Skessuhorn - 15.02.2017, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2017 25
Óska eftir íbúð til langtímaleigu
Óska eftir íbúð til langtímaleigu
í Borgarnesi sem fyrst. Er með 13
ára son og fylgja okkur 2 rólegir
cavalier hundar. Góðri umgengi
heitið og skilvísum greiðslum.
Svar sendist á heba3255@hotmail.
com.
Íbúð óskast til leigu á Akranesi
Er 23 ára og á eina litla stelpu sem
verður hjá mér aðra hverja viku/
helgi. Er reglusamur og drekk
lítið sem ekkert. Vantar 2 - 3 her-
bergja íbúð til leigu. Svör óskast á
netfang. h.helenuson@gmail.com
eða í síma 776-8667. Mbk. Helgi
Rúnar.
Húsnæði óskast
Hjón með eitt barn óska eftir
3-4 herbergja húsnæði til leigu í
Borgarnesi, helst langtímaleigu.
Reglusöm og skilvís. Uppl. í síma
848 2318 Þórir, 849 2835 María, eða
á netfangið majahrund@simnet.is.
Toyota Rav
Til sölu Toyota Rav árg. 2004. Ekinn
140 þúsund. Uppl. gefur Gylfi síma
866-7632. Nánari upplýsingar:
https://bland.is/til-solu/farartaeki/
bilar/rav4/3455093/
Markaðstorg Vesturlands
LEIGUMARKAÐUR
Akranes -
miðvikudagur 15. febrúar
Myndlistasýning Baska í Garða-
kaffi er opin á virkum dögum frá
kl. 11 - 17 og um helgar frá 12 - 17.
Sýningin stendur til og með 19.
febrúar nk. Allir velkomnir!
Stykkishólmur -
miðvikudagur 15. febrúar
Nytjamarkaður verður í Félags-
heimilinu Skildi í Helgafellssveit
miðvikudag og fimmtudag á milli
kl. 17 og 19.
Ólafsvík -
miðvikudagur 15. febrúar
Konukaffi verður í Átthagastofu
Snæfellsbæjar í Ólafsvík kl. 18 - 20.
Allar konur velkomnar.
Stykkishólmur -
miðvikudagur 15. febrúar
Fiskurinn, fæðan og súrnun
hafsins. Hrönn Egilsdóttir, Háskóla
Íslands, fjallar um súrnun hafsins
og þá ógn sem lífríkinu stafar af
þessum manngerðu breytingum.
Stiklað verður á stóru um stöðu
þekkingar um áhrif á fiska, fæðuna
þeirra og ýmsar aðrar lífverur
hafsins. Fyrirlesturinn verður í Ráð-
húsloftinu og hefst kl. 20. Erindið
er hluti af fyrirlestraröð Náttúru-
stofu Vesturlands.
Akranes -
fimmtudagur 16. febrúar
Opinn kynningarfundur á skipu-
lagslýsingum fyrir Sementsreit og
Dalbraut - Þjóðbraut. Fundurinn
verður í sal Grundaskóla og
hefst kl. 18. Fundarstjóri er Rakel
Óskarsdóttir, formaður starfshóps
um Sementsreit. Á fundinum
mun Einar Brandsson formaður
skipulags- og umhverfisráðs flytja
ávarp, skipulagshönnuður frá
Teiknistofu Gylfa Guðjónssonar
mun kynna lýsingu Dalbrautarreits
og skipulagshönnuður frá ASK
arkitektum mun kynna lýsingu
Sementsreits. Boðið verður upp á
súpu og brauð og fundurinn end-
ar á umræðum og fyrirspurnum.
Borgarbyggð -
miðvikudagur 15. febrúar
Úrvalsdeild kvenna í körfuknatt-
leik: Skallagrímur - Valur í Borgar-
nesi kl. 19:15.
Stykkishólmur -
fimmtudagur 16. febrúar
Júlíana, hátíð sögu og bóka verður
haldin i fimmta sinn dagana 16.
- 20. febrúar í Stykkishólmi. Við-
fangsefni hátíðarinnar að þessu
sinni verður „þorpið“. Dagskráin
verður fjölbreytt að vanda.
Stykkishólmur -
fimmtudagur 16. febrúar
Úrvalsdeild karla í körfuknattleik:
Snæfell mætir Tindastóli kl. 19:15 í
Íþróttamiðstöð Stykkishólms.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 16. febrúar
Samstarfsnefnd borgfirskra
kvenna: Fyrirlestur í Brún í Bæjar-
sveit kl. 20:30. Kristín Linda Jóns-
dóttir sálfræðingur og ritstjóri
Húsfreyjunnar heldur fyrirlestur
um jákvæðni, vellíðan, samskipti
og hamingju fyrir konur að þessu
sinni. 1500 kr. inn. Kaffi og meðlæti.
Dalabyggð -
fimmtudagur 16. febrúar
Spurningakeppni eldri borgara í
Rauðakross húsinu kl. 14. Kaffiveit-
ingar í boði.
Borgarbyggð -
laugardagur 18. febrúar
Úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik:
Skallagrímur - Snæfell í Borgarnesi
kl. 16:30.
Borgarbyggð -
laugardagur 18. febrúar
Einleikurinn Svarti galdur á Íslandi
eftir Geir Konráð Theodórsson
verður sýndur í Landnámssetri kl.
20.
