Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 5
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi á Akranesi
Bæjarstjórn Akraness samþykkti 23. maí s.l. að auglýsa
tillögu að breytingu á deiliskipulagi Æðarodda
skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingarsvæðið afmarkast af reiðvegi meðfram lóðum nr. 17,
41, 43, 45 og 47 við Æðarodda til suð- austurs, mörkum
náttúruverndarsvæðis til norðurs, mörkum Æðarodda 36 til
suð- vesturs. Í breytingunni felst m.a. að nh. lóðar breytist úr
0,7 í 0,76, afmörkuð er ný lóð Æðaroddi 38 fyrir hestagerði og
bílastæði, snúningsplan við enda götu er stækkað og breyting á
reiðgötu meðfram lóðum húsa nr. 41, 43, 45 og 47 við Æðarodda.
Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að
Stillholti 16-18, Akranesi frá og með 1. júní t. o.m. 14. júlí 2017,
og á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is.
Athugasemdir eiga að vera skriflegar og berast í
þjónustuver Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18
eða á netfangið skipulag@akranes.is.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sumarnámskeið barna
og unglinga 2017
Það er margt í boði fyrir börn og ungmenni á Akranesi í sumar.
Allar upplýsingar um námskeiðin er að finna á heimasíðu Akra-
neskaupstaðar, www.akranes.is. Einnig fer þar fram skráning.
Þorpið verður með eftirfarandi námskeið:
Leikjanámskeið Þorpsins fyrir börn fædd 2007-2011
Sumarnámskeið Gaman-Saman fyrir börn fædd 2004-2006
Securitas hf
Óskar eftir starfsfólki í
verslunarþjónustu Borgarnesi
Hæfniskröfur:
Þjónustulund•
Hæfni í mannlegum samskiptum•
Sjálfstæð vinnubrögð•
Stundvísi•
Góð íslenskukunnátta•
Um er að ræða 80% og eru konur jafnt sem karlar hvött til að sækja
um starfið á heimasíðu Securitas www.securitas.is.
Umsækjendur þurfa að vera búnir að ná tuttugu ára aldri. Securitas fer
fram á að allir starfsmenn leggi fram hreint sakavottorð og að þeir séu
reiðubúnir að leggja fram upplýsingar úr málaskrá lögreglu.
Securitas hf. er stærsta fyrirtæki landsins á öryggismarkaði, með um 500 starfsmenn.
Hjá Securitas starfar metnaðarfullt starfsfólk sem leggur áherslu á að veita frábæra
þjónustu. Securitas rekur útibú og starfsstöðvar víða um land en höfuðstöðvarnar
eru í Skeifunni 8 í Reykjavík.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Fyrir skemmstu bárust svör þriggja
ráðherra við spurningum Lilju Raf-
neyjar Magnúsdóttur alþingis-
manns VG í Norðvesturkjördæmi
um sjávarrof, sjávarflóð og sjó-
varnir. Sjávarrof hefur valdið land-
eyðingu víða um land og orði til
þess að minjar um búsetu og lífsbar-
áttu genginna kynslóða eru horfnar
eða í hættu og í sumum tilvikum á
þetta einnig við um mannvirki sem
nútímafólk hefur reist og notar.
Umhverfis- og auðlindaráðherra
greindi frá því í svari sínu að nú er
unnið að því að greina áhrif lík-
legra loftslagsbreytinga á hæð sjáv-
arborðs við Ísland og að endurmeta
þurfi hættu á sjávarflóðum og rofi
í ljósi þessa. Ýmis mannvirki, ný
og gömul, geta orðið fyrir tjóni af
völdum sjávarflóða og er því mikil-
vægt að hættan sem af þeim getur
stafað verði metin og greind.
Samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra greindi því frá nokkrum
sjóvarnarverkefnum sem eru á gild-
andi samgönguáætlun og er ólok-
ið sökum þess að ekki hafa feng-
ist fjárveitingar til þeirra. Ekki má
við svo búið standa enda geta verið
mikil verðmæti í húfi.
Á síðastliðnum fjórum árum voru
gerðar sjóvarnir á fimm stöðum í
því skyni að verja menningarminj-
ar fyrir sjávarrofi. Svar mennta- og
menningarmálaráðherra sýnir að
betur þarf að gera því vitað er um
fjölda minjastaða sem liggja und-
ir skemmdum vegna ágangs sjáv-
ar eða eru í fyrirsjáanlegri hættu. Í
svari ráðherra kemur einnig fram
að ætla megi að fyrir um 330 millj.
kr. mætti ljúka skráningu fornleifa á
ströndum landsins og tryggja þann-
ig að vitneskja um sögu og menn-
ingu landsmanna varðveitist enda
þótt minjarnar kunni að fara for-
görðum. Með skráningarstarfinu
fengist einnig grundvöllur til að
forgangsraða gerð sjóvarna sem
ætlað er að vernda menningarminj-
ar fyrir ágangi sjávar
ks/mm
Ráðherrar svöruðu fyrirspurnum
um sjávarrof og sjóvarnir
Frá rannsóknum vísindamanna á Gufuskálum fyrir nokkrum árum á fornum
verbúðum. Þrátt fyrir að reynt væri að raða sandpokum til varnar fornminjunum
gegn brimróti vetrarins eyddi brimið veturinn eftir miklu af þeim minjum sem
þarna sjást. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Ari Grétar Björnsson leigubílstjóri
mun hefja leigubílaakstur á Akra-
nesi frá og með morgundeginum, 1.
