Skessuhorn - 08.03.2017, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 23
Randi Holaker á Skáney hafði sig-
ur í hnífjöfnum fimmgangsúrslitum
Vesturlandsdeildarinnar í hesta-
íþróttum, en keppt var á föstudag-
inn í Faxaborg. Lið Leiknis/Skán-
eyjar hafði sigur í liðakeppninni
þriðja mótið í röð og bætir því enn
við forystu sína.
Í einstaklingskeppninni urðu úr-
slit þessi:
1. Randi Holaker - Þytur frá Skán-
ey - 6,38
2. Konráð Valur Sveinsson - Þel-
dökk frá Lækjarbotnum - 6,36
3. Siguroddur Pétursson - Prestur
frá Borgarnesi - 6,31
4. Anna Dóra Markúsdóttir - Urð
frá Bergi - 5,81
5. Haukur Bjarnason - Gýgur frá
Skáney - 5,45.
Staða efstu einstaklinga
Siguroddur Pétursson leiðir enn
einstaklingskeppnina. Sem fyrr eru
þau svo í þéttum pakka fyrir neðan
hann liðmenn Leiknis/Skáneyjar.
Enn er mögulegt að næla sér í 30
stig til viðbótar og því ljóst að hver
sem er getur unnið deildina.
1. Siguroddur Pétursson - 19 stig
2. Konráð Valur Sveinsson - 17
stig
3. Randi Holaker - 16 stig
4. Haukur Bjarnason - 14 stig
5. Berglind Ragnardóttir - 10 stig
Staðan í liðakeppninni þegar
mótaröðin er hálfnuð.
1. Leiknir/Skáney - 140 stig
2. Berg/Hrísdalur - 117 stig
3. Fasteignamiðstöðin - 78,5 stig
4. Snókur/Cintamani - 77 stig
5. Gufudalur/Arnbjörg/Söðulsholt
- 68,5 stig
6. KB/Fígaró/Mosi ehf. - 32 stig.
mm
Randi sigraði í fimmgangskeppninni
Randi Holaker á Þyt frá Skáney. Ljósm. iss.
Tengdamæðgurnar Margrét
Magnúsdóttir á Hvítanesi í Hval-
fjarðarsveit og Þorbjörg Eva Ell-
ingsen ætla í sumar að bjóða upp
á sveitanámskeið á Hvítanesi fyrir
börn á aldrinum 6 til 12 ára. Þar fá
börn að kynnast lífinu í sveitinni;
umgangast dýr, fara í fjöruferð, á
hestbak, í leiki og fleira skemmti-
legt. Námskeiðin verða sett þann-
ig upp að þau verða á virkum dög-
um frá klukkan 8 til 17 og flest
þeirra standa yfir í fimm daga, en
þó verður það fyrsta og síðasta í
níu virka daga. Boðið verður upp
á systkinaafslátt. Innifalið verður
morgunkaffi, heitur hádegismatur
og síðdegiskaffi.
Fyrsta námskeiðið hefst 6. júní
og síðan verða þau haldin reglu-
lega fram í ágúst.
mm
Bjóða upp á sveitanámskeið á Hvítanesi
Margrét á Hvítanesi hefur áralanga reynslu í að halda leikjanámskeið í sveitinni.
Á einu þeirra sem haldið var 2004 kom Þorbjörg Eva sjálf á námskeið en hún átti
síðar eftir að verða tengdadóttir Margrétar.
Um helgina voru æfingabúðir í
frjálsum íþróttum á vegum Sam-
Vest samstarfsins haldnar á Laug-
um í Sælingsdal. 32 krakkar mættu
frá fjórum félögum; HSS, Skipa-
skaga, Víkingi Ólafsvík og UDN.
Æfingabúðirnar gengu mjög
vel að sögn forsvarsmanna sam-
starfsins. Þeir Hermann og Kor-
mákur frá FH sáu um æfingarn-
ar á laugardeginum og Eva Krist-
ín frá Víkingi Ólafsvík, Sigríð-
ur Drífa frá HSS og Kristín Halla
frá Umf. Grundarfirði sáu um æf-
ingarnar á sunnudeginum. Kennd
voru grunnatriði í spretthlaupi,
hástökki, langstökki, langstökki
án atrennu og kúluvarpi. Einnig
fengu krakkarnir að kynnast fjöl-
breyttum styrktaræfingum.
mm
Æfingabúðir í frjálsum
haldnar á Laugum
Miðvikudaginn 1. mars síðastlið-
inn undirrituðu Ragnheiður Guð-
mundsdóttir, f.h. körfuknattleiks-
deildar Skallagríms og Óskar Sig-
valdason, f.h. Borgarverks, sam-
starfs- og styrktarsamning til
þriggja ára. Undirrituðu þau samn-
inginn í hálfleik leiks Skallagríms og
Grindavíkur sem mættust í Dom-
ino‘s deild kvenna í Borgarnesi.
„Borgarverk hefur verið og verður
nú áfram einn af öflugustu styrktar-
aðilum körfuknattleiksdeildarinnar
og er það deildinni mikið fagnaðar-
efni að þessi undirskrift hafi nú átt
sér stað,“ segir í tilkynningu á Fa-
cebook-síðu Skallagríms.
kgk
Borgarverk styrkir Skallagrím
Nýverð var Guðmundur M. Skúla-
son reiðkennari með námskeið í
nýju reiðskemmunni í Ólafsvík.
Var hann með sýnikennslu þar
sem hann fór yfir þjálfunarferl-
ið frá frumtamningu til reiðhests.
Sömu helgi voru einstaklingstímar
í reiðmennsku auk þess sem boð-
ið var upp á barnanámskeið. Þátt-
takendur voru mjög ánægðir með
námskeiðið og var mikill áhugi að
fá aftur slíkt námskeið í vor. Þarna
sannaðist vel notagildi nýja húss-
ins en það var hesteigendafélag-
ið Hringur í Ólafsvík sem réðist í
byggingu reiðskemmunnar síðast-
liðið haust og var húsið að stórum
hluta byggt í sjálfboðavinnu félags-
manna.
þa
Nýja reiðskemman
sannar gildi sitt
Keppt var í KB móta-
röðinni í liðinni viku.
Skessuhorni hafa ekki
borist úrslit mótsins,
en myndir sem sýna
bræðurna Ísólf og Þor-
geir Ólafssyni sem sigr-
uðu sitthvorn flokkinn
á mótinu. Ísólfur í ung-
mennaflokki og Þorgeir
í unglingaflokki. Báðir
kepptu þeir á hestum frá
Leirulæk á Mýrum.
mm/ Ljósm. iss.
Bræður sigursælir á
hrossum frá Leirulæk