Skessuhorn - 05.04.2017, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2017 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skallagrímur og Keflavík áttust við í
undanúrslitum úrslitakeppni kvenna í
körfuknattleik í vikunni. Fyrst mætt-
ust liðin í Keflavík á miðvikudaginn
var og þar sigruðu Skallagrímskonur
eftir jafnan og spennandi leik, 68-70.
Annar leikur liðanna fór síðan fram í
Borgarnesi á sunnudaginn. Var það
mikill baráttuleikur, líkamlega harð-
ur og varnarleikur aðalsmerki beggja
liða. Fór hann á endanum þannig að
Keflavík sigraði 59-74 og jafnaði því
metin í undanúrslitaeinvíginu.
Jafnt var á með liðunum í upp-
hafi leiksins á sunnudag, Keflvík-
ingar leiddu fyrstu mínúturnar áður
en Skallagrímur tók að sér að leiða
skömmu síðar. Staðan var jöfn að
upphafsfjórðungnum loknum 15-15.
Leikurinn var í járnum í byrjun ann-
ars leikhluta en þá náði Keflavík afar
góðum leikkafla og tíu stiga forskoti,
19-29. Skallagrímskonur svöruðu
fyrir sig og minnkuðu muninn í fimm
stig áður en flautað var til hálfleiks,
30-35 og leikurinn galopinn.
Baráttan og spennan sem einkennt
hafði fyrri hálfleik hélt áfram í þeim
síðari og bæði lið þurftu að hafa mik-
ið fyrir hlutunum. Sérstaklega réru
Skallagrímskonur þungan róður því
þær skoruðu aðeins tvö stig fyrstu sex
mínútur síðari hálfleiks. Á sama tíma
tókst gestunum að skora níu og kom-
ast tólf stigum yfir. Þá tóku Skalla-
grímskonur smá rispu og minnkuðu
muninn í sjö stig en komust ekki nær
að sinni því Keflvíkingar áttu loka-
orðið í þriðja leikhluta og leiddu
með ellefu stigum að honum lokn-
um, 41-52. Skallagrímskonur voru
ákveðnar sóknarlega í fjórða leikhluta
og minnkuðu muninn í sjö stig upp-
hafi hans. Á sama tíma virtust þær
hins vegar tapa einbeitingu í vörninni
og Keflvíkingar áttu því ekki í vand-
ræðum með að svara fyrir sig og auka
forskot sitt að nýju. Gestirnir fundu
ágætis takt sóknarlega og léku vel
í vörninni. Skallagrímskonur náðu
ekki að gera atlögu að forskotinu það
sem eftir lifði leiks og Keflavík vann
að lokum 15 stiga sigur, 59 -74.
Tavelyn Tillman var atkvæðamest
leikmanna Skallagríms og í raun sú
eina sem náði sér almennilega á strik
í stigaskori. Hún lauk leik með 29 stig
og tók þar að auki sjö fráköst. Aðr-
ar komust ekki í tveggja stafa tölu í
stigum skoruðum, en Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir lauk leik með níu stig,
átta fráköst og sex stoðsendingar og
Fanney Lind Thomas skoraði níu
stig einnig.
Ariana Moorer setti upp myndar-
þrennu fyrir Keflvíkinga; 16 stig, 18
fráköst og ellefu stoðsendingar en
Thelma Dís Ágústsdóttir var stiga-
hæst gestanna með 20 stig.
Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1 og
með sigrinum á sunnudag náði Kefla-
vík heimaleikjaréttinum að nýju.
Næsti leikur Skallagríms og Kefla-
víkur fer fram í Keflavík annað kvöld,
fimmtudaginn 6. apríl.
kgk
Hnífjafnt í viðureign
Skallagríms og Keflavíkur
Tavelyn Tillman leikur
á mótherja sinn í leik
Skallagríms og Kefla-
víkur á sunnudag.
Ljósm. Skallagrímur.
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnu-
kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni,
komst ekki í gegnum niðurskurð-
inn á Terre Blanche mótinu sem
fram fór í París um helgina. Valdís
glímdi við axlarmeiðsli sem gerðu
henni erfitt fyrir í mótinu. Varð hún
að láta af undirbúningi eftir fyrstu
níu holur æfingahringsins miðviku-
daginn fyrir mótið og hvíla öxlina
á fimmtudag, daginn fyrir mót. Á
fyrsta keppnishringnum á föstudag
spilaði hún á 80 höggum, átta yfir
pari vallarins og gekk illa á seinni
níu holunum, þeim sem hún hafði
aldrei spilað áður. Á öðrum hringn-
um, sem leikinn var á laugardag,
spilaði hún prýðilegt golf og lauk
leik á pari, 72 höggum. Það dugði
hins vegar ekki til þess að komast í
gegnum niðurskurðinn.
Mótið var hluti af LET Access
mótaröðinni sem er næststerkasta
atvinnumótaröðin Evrópu. Næstu
verkefni hjá Valdísi eru tvö mót á
LET Evrópumótaröðinni, sterk-
ustu atvinnumótaröðinni, síðar í
þessum mánuði. Það fyrra fer fram
í Marokkó dagana 13.-16. apríl og
að því loknu keppir Valdís í móti á
Spáni.
kgk
Valdís Þóra glímdi við
meiðsli í Frakklandi
Knattspyrnufélag ÍA hefur feng-
ið til liðs við sig Rashid Yussuf frá
pólska úrvalsdeildarliðinu Arka
Gdynia og mun hann leika með
liði Skagamanna í Pepsi deildinni
í sumar. Rashid er 26 ára gamall
Englendingur. Hann er örvfættur
miðjumaður sem getur jafnframt
leyst stöðu vinstri bakvarðar og
vinstri kantmanns. „Hann kom á
reynslu í síðustu viku og spilaði leik
í ævintýralega vondu veðri gegn
Stjörnunni. Það veður varð þó ekki
til þess að fæla hann frá,“ sagði
Gunnlaugur Jónsson léttur í bragði
í samtali við fotbolta.net. „Hann
stóð sig vel í leiknum og við höfum
fínar upplýsingar um hann auk þess
sem hann hefur fína reynslu.“
Rashid lék með Charlton í yngri
flokkum og á að baki einn leik með
U18 ára landsliði Englendinga.
