Skessuhorn - 05.04.2017, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 20176
Innbrot og of
hraður akstur
VESTURLAND: Í dagbók lög-
reglunnar á Vesturlandi kemur
fram að 25 ökumenn voru kærð-
ir fyrir of hraðan akstur í vikunni
sem leið. Einnig voru afskipti
höfð af nokkrum ökumönn-
um sem voru ekki með bílbelt-
in spennt. Einn ökumaður var
tekinn úr umferð vegna gruns
um ölvun við akstur og annar til
reyndist sviptur ökuréttindum.
Fjögur umferðaróhöpp komu
inn á borð lögreglu og voru
þau öll án teljandi meiðla. „Vilj-
um við öryggisins vegna hvetja
fólk til að spenna alltaf bílbelt-
in, jafnvel þó einungis sé ekið
innanbæjar eða um stutta leið,“
segir í tilkynningu frá lögreglu.
Loks var tilkynnt um innbrot í
nokkra sumarbústaði í Skorra-
dal í liðinni viku og eru þau mál
í rannsókn. -mm
Stofnun láti
umhverfi
njóta vafans
REYKHÓLASVEIT: Fugla-
vernd mótmælir harðlega fyr-
irætlun Vegagerðarinnar sem
mælir með að vegagerð um
Gufudalssveit fari um Teigs-
skóg. Eftirfarandi tilkynning
var send fjölmiðlum: „Fugla-
vernd leggst eindregið gegn
þeirri veglínu, sem Vegagerð-
in vill fylgja í Gufudalssveit.
Ákvörðun Vegagerðarinnar
brýtur í bága við fjölmörg lög,
bæði lög um náttúruvernd sem
og lög um verndun Breiðafjarð-
ar, alþjóðlega samninga eins og
Bernar- og Ramsar-sáttmálana,
auk þess að snúa á Hæstarétt-
ardóm með málamyndabreyt-
ingum á þeirri veglínu sem
þeir voru gerðir afturreka með.
Fuglavernd hvetur Vegagerð-
ina að stíga inní nútímann, hlíta
áliti Skipulagsstofnunar og velja
ætíð þá leið sem hefur minnst
umhverfisáhrif, þrátt fyrir að
slík leið kunni að vera eitthvað
dýrari en aðrar leiðir. Stofnunin
á að láta umhverfið njóta vafans.
Fuglavernd skorar á ráðherra
samgöngu- og umhverfismála
að hlutast til um að Vegagerðin
endurskoði þessa afstöðu sína.“
-mm
Ekki einhugur
um argreiðslu
OR
RVK: Meirihluti stjórnar Orku-
veitu Reykjavíkur samþykkti á
fundi sínum á mánudagsmorg-
un tillögu til aðalfundar um
arðgreiðslu til eigenda að upp-
hæð 750 milljónir króna. Til-
lagan verður tekin fyrir á aðal-
fundi fyrirtækisins síðar sama
dag og samþykkt. Tveir fulltrú-
ar Reykjavíkurborgar í stjórn-
inni, borgarfulltrúarnir Kjart-
an Magnússon og Áslaug Frið-
riksdóttir, greiddu atkvæði gegn
tillögunni. Töldu þau að arð-
greiðsla brytu í bága við þau
arðgreiðsluskilyrði sem eigend-
ur fyrirtækisins hafa sett því.
„Er ljóst að vegna bágs fjárhags
Reykjavíkurborgar leggur Dag-
ur B. Eggertsson borgarstjóri
hart að stjórn Orkuveitunnar
að inna umrædda arðgreiðslu
af hendi, þótt það þýði að víkja
þurfi frá gildandi arðgreiðslu-
skilyrðum. Eru slík vinnubrögð
að sjálfsögðu með öllu óviðun-
andi,“ sögðu þau Kjartan og Ás-
laug í bókun um málið. -mm
Síðasta
mótið í KB
mótaröðinni
BORGARNES: Móta-
nefnd hestamannafélag-
anna Skugga og Faxa held-
ur síðustu keppni í KB
mótaröðinni laugardaginn
8. apríl í Faxaborg. Hefst
keppni klukkan 9:30, en
tímasetning er með fyrir-
vara um skráningar. Keppt
verður í fimmgangi F2 í 1.
flokki og ungmennaflokki
og Tölti T3 í barna-
flokki, unglingaflokki og
2. flokki. Skráningu líkur
fyrir miðnætti miðviku-
daginn 5. apríl. Skrán-
ing fer fram inná skrán-
ingakerfinu Sportfeng og
verður það hægt eftir laug-
ardaginn 1. apríl. Velja
þarf hestamannafélagið
Skugga sem mótshaldara.
Senda þarf kvittun fyrir
skráningunni á netfang-
ið motanefndsf@gmail.
com Nánari upplýsingar
verða birtar á Facebook-
síðu KB mótaraðarinnar.