júní. „Leyfið tekur gildi á morgun og
þá get ég byrjað,“ segir Ari í samtali
við Skessuhorn. Hann hefur langa
reynslu af leigubílaakstri. „Ég hef
ekið leigubíl í Reykjavík síðan 2004
og er með flekklausan feril, þó ég segi
sjálfur frá. En ég þurfti að breyta til
af persónulegum ástæðum og vil haga
starfinu þannig að ég geti verið sem
mest í mínum heimabæ,“ segir hann.
Taxi 83
Leigubíllinn er af gerðinni Skoda
Superb og er dísilbíll, árgerð 2015.
„Bíllinn er í lægsta útblástursflokkn-
um og telst því vistvæn bifreið,“ seg-
ir Ari. Númeraplata bílsins vekur at-
hygli blaðamanns. Þar er einkanúm-
erið Taxi 83, en það er einmitt heiti
leigubílaþjónustunnar. „Ég var núm-
er 83 þegar ég ók á Hreyfli og fékk
mér það meira að segja sem einka-
númer. Það vildu margir fá þetta
númer þegar það losnaði. Sá sem
hafði það á undan mér á stöðinni var
kallaður Kóngurinn og númerið var
mjög eftirsótt,“ útskýrir Ari.
Ekur alla daga
Ari mun verða til taks alla daga vik-
unnar, frá morgni til kvölds. „Ég
sé fyrir mér að aka yfir daginn og
sinna fyrirfram pantaðri nætur-
vinnu. Ég verð niðri í bæ eitthvað
fram eftir kvöldi um helgar en ætla
ekki að keyra alla nóttina. Hinir bíl-
stjórarnir mega bara eiga það,“ seg-
ir Ari og brosir. „En það er von
mín að Skagamenn verði duglegir
að nýta sér þessa þjónustu, ekki síst
eldri borgarar. Ég hef trú á því að
það sé þörf fyrir þjónustu sem þessa
á Akranesi. Ég veiti afslátt eldri
borgurum og öryrkjum og mun að-
stoða með farangur þá sem eru að-
stoðar þurfi, er öllu vanur í þeim
efnum,“ segir hann. „Síðan vænti
ég þess auðvitað líka að túristum
muni fjölga hér í bæ, ekki síst þegar
ferja fer að ganga milli Akraness og
Reykjavíkur samhliða vaxandi fjölda
ferðamanna hingað til lands. Þegar
ferjan leggst að bryggju þá verð ég
niðri á höfn.“
Hvert á land sem er
Leigubílstjórinn mun að sjálfsögðu
aka fólki hvert á land sem er. „Ég má
sækja fólk hvert sem er á Vesturland
og mun vitanlega aka fólki þangað
sem það þarf að komast, hvort sem
það er innanbæjar eða út á Keflavík-
urflugvöll,“ segir hann. „Ég ræddi
við bankastjóra um daginn sem tók
leigubíl út á völl. Ástæðuna sagði
hann vera að maður væri nánast jafn
lengi að finna bílastæði við völlinn
og að keyra þangað. Þar fyrir utan
er auðvitað tekið gjald fyrir stæðið.
Þetta er alveg rétt hjá honum, það
er orðinn mikill vandi að fá stæði við
völlinn og sömuleiðis við umferðar-
miðstöð BSÍ þaðan sem flugrútan
fer. Ég er að sjálfsögðu reiðubúinn
að aka Skagamönnum og öðrum út
á völl eða í flugrútuna,“ segir Ari.
„Ég tek einnig að mér að aka brúð-
hjónum með tilheyrandi skreyting-
um eftir óskum fólks. Í slíkum til-
fellum þarf vart að taka það fram að
leigubílaskiltið verður að sjálfsögðu
tekið af bílnum,“ segir hann.
Allir ánægðir
Utan þjónustu við einstaklinga ætlar
Ari einnig að bjóða upp á reiknings-
viðskipti fyrir fyrirtæki og stofnan-
ir. „Fyrst ég ákvað að prófa að keyra
leigubíl hér á Akranesi ákvað ég að
gera þetta almennilega og bjóða upp
á alla þá þjónustu sem hugsast get-
ur,“ segir hann og leigubílstjórinn
lofar góðri þjónustu. „Ég hef aldrei
lent í því á mínum leigubílstjóraferli
að farþegi fari ekki ánægður út úr
bílnum,“ segir Ari Grétar að lok-
um.
Áhugasamir geta haft sam-
band við Ara og pantað bíl í síma
864-2100 eða á taxar@simnet.is.
kgk
Hefur leigubílaakstur á Akranesi
Ari Grétar Björnsson leigubílstjóri við bifreiðina, sem er af gerðinni Skoda Superb.