Skessuhorn


Skessuhorn - 05.04.2017, Page 8

Skessuhorn - 05.04.2017, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 20178 Vísa til sam- félagsábyrgðar LANDIÐ: Á fundi stjórnar Samtaka sjávarútvegssveit- arfélaga, sem haldinn var fimmtudaginn 30. mars, var m.a. rætt um þá stöðu sem upp var komin á Akra- nesi vegna fyrirhugaðra að- gerða HB Granda. Stjórn samtakanna bókaði eftir- farandi: „Í ljósi umræðu seinustu daga vill stjórn Samtaka sjávarútvegssveit- arfélaga lýsa yfir ánægju sinni með þá ákvörðun HB Granda um að fresta því að loka botnfiskvinnslu félags- ins á Akranesi og ganga til viðræðna við bæjarstjórn Akranesbæjar. Stjórnin leggur einnig áherslu á að jafn stórar ákvarðanir sem þessar séu ekki teknar án þess að búið sé að ræða við fulltrúa þess sveitar- félags sem um ræðir. Það að tæplega 100 starfsmenn fyrirtækisins og nærsam- félagsins þurfi að búa við þessa óvissu er óviðunandi ástand og verða útgerðar- fyrirtæki að horfa til sam- félagslegrar ábyrgðar sinn- ar þegar kemur að byggð- arlögum sem byggja allt sitt upp á sjávarauðlind- inni. Að gefnu tilefni vill stjórnin því einnig ítreka kröfu sína um að sjávarút- vegssveitarfélög fái hluta af veiðigjöldum til sín svo þau geti betur tekist á við ef slík áföll verða að veruleika.“ -mm Jafnrétti, virðing og fjölbreytileiki AKRANES: Mánudag- inn 27. mars var haldinn „þjóðfundur“ í Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akra- nesi. Tilgangur fundarins var að finna út hvaða gildi FVA ætti að hafa að leiðar- ljósi. Fundargestum, nem- endum og starfsmönnum, var skipt niður í 40 hópa og voru um níu manns í hverjum þeirra. Á mörg- um borðum skapaðist líf- leg umræða um raungildi og óskagildi skólans. Hver hópur valdi fimm gildi og þurfti að skilgreina fyr- ir hvað þau standa. Það komu fram margar góðar hugmyndir en niðurstað- an var skýr þegar kom að samantektinni. Ingrid Ku- hlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar, stjórn- aði fundinum og tók saman niðurstöður ásamt fulltrúa frá hverjum hópi. Jafnrétti hlaut flest atkvæði en þar á eftir komu virðing og fjöl- breytileiki. Í framhaldi af þessari vinnu verður unn- ið markvisst með hin nýju gildi og merkingu þeirra fyrir skólastarfið, segir í til- kynningu frá FVA. -mm Námskeið til þjálfunar í ferðaþjónustu LANDIÐ: Háskólinn á Bif- röst hefur ákveðið að koma til móts við aukningu í ferðaþjón- ustu með ýmsum námskeiðum. Fimmtudaginn 27. apríl næst- komandi fer af stað námskeið sem byggt er á erlendri hugmynd og kallast TTRAIN. Það er ætl- að fyrir fólk sem þjálfa starfsfólk innan ferðaþjónustufyrirtækja. „Á námskeiðinu kynnast þátt- takendur mismunandi kennslu- aðferðum og mikilvægi skapandi aðferða í námi og kennslu. Einn- ig er farið í gegnum leiðtoga- hlutverk starfsþjálfans og hvern- ig hægt sé að hvetja starfsfólk til þátttöku og ábyrgðar í sinni vinnu. Samhliða fræðslunni fá þátttakendur tækifæri til þess að skipuleggja og framkvæma þjálf- un á vinnustað þar sem aðferð- ir og hugmyndir af námskeiðinu eru notaðar. Þetta fyrirkomu- lag styrkir verðandi starfsþjálfa í sjálfstæðum vinnubrögðum und- ir handleiðslu,“ segir í kynningu á TTRAIN. Þjálfunin