Akranes -
sunnudagur 19. febrúar
Sunnudagaskóli í Akraneskirkju
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Fallegir
sálmar sungnir og heilagt orð lesið.
Sr. Eðvarð Ingólfsson þjónar. Verið
velkomin.
Stykkishólmur -
sunnudagur 19. febrúar
Félagsvist í Setrinu kl. 17.
Borgarbyggð -
sunnudagur 19. febrúar
Úrvalsdeild karla í körfuknattleik:
Skallagrímur - Snæfell í Borgarnesi
kl. 19:15.
Nýfæddir Vestlendingar
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
TIL SÖLU
Á döfinni
23. janúar. Drengur. Þyngd
2.666 gr. Lengd 47 sm. Foreldrar:
Bryndís Helgadóttir og Anton
Máni Svansson, Reykjavík.
Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir.
6. febrúar. Stúlka. Þyngd 2.780
gr. Lengd 49 sm. Foreldrar: Hafdís
Inga Ólafsdóttir og Bjarni Þór
Ævarsson, Akranesi. Ljósmóðir:
Hafdís Rúnarsdóttir.
9. febrúar. Drengur. Þyngd 3.796
gr. Lengd 51,5 sm. Foreldrar:
Erna Hafnes Magnúsdóttir
og Ásmundur Haraldsson,
Akranesi. Ljósmóðir: G. Erna
Valentínusdóttir.
12. febrúar. Drengur. Þyngd
4.252 gr. Lengd 54 sm. Foreldrar:
Lára Kristín Jóhannsdóttir og
Karl Óskar Harðarson, Reykjavík.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
12. febrúar. Stúlka. Þyngd
4.218 gr. Lengd 54 sm. Foreldrar:
Auður Hafstað Ármannsdóttir
og Böðvar Pétursson,
Kirkjubæjarklaustri. Ljósmóðir:
Hafdís Rúnarsdóttir.
Pennagrein
Eins og má heyra í fréttum fjölmiðla
þá er mikið að gerast á fasteigna-
markaðinum, eftirspurnin mikil en
framboð lítið, sannkallaður „selj-
endamarkaður“.
Hækkandi
fasteignaverð
Bara á síðastliðnu ári þá hafa eign-
ir á Akranesi og víðar hækkað tölu-
vert í verði og er í sumum tilfellum
talað um 20% hækkun. Fyrir nokkr-
um árum þá áttu sumir kaupendur
ekki möguleika að fjármagna kaup
sín með láni frá lífeyrissjóði, vegna
þess að þeir þurftu að veðsetja eignir
sínar upp fyrir þau mörk sem lífeyr-
issjóðirnir hafa.
Verðhækkunin undanfarið gef-
ur þeim sem skulda í eignum sín-
um tækifæri til endurfjármögnun-
ar þ.e. að taka ný hagstæðari lán í
stað þeirra gömlu með betri kjörum
hvort sem er heldur, hjá banka eða
lífeyrissjóði.
Mismunandi
lánakjör
Hámarkslán fjármálastofnana og líf-
eyrissjóða fyrir svokölluð íbúðalán
er mismunandi en það miðast við
hlutfall af markaðsverði/söluverði
eða fasteignamati, allt upp í 85%.
Síðan eru til undantekningar við
fyrstu kaup og þá getur veðhlutfall-
ið farið upp í 90%. Lífeyrissjóðirnir
eru með kröfur um lægra veðhlutfall
en bankarnir í flestum tilfellum (al-
gengt 65-75%).
Hjá sumum er lánunum skipt eftir
sérstökum reglum í „íbúðalán I og
íbúðalán II“, „grunnlán og viðbótar-
lán“ og er þá seinna lánið með hærri
vöxtum. Sumir hafa bara eitt lán.
Mismunandi hátt „þak“ er á láns-
fjárhæð. Það er t.d. kr. 30.000.000,-
hjá Íbúðalánasjóði.
Vextir af lánunum eru líka mis-
munandi auk þess sem hægt er að
velja um verðtryggð og óverðtryggð
lán eða bland af hvoru tveggja.
Lægri
lántökukostnaður
Lántökugjald eru mismunandi eft-
ir stofnunum. Ný lög ganga í gildi
1. apríl 2017 þess efnis að bannað
verður að tengja lántökugjald við
lánsfjárhæð. Nokkrir aðilar hafa
breytt þessu hjá sér og eru að rukka
frá 50.000 til 65.000 kr.
Búið að fella niður stimpilgjöld
af lánum (var 1,5%) nú þarf bara að
greiða fyrir þinglýsingu á skulda-
bréfinum sem er kr. 2.000.
Auðvelt er að nálgast allar upp-
lýsingar á heimasíðum viðkomandi
stofnana.
Það er augljóst að það þarf að
skoða vel hvaða möguleikar eru í
boði þegar hugað er að endurfjár-
mögnun. Vonumst við til að þessar
upplýsingar gagnist einhverjum til
að koma sínum fjármálum í betri
faraveg.
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Ragnheiður Rún Gísladóttir
Höf. eru löggiltir fasteignasalar hjá
Fasteignamiðlun Vesturlands ehf.
Nú er tækifæri til að endur-
fjármagna óhagstæð lán
Markaðstorg
Vesturlands
Skráðu SMáauglýSinguna
á www.SkeSSuhorn.iS
fyrir klukkan 12.00
á þriðjudöguM