Skessuhorn - 05.04.2017, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 201726
Hvað getur Ísland tekið á
móti mörgum erlendum
ferðamönnum árlega?
Spurning
vikunnar
(Spurt í KB í Borgarnesi)
Hallur Pálsson:
„Eins og er tveimur milljónum.
Við getum þó tekið á móti fleir-
um ef ríkið stendur sig betur.“
Guðsteinn Einarsson:
„Hef ekki hugmynd. Það ræðst
af skipulagi.“
Margrét Guðnadóttir:
„Við getum örugglega tekið á
móti 4-5 milljónum ef við hug-
um að innviðunum og dreifum
ferðamönnum um landið.“
Matthías Þorkelsson:
„Þeir eru of margir miðað við
núverandi skipulag.“
Vigfús Friðriksson:
„Ég held að við getum tekið
á móti jafn mörgum og kerfið
leyfir en það er sprungið í dag.“
Hnefaleikasamband Ís-
lands sendi 17 manna
landsliðshóp á Norður-
landamótið í Ólympískum
hnefaleikum sem haldið
var í Gilleleje í Danmörku
helgina 31. mars - 2 apríl.
Skagamennirnir Bjarni Þór
Benediktsson, keppandi
í 64 kg flokki ungmenna,
og Örnólfur Stefán Þor-
leifsson þjálfari voru með-
al þátttakenda. Bjarni Þór
lenti á móti mjög sterkum
andstæðingi frá Svíþjóð.
Sá er margfaldur Svía-
meistari í sínum þyngdar-
flokki og með meira en 50
viðureignir undir beltinu.
Bjarni var að keppa sinn
sjöunda bardaga á ferlin-
um, en hafnaði engu að
síður í 3.-4. sæti og hlaut
brons verðlaun að launum.
Á myndinni er Bjarni Þór
ásamt Örnólfi. þit
Hlaut bronsverðlaun á Norður-
landamóti í hnefaleikum
Fimmtudaginn 30. mars var 96. árs-
þing Ungmennasambands Dala-
manna og Norður-Breiðfirðinga
haldið í Tjarnarlundi í Saurbæ í Döl-
um. Sérstakur gestur á ársþinginu
var Hrönn Jónsdóttir, stjórnarmað-
ur í UMFÍ, en þar afhenti hún þeim
Arnari Eysteinssyni og Þórði Ingólfs-
syni starfsmerki UMFÍ fyrir störf í
þágu hreyfingarinnar.
Arnar hefur verið formaður Ung-
mennafélagsins Stjörnunnar um ára-
bil. Hann á sæti í framkvæmdaráði
SamVest og hefur lengi átt sæti í
framkvæmdaráði. Þá er hann fulltrúi
í samstarfsnefnd ungmennafélaganna
í Dalabyggð sem sér um allt íþrótta-
starf UDN í sveitarfélaginu fyrir
hönd ungmennafélaganna þar.
Þórður Ingólfsson hefur verið for-
maður Hestamannafélagsins Glaðs
síðastliðin fimm ár. Þar áður var hann
til margar ára ritari félagsins og einn
þeirra sem þróaði Sportfeng, skrán-
ingarforrit Landsambands hesta-
manna. Hann er jafnframt formað-
ur tölvunefndar LH, sér um heima-
síðu Glaðs auk annarra starfa fyrir
félagið.
kgk
Arnar og Þórður sæmdir
starfsmerki UMFÍ
Hrönn Jónsdóttir sæmdi þá Arnar Eysteinsson og Þórð Ingólfsson starfsmerki
UMFÍ á ársþingi UDN.
Ljósm. UMFÍ.
Síðastliðinn fimmtudag endur-
nýjuðu Golfklúbburinn Leynir
og Íslandsbanki Akranesi sam-
starfssamning þess efnis að bank-
inn styðji við barna- og unglinga-
starf golfklúbbsins. Magnús D.
Brandsson, útibússtjóri Íslands-
banka á Akranesi og Guðmund-
ur Sigvaldason, framkvæmdastjóri
Leynis, skrifuðu undir samning-
inn. „Íslandsbanki hefur til margra
ára stutt vel við barna- og ung-
lingastarf félagsins en samstarfs-
aðilar af þessu tagi eru afar mik-
ilvægir þegar kemur að uppbygg-
ingu á slíku starfi og færir Golf-
klúbburinn Leynir Íslandsbanka
kærar þakkir fyrir,“ segir í tilkynn-
ingu á vef Leynis.
kgk
Íslandsbanki og Leynir
endurnýja samstarfssamning
Á Sundþingi sem fram fór helgina
23.-24. mars síðastliðinn var
Trausti Gylfason formaður Sund-
félags Akraness sæmdur Gull-
merki Sundsambands Íslands. Það
fær hann fyrir faglega mótsstjórn
á Smáþjóðaleikum á Íslandi árið
2015 og störf í þágu sundíþróttar-
innar á Íslandi. Trausti hefur gegnt
starfi formanns SA síðan 2013.
Trausti stendur lengst til vinstri á
meðfylgjandi mynd. hhf
Trausti sæmdur gullmerki
Sundsambands Íslands
Frá undirritun samningsins. Magnús D. Brandsson, útibússtjóri Íslandsbanka á
Akranesi og Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis.
Ljósm. GL.
Sundfélag Akraness átti 37 unga og
efnilega sundmenn á aldrinum 8 -
11 ára á innanfélagsmóti sem fram
fór í Bjarnalaug á mánudaginn.
Krakkarnir stóðu sig allir vel og
þjálfararnir voru afar ánægðir með
framfarirnar sem hafa orðið síðan á
síðasta móti. Eftir mótið fengu allir
veðlaunapening og pizzu. Framtíð-
in er björt hjá Sundfélagi Akraness,
segir í tilkynningu.
hhf
Miklar framfarir í sundinu