Skessuhorn


Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 201710 Haldinn var opinn hádegisfund- ur um ferðaþjónustu á Akranesi síðastliðinn föstudag. Viðstadd- ir voru m.a. Gunnlaugur Grett- isson, framkvæmdastjóri Sæferða og Ólafur William Hand, upplýs- inga- og markaðsstjóri Eimskipa. Greindu þeir frá fyrirhuguð- um ferjusiglingum Sæferða milli Akraness og Reykjavíkur í sumar. Gunnlaugur sagði frá því að Sæ- ferðir hefðu samið við norkst fyr- irtæki um leigu á ferjunni Tedno, sem er 22,5 metra löng tvíbytna, háhraðaferja sem tekur 112 far- þega í senn. Getur hún siglt á allt að 35 hnúta hraða en áætlað er að sigla henni á 25 hnútum milli Akraness og Reykjavíkur. Sigling- in myndi því taka um það bil hálfa klukkustund. Ferjan var smíðuð árið 2007. Gunnlaugur fræddi fundarmenn hins vegar um að siglingastofnun Norðmanna ætti eftir að leggja blessun sína yfir leigu skipsins til Íslands. Því væri ekki útséð hvenær hægt væri að hefja siglingar yfir Faxaflóann. Kvaðst hann vonast til þess að ferjan fengist afgreidd á næstu dögum og hægt yrði að hefja siglingar í byrjun júní. Þrjár ferðir virka daga Eins og gert var ráð fyrir í útboði vegna siglinganna verða farnar þrjár ferðir á dag, alla virka daga. Samkvæmt drögun að áætlunar- ferðum, sem sýnd var á fundin- um, mun ferjan leggja af stað frá Reykjavík kl. 6:30 að morgni og áætlað er að hún sigli frá Akranesi kl. 7:00. Að sögn Gunnlaugs hugsa stjórnendur fyrirtækisins að þess- ar ferðir snemma morguns nýtist fólki til að ferðast til og frá vinnu, ekki síst 7:00 ferðin frá Akranesi. Næstu ferðir eru almennar sigl- ingar, kl. 10:30 frá Reykjavík og til baka frá Akranesi kl. 11:00. Þriðja áætlunarferð dagsins verður farin 17:30 frá Reykjavík og til baka frá Akranesi kl. 18:00. Samkvæmt tilboði sem lagt hef- ur verið fram er gert ráð fyrir því að stök ferð kosti um 2500 krónur. Ferðin verði þó töluvert ódýrari ef keyptir eru 20 miðar, eða 875 kr. hver ferð. Börn, aldraðir og ör- yrkjar njóta síðan afsláttar. Fleiri ferðir koma til greina Gunnlaugur og Ólafur greindu frá því að mögulegt væri að bæta við aukaferðum til viðbótar við áætlunarferðirnar, hvort sem er á virkum dögum eða um helgar, til dæmis vegna viðburða. Kölluðu þeir eftir hugmyndum Akurnes- inga vegna slíkra ferða. „Inn á milli ferða á virkum dögum er dauður tími og þar erum við opin fyrir því að gera eitthvað. Við erum strax farin að skoða möguleika á auka- ferðum um helgar. Ferjan nýtist ekki meðan hún liggur bundin við bryggju og við viljum endilega fá að heyra ykkar hugmyndir,“ sagði Gunnlaugur og Ólafur tók í sama streng. „Til dæmis hefur kviknað sú hugmynd að fara skemmtisigl- ingu inn í Hvalfjörð. Við hlustum á allar hugmyndir sem upp koma. Þið þekkið bæinn ykkar best, vitið hvað hann hefur upp á að bjóða, hvað gestum gæti þótt áhugavert og einnig hvað hann þolir mikinn ágang,“ sagði Ólafur. „Við viljum vinna þetta í samstarfi við ykkur,“ sagði Gunnlaugur og bætti því við að þeir sæju mikil tækifæri í sig- lignum milli Akraness og Reykja- víkur til framtíðar. „Þó það sé mik- ið spretthlaup núna að koma sigl- ingunum af stað, því útboðið nær til sex mánaða, þá lítum við engu að síður á þetta verkefni sem lang- hlaup,“ sagði Gunnlaugur. Sjá nánar um fundinn á bls. 14. kgk Orkustofnun hefur kallað eft- ir andmælum Orku náttúrunn- ar vegna meints brots á ákvæð- um vatnalaga og umhverfisskaða í Andakílsá af völdum fyrirtækisins, þegar þúsundum rúmmetra af aur var hleypt úr uppistöðulóni Anda- kílsárvirkjunar dagana 15.