Verðlaunaafhending fyrir
efstu knapa í einstaklings-
keppninni og liðakeppn-
inni verður strax að móti
loknu í reiðhöllinni Faxa-
borg. „Ef einhver hefur
áhuga á að panta stíu fyr-
ir hestana sína í reiðhöll-
inni Faxaborg fyrir mótið
er hægt að hafa samband
við Maríu Magnúsdóttir,
s. 899-5600.
-fréttatilk.
Félag eldri borgara á Akranesi og ná-
grenni hélt framhaldsaðalfund sinn
föstudaginn 31. mars. Fyrir fundin-
um lá að kjósa nýja stjórn þar sem
fráfarandi stjórn hafði boðað afsögn.
Viðar Einarsson ökukennari var kos-
inn formaður félagsins í stað Jóhann-
esar Finns Halldórssonar. Með laga-
breytingu var jafnframt fækkað í að-
alstjórn félagsins. Nú verða fimm í
aðalstjórn og fimm í varastjórn í stað
sjö aðalmanna og þriggja til vara.
Aðrir í aðalstjórn voru kosnir Jó-
hannes Ingibjartsson, Edda Elías-
dóttir, Sigrún Elíasdóttir og Georg
Einarsson. Stjórn á eftir að skipta
með sér verkum. Í varastjórn voru
kosin Bjarni Þóroddsson, Hanna
Rúna Jóhannsdóttir, Hilmar Björns-
son, Jónas Kjerúlf og Ólöf Gunn-
arsdóttir. Þá var á fundinum kosið í
nefndir og ráð og var umboð flestra
endurnýjað.
Viðar Einarsson nýr formaður
FEBAN segir að fundurinn hafi sam-
þykkt tvær ályktanir sem báðar snú-
ast um húsnæðismál. Annars vegar
var samþykkt að hafna hugmynd frá
Akraneskaupstað þess efnis að félagið
gangi til samstarfs við golfklúbbinn
Leyni um uppbyggingu félagsað-
stöðu sem þá yrði til húsa við Garða-
völl. „Við óskum að sjálfsögðu golf-
klúbbnum alls góðs, en stefna FEB-
AN nú er að halda áfram baráttu
fyrir uppbyggingu félagsaðstöðu við
Dalbraut 6 eins og til hefur staðið,“
segir Viðar. Hins vegar segir hann
að samþykkt hafi verið á fundinum
að mótmæla því að á næstu fjórum
árum leggur Akraneskaupstaðar ekki
krónu til nýframkvæmda vegna hús-
næðismála eldri borgara á Akranesi.
„Þessu mótmælum við. Við viljum að
bæjaryfirvöld geri ráð fyrir því í fjár-
hagsáætlun Akraneskaupstaðar að
við eldri borgarar höfum um það að
segja hvar framtíðar húsnæði félags-
ins verður og hvernig frá því verður
gengið. Þetta er búið að vera bar-
áttumál þessa félags frá upphafi. Það
er rétt að rifja það upp að á 25 ára
afmæli FEBAN keypti Akraneskaup-
staður húsið við Dalbraut 6 til að það
gæti þjónað sem félagsaðstaða eldri
borgara. Þáverandi bæjarstjóri lýsti
því yfir að þetta yrði húsið okkar,
en það yrði lagfært og breytt til að
þjóna félagsstarfi eldri borgara. Nú-
verandi bæjarstjórn kaus hins vegar
að kollvarpa þeim áætlunum. Ólafur
Adolfsson formaður bæjarráðs lýsti
því yfir við okkur á aðalfundinum
síðastliðinn föstudag að hann væri
ekki samþykkur því að núverandi hús
yrði gert að félagsaðstöðu FEBAN.
Ég met það því þannig að við erum á
byrjunarreit í baráttunni í húsnæðis-
málum félagsins. Það er því ljóst að
við ramman reip verður að draga, en
við eldri borgarar ætlum að hafa um
það að segja hvernig húsnæðismálum
okkar um ókomin ár verður háttað.
Þessi áherslubreyting félagsins end-
urspeglaðist með stjórnarskiptum í
FEBAN síðastliðinn föstudag,“ segir
Viðar Einarsson.
mm
Áherslur í húsnæðimálum FEBAN
leiddu til stjórnarskipta
Í Fjölbrautaskóla Snæfellinga hef-
ur um nokkurt skeið verið hægt að
hanna og smíða skartgripi undir
öruggri leiðsögn Trausta Tryggva-
sonar kennara. Þetta hefur mælst
vel fyrir og hafa margar gersem-
arnar verið smíðaðar í þessum tím-
um. Nemendur voru önnum kafn-
ir þegar að fréttaritari kíkti í heim-
sókn á dögunum enda um vanda-
samt verk að ræða.
tfk
Viðar Einarsson formaður FEBAN.
Skartgripasmíði
í FSN