Hann lék í fjögur ár með AFC
Wimbledon í ensku D-deildinni og
eftir stutt stopp á Möltu lá leiðin til
Arka Gdynia í Póllandi árið 2015,
en liðið lék þá í næstefstu deild.
Arka Gdynia fagnaði sigri í næst-
efstu í fyrra og komst upp í pólsku
úrvalsdeildina Ekstraklasa.
Eins og áður hefur verið greint
frá í Skessuhorni hafa Skagamenn
þegar samið við pólska miðvörðinn
Robert Ment-
zel og nú kemur
Rashid sömu-
leiðis frá pólsku
félagi. Í frétt
fotbolta.net er
greint frá því að
Skagamenn ætli
að halda áfram að
skoða liðsstyrk
frá Póllandi.
Skagamenn fóru
til Spánar í æf-
ingaferð um síð-
ustu helgi og
með þeim í för
var pólskur leik-
maður sem fór
með liðinu á
reynslu, en sá ku
geta spilað bæði
á kantinum og í
fremstu víglínu.
kgk
Íslandsmeistarar Snæfells léku
tvisvar gegn Stjörnunni í undanúr-
slitum úrslitakeppni kvenna í körfu-
knattleik í liðinni viku. Fyrst mætt-
ust liðin í Stykkishólmi þriðjudag-
inn 28. mars og síðan öðru sinni í
Garðabæ síðastliðinn laugardag.
Snæfellskonur sigruðu heimaleik-
inn sannfærandi, 93-78 og unnu
síðan öruggan sigur í Garðabæ,
70-86 eftir að hafa haft yfirhöndina
allan leikinn. Þær leiða því einvígið
með tveimur sigrum gegn engum
og eru komnar í vænlega stöðu fyr-
ir þriðja leik liðanna sem fram fer í
Stykkishólmi í kvöld, miðvikudag-
inn 5. apríl.
Nokkurt jafnræði var með lið-
unum í upphafi leiksins á laugar-
dag. Snæfell hafði þó undirtökin
en Stjarnan fylgdi fast á eftir. Þeg-
ar fyrsti leikhluti var rétt hálfn-
aður var staðan jöfn, 15-15. Eftir
það skellti Snæfell í lás og Stjarn-
an skoraði ekki fleiri stig í leikhlut-
anum. Á meðan skoraði Snæfell
átta og leiddi því 15-23 eftir upp-
hafsfjórðunginn. Stjarnan minnk-
aði muninn lítillega í upphafi ann-
ars leikhluta en það dugði skammt.
Snæfell kom forystu sinni fljótt upp
í tveggja stafa tölu og hélt Stjörn-
unni í þægilegri fjarlægð allt til
hálfleiks. Snæfell leiddi með ellefu
stigum í hléinu, 35-46.
Með snörpum leikkafla snemma
í síðari hálfleik náði Stjarnan að
minnka forskot Snæfells í fjögur
stig. En Íslandsmeistararnir voru
ekki á því að hleypa heimaliðinu
inn í leikinn. Snæfellskonur endur-
heimtu fyrra forskotið seint í þriðja
leikhluta og settu síðan í fluggírinn.
Áður en fjórðungurinn var úti voru
þær komnar með 19 stiga forskot,
50-69 og með unninn leik í hönd-
unum. Stjarnan reyndi að gera
áhlaup eftir miðjan lokafjórðung-
inn en það var brotið á bak aftur.
Þær minnkuðu muninn í tíu stig
þegar þrjár mínútur lifðu leiks en
nær komust þær ekki. Snæfell átti
lokaorðið og varði lokamínútum
leiksins í að innsigla 16 stiga sigur,
70-86.
Aaryn Ellenberg skoraði 31 stig
og tók ellefu fráköst fyrir Snæfell.
Bryndís Guðmundsdóttir var með
21 stig og Gunnhildur Gunnars-
dóttir var með tíu stig og sex stoð-
sendingar.
Í liði Stjörnunnar var Danielle
Rodriguez atkvæðamest með 33
stig, níu fráköst og níu stoðsend-
ingar.
Sem fyrr segir leiðir Snæfell ein-
vígið með tveimur sigrum gegn
engum. Sigra þarf þrjá leiki til að
komast áfram og Snæfell getur því
tryggt sér farseðilinn í úrslitaviður-
eignina með sigri í næsta leik lið-
anna. Sá fer fram í Stykkishólmi í
kvöld, miðvikudaginn 5. apríl.
kgk
Snæfell leiðir örugglega eftir
tvo sannfærandi sigra
Geta tryggt sér farseðil í úrslitin í kvöld
Gunnhildur Gunnarsdóttir fyrirliði og stöllur hennar í Snæfelli eru komnar í
vænlega stöðu fyrir þriðja leik liðanna sem fram fer í Stykkishólmi í kvöld.
Ljósm. úr safni/ sá.
ÍA semur við enskan miðjumann
Rashid Yussuff tekur á móti boltanum í leik með Arka Gdynia.