-18. maí sl. Það er niðurstaða Orkustofnun- ar að Orka náttúrunnar hafi brotið þrjár greinar vatnalaga og þannig með ólögmætum hætti valdið tjóni á lífríki í Andakílsá og takmark- að veiðimöguleika í ánni. „Orku- stofnun tekur þó hvorki afstöðu til þess mögulega tjóns né til skaða- bóta, eftir atvikum landeigenda og/eða Veiðifélags Andakílsár,“ segir í tilkynningu frá Orkustofn- un. Þá mælir stofnunin fyrir um að Orka náttúrunnar færi umhverfi Andakílsár til fyrra horfs, eins og kostur er, á sinn kostnað og legg- ur áherslu á að áætlun um úrbætur verði skilað til Orkustofnunar eigi síðar en 30. júní n.k. Orkustofn- un mun taka afstöðu til þeirrar áætlunar í samráði við Fiskistofu. Brot gegn ákvæðum vatnalaga geta varðað sektum. Í ljósi alvarleika meintra brota, kemur til álita að beita öðrum úrræðum, en Orku- stofnun frestar ákvörðun sinni þar að lútandi, þar til andmæli Orku náttúrunnar liggja fyrir. Veitt í klak Á fundi með hagsmunaaðilum síð- astliðinn mánudag kom m.a. fram að eftir ítarlega skoðun á ánni telji sérfræðingar Hafrannsóknastofn- unar ráðlegt að reyna að hreinsa eða skola seti úr farvegi árinnar til að draga úr verstu áhrifum á lífríki hennar. Reynt verður að hreinsa leirinn sem lagst hefur yfir bú- svæði laxastofnsins í Andakílsá en hann er víða töluvert mikill, ekki síst í hyljum og ofantil í ánni. Al- gengt er að 30-60 cm þykkt leir- lag liggi á botninum. Til greina kemur að dæla setinu upp úr hylj- unum til að flýta fyrir því að áin hreinsi sig. Stefnt er að prófan- ir fari fram á hvaða aðferðir henti best til hreinsunar og í kjölfar- ið verði gerð aðgerðaáætlun um hreinsun árinnar. Sýnt er að mikið af seiðum hafi drepist í ánni, meginhluti seiða úr hrygningu frá því í fyrra. Sér- fræðingar segja greinilegt að lax- astofninn hafi orðið fyrir þungu höggi sem gæti valdið nokkurra ára lægð í veiði. Mælt er gegn því að fiskur sem veiðist í sumar verði aflífaður heldur lögð áhersla á að veiða fisk í klak til að byggja stof- ninn upp. Viðurkenna mistök Í tilkynningu frá Orku náttúrunn- ar í síðustu viku er viðurkennt að mistök hafi verið gerð að vakta ekki rennsli úr inntakslóni eftir að botnrás í stíflu var opnuð 15. maí. „Úrbótaáætlun ON mun liggja fyrir á næstu dögum og haft verð- ur samráð um framkvæmd henn- ar við vísindafólk, veiðiréttarhafa, sveitarfélagið og eftirlitsstofnanir. Þá verða einnig metnar aðgerðir til framtíðar, svo sem vöktun á áhrif- um til lengri tíma og samskipti, hvorttveggja við reglubundnar að- gerðir í rekstri virkjunarinnar og sérstakar framkvæmdir á borð við hreinsun sets úr inntakslóninu. Farið verður yfir vinnuferla innan ON í framhaldi af þessum mistök- um til að læra af þeim,“ segir í til- kynningu frá ON sem send var út 24. maí síðastliðinn. mm Orkustofnun telur ON hafa þríbrotið vatnalög Veiðistaður 4 í ánni er fullur af leir en ofantil í ánni er algengt að 30-60 cm þykkur leir liggi yfir botninum. Vonast til að hefja flóasiglingar í byrjun júní Gunnlaugur Grettisson, framkvæmdastjóri Sæferða. Sæferðir hafa samið við norskt fyrirtæki um leigu á ferjunni Tedno. Nú er þess beðið að norska siglingastofnunin leggi blessun sína á leigu ferjunnar til Íslands. Ferjan tekur 112 farþega og mun sigla á 25 hnúta hraða milli Akraness og Reykja- víkur. Ljósm. shipspotting.com.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.