Skessuhorn - 08.03.2017, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 7
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Kosningar VR
eru hafnar
Nú er komið að því að félagsmenn VR velji formann og stjórn
fyrir kjörtímabilið 2017 til 2019.
Hægt er að kjósa til hádegis þriðjudaginn 14. mars á vr.is.
Nýttu rétt þinn og hafðu áhrif!
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Næstkomandi föstudag, þann 10.
mars milli klukkan 10 og 12, verð-
ur Háskóladagurinn í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi.
Þar munu allir háskólar landsins
kynna námsleiðir sínar, sem eru
yfir 500 talsins, og námsráðgjaf-
ar og nemendur verða á staðnum.
„Kynningin hér á Akranesi tókst
frábærlega í fyrra og því erum við
sérstaklega spennt að koma aft-
ur,“ segir Hjördís Guðmunds-
dóttir, verkefnastjóri Háskóla-
dagsins í samtali við Skessuhorn.
Hún segir að allir séu velkomn-
ir að kíkja við á kynninguna. „Við
viljum gjarnan að allir þeir Vest-
lendingar sem hafa áhuga á há-
skólanámi, hvort sem þeir eru
framhaldsskólanemendur eða búa
á svæðinu, mæti og kynni sér það
sem er í boði. Það kemur á óvart
hve fjölbreytileikinn er ótrúlega
mikill í háskólanámi hér á landi,
en hægt er að velja úr yfir 500
námsleiðum í sjö háskólum.“
Hjördís segir að heimsóknin
á Akranes gefi einnig þeim sem
mæta tækifæri til að hitta náms-
ráðgjafa, kennara, starfsmenn og
nemendur háskólanna svo þeir
geti tekið upplýsta ákvörðun um
námsvalið, sem vissulega er mjög
stór ákvörðun. „Allir háskólar á
Íslandi standa í sameiningu fyr-
ir Háskóladeginum sem fór fram
í Reykjavík síðasta laugardag.
Núna tekur við að heimsækja átta
skóla á sjö stöðum utan höfuð-
borgarsvæðisins og er heimsókn-
in á Akranes hluti af því,“ segir
Hjördís. Ástæða er til að geta þess
að í fyrra var Háskóldagurinn
einnig haldinn í FSN í Grundar-
firði en verður ekki þar að þessu
sinni.
mm
Háskóladagurinn haldinn á
Akranesi á föstudaginn
Fjölmenni mætti á kynningu íslensku háskólanna á Akranesi í fyrra. Ljósm. arg.
Háskólarektorar landsins ásamt Guðna Th Jóhannessyni forseta sem setti Há-
skóladaginn 2017. Nú verður flakkað með kynningarnar í átta framhaldsskóla
dagana 7.-29. mars.
Á Háskóladeginum í Reykjavík um
síðustu helgi kynntu allir háskólarnir
námsframboð sitt. Hér eru fulltrúar
Háskólans á Bifröst, þau Ingi Gunnar
Kristbergsson viðskiptafræðinemi og
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir námsráð-
gjafi á góðri stund.
Leikdeild Umf. Skallagríms kynnir gamanleikinn:
Saumastofan
Höfundur: Kjartan Ragnarsson- Leikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson
Sýnt í Lyngbrekku
6. sýning mmtudaginn 9. mars kl. 20:30
7. sýning laugardaginn 11. mars kl. 20:30
8. sýning sunnudaginn 12. mars kl. 20:30
9. sýning mmtudaginn 16. mars kl. 20:30
10. sýning föstudaginn 17. mars kl. 20:30
Lokasýning laugardaginn 18. mars kl. 20:30
Miðapantanir í síma 846 2293 og leikdeildskalla@gmail.com
Miðaverð kr. 3.000 - Veitingasala á sýningum - posi á staðnum