveit
þar sem hún kynntist verðandi eig-
inmanni sínum, Oddi Guðbjörns-
syni bónda. Saman áttu þau tvö
börn en Imba átti einn son áður.
Mann sinn missti hún 1990 en bjó
áfram á Rauðsgili til 1995 en flutti
þá í Reykholt. Frá 1983 starfaði hún
við héraðsskólann og síðar hótelið
í Reykholti. Árið 2009 fótbrotnaði
hún illa og veiktist í kjölfarið þannig
að hún náði aldrei fullum líkamleg-
um styrk að nýju. Hún flutti þá að
Kleppjárnsreykjum en bjó í Brák-
arhlíð í Borgarnesi síðustu æviárin.
Þar lést hún í kjölfar skammvinnra
veikinda 9. febrúar síðastliðinn.
Imba á Rauðsgili var ákaflega
litríkur karakter og aldrei var nein
lognmolla í kringum hana. Marg-
ir minnast hennar fyrir góðvild
og glaðværð, smitandi hlátur og
skemmtileg kynni. Skessuhorn
sendir fjölskyldu, vinum og sam-
ferðarfólki Imbu á Rauðsgili sam-
úðarkveðjur. Jafnframt er henni
þakkað fyrir vinsemd og hlýhug í
garð starfsmanna og blaðs alla tíð.
Útför Imbu frá Rauðsgili fer fram
frá Reykholtskirkju laugardaginn
18. febrúar klukkan 13:00.
mm
And lát:
Ingibjörg Jónsdóttir
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk þess birtum við
lausn á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni
lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan
15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi
lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi
(póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr
réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá
Skessuhorni; „Pétrísk íslensk orðabók með alfræðiívafi,“ eftir sr.
Pétur Þorsteinsson.
Alls bárust 69 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku.
Lausnin var: „Spakmæli.“ Vinningshafi er Bergvin Sævar Guð-
mundsson, Hlíðarvegi 3, 350 Grundarfirði.
Drápa
Útvega
Blað
Bæli
Rimla-
kassi
Geymsla
Ella
Hlýju
Kaldi
Planta
Far-
angur
Næði
Áhald
Hrekkir
100
Á skipi
Óhóf
3 Fyrr
Fæddi
Spann
Gróður-
ríki
Rændi
Agnir
Átt
Eyða
Bunga
Mjöður
Hróp
Brekka
Hanki
Dýpi
Fen
Vissa
Sniðug
Par
Bor
Leit
Tvíhlj.
Laðaði
Píla
Trylla
2 Rýja
Mar-
flatt
Trit
Ókunn
Ikt
Natni
Kák
Duft
Tónn
Beint
Órar
Á fæti
Korn
Dinglaði
6
Hæðir
1
Kona
Spurn
Að-
finnsla
Kvaka
Óregla
Hlass
Sproti
Rótar
Innan
Einstök
Kyn
Skörp
Svall
Erta
4 Grip
Atorka
Neyttu
Bið
Heil
Loka
Flan
Talað
Vangi
Seðlar
8
Eldur
Á reikn.
