Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 22. tbl. 20. árg. 31. maí 2017 - kr. 750 í lausasölu
Við viljum hafa
pláss fyrir allt
Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun
bilið í bílakaupunum.
Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á arionbanki.is
Loratadin
LYFIS
- fæst án lyfseðils
www.skessuhorn.is
Minnum á fríar
smáauglýsingar á
vef Skessuhorns
Sumarblóm
Matjurtir
Garðverkfæri
Mold
og margt fleira
Breyttur opnunartími:
Virka daga kl. 12-18
Laugardaga kl. 11-15
Skagabraut 17, AkranesVeðrið í vor og á þessum fyrstu vikum sumars hefur veirð milt fyrir okkur íbúa Vesturlands. Víða er gróður því vel á veg kominn miðað við að ennþá er maí. Stúlkan á
myndinni heitir Valentina Cara Þórhildardóttir. Hún var nýverið að hjálpa ömmu sinni í Stykkishólmi að hreinsa beðin og bar sig fagmannlega við verkið.
Ljósm. Eyþór Benediktsson.
Haldinn var opinn hádegisfundur
um ferðaþjónustu á Akranesi síð-
astliðinn föstudag. Viðstaddir voru
m.a. Gunnlaugur Grettisson, fram-
kvæmdastjóri Sæferða og Ólaf-
ur William Hand, upplýsinga- og
markaðsstjóri Eimskipa. Greindu
þeir frá fyrirhuguðum ferjusigl-
ingum Sæferða milli Akraness og
Reykjavíkur í sumar.
Gunnlaugur sagði frá því að Sæ-
ferðir hefðu samið við norskt fyr-
irtæki um leigu á ferjunni Tedno,
sem er 22,5 metra löng tvíbytna,
háhraðaferja sem tekur 112 farþega
í senn. Getur hún siglt á allt að 35
hnúta hraða en áætlað er að sigla
henni á 25 hnútum milli Akraness
og Reykjavíkur. Siglingin myndi
því taka um það bil hálfa klukku-
stund. Ferjan var smíðuð árið 2007.
Gunnlaugur fræddi fundarmenn
hins vegar um að siglingastofn-
un Norðmanna ætti eftir að leggja
blessun sína yfir leigu skipsins til
Íslands. Því væri ekki útséð hvenær
hægt væri að hefja siglingar milli
Akraness og Reykjavíkur. Kvaðst
hann vonast til þess að ferjan feng-
ist afgreidd á næstu dögum og hægt
yrði að hefja siglingar í byrjun júní.
Sjá nánar bls. 10. kgk
Styttist í ferjusiglingar á Akranes
Orkustofnun hefur kallað eftir and-
mælum Orku náttúrunnar vegna
meint brots á ákvæðum vatnalaga og
umhverfisskaða í Andakílsá af völd-
um fyrirtækisins, þegar þúsund-
um rúmmetra af aur var hleypt úr
uppistöðulóni Andakílsárvirkjun-
ar 15.-18. maí sl. Það er niðurstaða
Orkustofnunar að Orka náttúrunnar
hafi brotið þrjár greinar vatnalaga og
þannig með ólögmætum hætti valdið
tjóni á lífríki í Andakílsá og takmark-
að veiðimöguleika í ánni. „Orku-
stofnun tekur þó hvorki afstöðu til
þess mögulega tjóns né til skaða-
bóta, eftir atvikum landeigenda og/
eða Veiðifélags Andakílsár,“ segir í
tilkynningu frá Orkustofnun.
Orkustofnun mælir fyrir um að
Orka náttúrunnar færi umhverfi
Andakílsár til fyrra horfs, eins og
kostur er, á sinn kostnað og leggur
áherslu á að áætlun um úrbætur verði
skilað til Orkustofnunar eigi síðar en
30. júní nk. Orkustofnun mun taka
afstöðu til þeirrar áætlunar í sam-
ráði við Fiskistofu. Brot gegn ákvæð-
um vatnalaga geta varðað sektum. Í
ljósi alvarleika meintra brota, kemur
til álita að beita öðrum úrræðum, en
Orkustofnun frestar ákvörðun sinni
þar að lútandi, þar til andmæli Orku
náttúrunnar liggja fyrir. Sjá nánar
bls. 10. mm
Telja vatnalög hafa verið brotin