fer fram í sex lotum þar sem áhersla verður lögð á þjálfun ákveðinna hæfni- þátta undir handleiðslu kennara. Þrjár staðlotur fara fram í Reykja- vík og þá mæta þátttakendur í 6 klst. í senn. Þess á milli er gert ráð fyrir að þeir vinni sjálfstætt að verkefnum á vinnustað sem tengjast þeirra starfssviði. Þátt- tökugjald er 115.000 krónur og innifalið eru námsgögn, veiting- ar og handleiðsla kennara. Nán- ari upplýsingar á vef Háskólans á Bifröst. -mm Aflatölur fyrir Vesturland dagana 25.-31. mars Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes, 9 bátar. Heildarlöndun: 85.392 kg. Mestur afli: Eskey ÓF: 42.490 kg í fimm róðrum. Arnarstapi, 10 bátar. Heildarlöndun: 67.732 kg. Mestur afli: Bárður SH: 35.598 kg í fjórum löndunum. Grundarfjörður, 7 bátar. Heildarlöndun: 219.597 kg. Mestur afli: Hringur SH: 68.463 kg í einni löndun. Ólafsvík, 17 bátar. Heildarlöndun: 466.818 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarnason SH: 68.581 kg í fjórum róðrum. Rif, 13 bátar. Heildarlöndun: 411.496 kg. Mestur afli: Örvar SH: 93.118 kg í einni löndun. Stykkishólmur, 4 bátar. Heildarlöndun: 46.364 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 43.416 kg í tveimur löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Örvar SH - RIF: 93.181 kg. 26. mars. 2. Hringur SH - GRU: 68.483 kg. 28. mars. 3. Rifsnes SH - RIF: 51.163 kg. 29. mars. 4. Farsæll SH - GRU: 46.307 kg. 28. mars. 5. Grundfirðingur SH - GRU: 44.724 kg. 29. mars. -kgk Þessa stundina standa yfir fram- kvæmdir á útivistarsvæðinu á Breið á Akranesi. Verið er að koma fyr- ir tveimur litlum húsum í nágrenni Akranesvita. Annars vegar er um að ræða þjónustuhús með aðstöðu fyrir vitavörð og hins vegar sal- ernishús. Síðastliðinn fimmtu- dag var verið að grafa fyrir lögn- um inn í húsið, bæði rafmagns- og vatnslögnum. Framkvæmdirn- ar eru hluti af frekari uppbyggingu sem staðið hefur yfir á undanförn- um árum í samræmi við nýtt deili- skipulag og hönnun Landslags ehf. fyrir Breiðarsvæðið. Er þeim ekki lokið, því til dæmis stendur til að reisa skjólveggi kringum húsin og koma upp upplýsingaskiltum og merkingum á Breið. „Síðan stend- ur til að lagfæra vitann í maí, fara í múrviðgerðir og mála og gera hann eins og nýjan,“ segir Hilm- ar Sigvaldason vitavörður í sam- tali við Skessuhorn. „Þessar fram- kvæmdir allar eru æðislegt framtak og bænum til sóma,“ sagði Hilm- ar. kgk Þjónustuhúsi komið fyrir á Breið Þjónustuhúsið verður nær vitanum en salernishúsið fjær. Ljósm. Hilmar Sigvaldason. „Verði virðisaukaskattur á ferðaþjón- ustu tvöfaldaður eins og forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa boðað mun það hafa í för með sér grafalvarlegar afleiðingar fyrir fyrirtæki og starfsfólk í ferðaþjónustu um land allt,“ segir í ályktun frá fundi sem Samtök ferða- þjónustunnar boðuðu til síðastliðinn fimmtudag. „Afleiðingarnar verða al- varlegastar fyrir landsbyggðina sem á nú þegar undir högg að sækja þeg- ar kemur að ferðaþjónustu. Mikil gengisstyrking og kostnaðarhækkan- ir stefna nú þegar afkomu fyrirtækja í greininni í mikla hættu. Með boð- uðum skattahækkunum ríkisstjórn- arinnar versnar samkeppnishæfni Ís- lands til mikilla muna.