Leyfist
Hás
Umbun
Ferð
Land-
bára
Skæði
Tölur
Þrykk Sveim
Tónn
Skyn
Svik
Eignir
Hólmi
Agnúi
Kring-
um
Grandi
Tónn
Fluga
Sat
5 Risa
Hávaði
Kúgun
Uppi-
staða
7 Skoða
Svall
1 2 3 4 5 6 7 8
Ö N D V E R Ð U R A M M A N
F Ö R O K I N Ó T A A G A
U T A N I L J A R K U N N
N U S A L L A R Á L A R Ó
D R L Á L A Ð A R R Á F A
E F F Ó R T Ó M A T A R
E I N D Æ M A A S A S T Í
R Y R K R E D D U R
S K I N N A M D S A T
Á T U I N N T I A F T U R
R Ý R A N Ó M J Ó N A
O R F K A N N H A Ó L K U
I A S K A N A L S L Ó Ð
S K A U T S L U G S L Á
U L L R A S K A S I A F L
L Ó N P J A T T S K R U M
R Ó T P Á R T A K Æ Ð R A
K A N E I R I Ð A R A N N
S P A K M Æ L I
L
A
U
S
N
Ú
R
S
ÍÐ
A
S
T
A
B
L
A
Ð
I
Síðastliðinn föstudag opnaði
Þorsteinn Víglundsson félags-
og jafnréttisráðherra nýja vef-
síðu sem Vinnumálastofnun hef-
ur sett upp í samvinnu við Rík-
isskattstjóra, Vinnueftirlitið, Al-
þýðusamband Íslands og Samtök
atvinnulífsins. Hér er á ferðinni
upplýsingasíða þar sem nálgast
má fræðslu um réttindi og skyldur
erlendra þjónustufyrirtækja sem
senda fólk til starfa hér á landi auk
lagareglna sem gilda um starfsemi
starfsmannaleiga hér á landi. Vef-
síðan er liður í því að bæta upp-
lýsingagjöf til erlendra aðila sem
starfa tímabundið hér á landi og
tryggja að þeir starfi í samræmi við
lög og reglur. Að sögn starfsfólks
Vinnumálastofnunar hefur ver-
ið þörf fyrir slíka upplýsingasíðu
en fjöldi erlendra fyrirtækja sem
starfa hér á landi og starfsmenn á
þeirra vegum hefur farið stigvax-
andi frá árinu 2015. Voru alls 54
erlend þjónustufyrirtæki skráð til
Vinnumálastofnunar á síðasta ári
með samtals 996 starfsmenn. Þá
var fjöldi starfsmanna á vegum
starfsmannaleiga, innlendra sem
erlendra, samtals 1527. „Með til-
komu vefsíðunnar munu þessir
aðilar með einföldum hætti geta
nálgast helstu upplýsingar á ein-
um og sama stað. Verður þar með-
al annars að finna upplýsingar um
kaup og kjör, vinnuvernd, skatta-
mál, mat á starfsréttindum, skrán-
ingu til Þjóðskrár og upplýsingar
um skráningaskyldu erlendra fyr-
irtækja til Vinnumálastofnunar
og svo framvegis,“ segir í tilkynn-
ingu.
mm
Vefsíða um réttindi og
skyldur erlendra fyrirtækja
Ráðherra opnaði nýju vefsíðuna í húsnæði Vinnumálastofnunar.
Mikil öðlungskona er nú fallin frá.
Imba á Rauðsgili náði ekki að verða
77ára gömul, en gleðin og góðvild-
in sem hún veitti var miklu meiri
en þessi ár segja til um.
Ég kynntist Imbu þegar ég flutti
í Reykholt 2004 til að reka Foss-
hótelið, en hún vann við það í
mörg herrans ár. Þar tók hún á
móti mér eins og ég væri hennar
fjölskyldumeðlimur. Hún var mér
innan handar með allt mögulegt
varðandi reksturinn og nýja búsetu
í sveitinni. Ekki bara það heldur
hvatti hún mig til að „athuga nú
betur með hann Steina“ sem er
maðurinn minn til 10 ára í dag. Ég
á henni margt að þakka. Ógleym-
anlegar eru stundirnar þegar hún
spáði fyrir mér og Auði stjúpdótt-
ur minni í kaffibolla, eða með tarot
spilum. Peysur á ýmsum flækju-
stigum hafa komist á rétta braut
eftir að hún, þolinmóð, rakti upp
vitleysurnar hjá mér og kom mér
á rétta braut. Stuðningur hennar
þegar eitthvað bjátaði á er ómet-
anlegur. Hjá henni var mér allt-
af tekið opnum örmum. Imba var
mér sannkallaður „velgjörari“ og
finnst mér því við hæfi að vísa Bólu
Hjálmars úr vísnaflokkinum Vísur
til dulins velgjörara komi hér:
Víða til þess vott ég fann,
þó venjist frekar hinu,
að guð á margan gimstein þann
sem glóir í mannsorpinu.
Elsku Imba mín, þín er sárt
saknað.
Sigrún Hjartardóttir, Hátúni.
Imba á Rauðsgili - minning