Skessuhorn - 05.04.2017, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 201722
Fimleikafélag Akraness bauð upp á tvær vorsýningar í Íþrótta-
húsinu við Vesturgötu síðastliðinn laugardag. Sérstök ástæða
er fyrir félagið til að fagna því nú hefur bæjarstjórn Akraness
samþykkt að hefja byggingu nýs fimleikahúss við Vesturgötu.
Um leið mun aðstaða þessa fjölmenna íþróttafélags batna til
mikilla muna. Fullt var út úr dyrum á báðum sýningunum.
Þar sýndu iðkendur frá félaginu tilfinningar, eða svokallað-
an tilfinningarússibana, í ólíkum atriðum. Hópunum var lita-
skipt eftir tilfinningum, allt frá gleði og til sorgar. Danshöf-
undur var Stefanía Sól Sveinbjörnsdóttir. Krakkarnir túlk-
uðu tilfinningaskalann með dansi, leik og æfingum á gólfi og
áhöldum. Þetta var breyting frá síðari árum en félagið hefur
fært upp ólíkar sýningar á borð við Lísu í Undralandi, Pétur
Pan auk sirkussþema. Ljós og hljóð sköpuðu afar skemmtilega
stemningu og gleðin skein úr hverju andliti. Sýningarnar voru
félaginu til mikils sóma.
Meðfylgjandi myndir tók Guðmundur Bjarki Halldórsson á
sýningunum. mm
Stórsýning Fimleikafélags Akraness