“ Þá segir að ferðaþjónustan sé grunnstoð í íslensku atvinnulífi og með óyfirveguðum aðgerðum ríkis- stjórnarinnar sé vegið að framtíð- armöguleikum greinarinnar og ís- lensku efnahagslífi. „Ferðaþjónusta er í eðli sínu alþjóðleg atvinnugrein. Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki starfa því á alþjóðlegum markaði og í sam- keppni við erlenda áfangastaði þar sem ferðaþjónustan er almennt í lægri þrepum virðisaukaskattskerfis- ins. Það hefur sýnt sig að þau lönd sem eru t.a.m. með gististaði í efri skattþrepum hafa lotið í lægra haldi í samkeppni við aðra áfangastaði. Til- lögur um hækkun á virðisaukaskatti vega þannig alvarlega að samkeppnis- hæfni Íslands.“ Þá lýsa Samtök ferða- þjónustunnar yfir miklum vonbrigð- um með samráðsleysi stjórnvalda þegar kemur að eins umfangsmiklum breytingum og fyrirhugaðar hækk- anir eru. „Fjölmennur félagsfundur Samtaka ferðaþjónustunnar skorar á ríkisstjórnina að láta af áformum um hækkun virðisaukaskatts á íslenska ferðaþjónustu.“ mm Segja boðaða virðisaukaskattsbreytingu reiðarslag fyrir ferðaþjónustu Á þessari mynd sést hvernig virðisaukaskattsprósenta í ferðaþjónustu hér á landi mun fara úr að vera með því lægsta sem gerist í Evrópu og upp í þriðja efsta sætið. Einungis Danmörk og Rúmenía verða með hærra skatthlutfall. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Benedikt Jóhannesson fjármála- ráðherra kynntu á föstudaginn fyrir- ætlun ríkisstjórnarinnar um breyting- ar á virðisaukaskattskerfinu og öðrum sköttum. Breytingarnar voru kynntar sem fimm ára áætlun í ríkisfjármálum. Samkvæmt tilkynningu frá fjármála- ráðuneytinu verður sérstök áhersla lögð á uppbyggingu innviða og efl- ingu velferðarkerfisins. Stjórnvöld hyggjast einfalda skattkerfið, auka út- gjöld til heilbrigðis- og menntamála og greiða hratt niður skuldir. Breyt- ingar eiga að miða að því að einfalda skattkerfið og fækka undanþágum. Lagt er til að almenn skattprósenta virðisaukaskatts verði lækkuð frá 1. janúar 2019 í 22,5% í stað 24% nú. Frá 1. júlí 2018 verður virðisauka- skattur á ferðaþjónustu hins vegar hækkaður í efra skattþrep á öllu nema veitingaþjónustu sem áfram verður 11% í lægra skattþrepinu. Breyting á skattprósentu á að leiða til hærri skatttekna ríkissjóðs sem flýta á niðurgreiðslu skulda og skapa grundvöll fyrir lækkun vaxta. Þá verður stefnt að lækkun trygg- ingagjalds sem fyrirtæki greiða af launum starfsfólks, en ekki er þess getið hvenær eða hversu mikil sú lækkun gæti orðið. Loks er lagt til í fimm ára fjármálaáætlun ríkis- sjóðs að kolefnisgjald verði tvöfald- að, vörugjald lagt á bílaleigubíla en bankaskattur lækkaður. Á meðal þeirra verkefna sem rík- isstjórnin hyggst ráðast í er bygg- ing nýs Landspítala, stytta á biðl- ista, lækka kostnað sjúklinga, hækka greiðslur til foreldra í fæðingaror- lofi og hækka í skrefum frítekjumark vegna atvinnutekna eldri borgara. Þá á að stíga markviss skref til að leysa húsnæðisvandann og lögfesta not- endastýrða persónulega aðstoð. mm Verulegar breytingar boðaðar á skattkerfinu Ríkisstjórn Íslands á ríkisráðsfundi. Ljósm. forsætisráðuneytið.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.