Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 17
útlendinga í liðinu. Ejub segir að
það þurfi heilbrigða umræðu um
þetta mál. „Umræðan sem hefur
verið um útlendinga í fótboltan-
um hérna heima hefur verið ein-
hliða og það er eins og menn vilji
ekki kynna sér allar hliðar málsins.
Það eru kostir og gallar við að hafa
útlendinga í deildinni en þegar
þetta er rætt þarf að horfa til allra
hliða málsins; þetta er þörf um-
ræða. Ég kalla þó eftir heilbrigðri
umræðu þar sem þessi málefni eru
rædd af skynsemi og yfirvegun.
Ef ég tek bara mig sem dæmi; ég
hef lagt mikið til samfélagsins frá
fyrsta degi sem ég kom til lands-
ins. Ég fór strax að vinna, bæði
að spila fyrir HK og svo þjálfa
yngri flokka. Ég tel mig hafa gef-
ið samfélaginu mikið. Ég byggði
upp öflugt fótboltastarf hjá bæði
Sindra og Víkingi Ólafsvík og
menn hljóta að fagna slíkri upp-
byggingu. Við megum ekki bara
líta á þessa útlendinga sem annars
flokks fólk. Við verðum að taka al-
mennilega á móti öllum því marg-
ir setjast nefnilega hér að. Við vilj-
um að þessir einstaklingar komist
inn í samfélagið og líði vel, ann-
ars verður bara til samfélag í sam-
félagi og menn ná ekki að fóta sig.
Við erum t.d. með tvo útlendinga
í liðinu okkar núna, Tomasz Luba
sem kom til Ólafsvíkur 2010 og
Emir Dokara 2011, sem eiga hér
fjölskyldu og vinna. Það er mjög
jákvætt og hver er þá munurinn á
þeim t.d. og öðrum aðkomumönn-
um? Hverju skiptir það hvort Emir
og Luba koma frá útlöndum eða
Akureyri? Ólafsvík er lítill staður
og það munu alltaf vera aðkomu-
menn í liðinu hjá okkur á meðan
við erum í efstu tveimur deildun-
um og fyrir mér skiptir það ekki
máli hvort það eru útlendingar
eða aðrir. Ég vil samt að sem flest-
ir heimamenn séu í liðinu, í fram-
tíðinni ætti Víkingur að geta verið
með tíu menn í átján manna leik-
mannahóp sem væru uppaldir, það
væri frábært. En það tekur tíma,
uppbygging sem hófst fyrir fjórtán
árum með fjölgun iðkenda, það
að krakkar eru farnir að keppa við
önnur lið út um allt land og fleira
í þeim dúr fer að skila leikmönn-
um í meistaraflokk og nú þegar eru
nokkrir efnilegir í fjórða, þriðja og
öðrum flokk,“ segir Ejub. „Mér
leiðist þegar menn tala alltaf um
að árangur Víkings í gegnum árin
sé bara út af peningum og útlend-
ingum. Það er bara ekki satt. Árin
2003 og 2004 fór Víkingur upp
um tvær deildir og maður heyrði
oft að það yxi peningatré í Ólafs-
vík, en raunin var sú að aðeins
einn leikmaður fékk greidd laun
eitt sumarið. Það hafa strákar í lið-
inu spilað yngri landsleiki og sum-
ir farið í stærri lið. Við sjáum t.d.
Brynjar Gauta sem er fastamað-
ur í Stjörnunni og Þorsteinn Már
spilaði með KR nokkur tímabil.
Uppgangur Víkings liggur dýpra
en bara í þeim útlendingum sem
hingað hafa komið.“
Orðinn þreyttur á
aðstöðuleysi Víkings
Ejub segir að hann sé mjög stolt-
ur af þeim stað sem Víkingur er á
í dag en þó sé hann orðinn leið-
ur á stefnuleysi félagsins. „Fólk
sem hefur starfað í kringum knatt-
spyrnu í Ólafsvík hefur gert frá-
bæra hluti og gefið mjög mikið
af sér en til þess að félagið haldi
sér á þeim slóðum sem það hefur
verið á undanfarin ár en það þarf
ýmislegt að breytast. Ég er tals-
maður þess að nú sé löngu kom-
in tími á að bæjaryfirvöld, öll fyr-
irtæki á svæðinu og allir þeir sem
hafa áhuga á fótbolta og félaginu,
setjist niður og ákveði hvernig og á
hvaða stigi við viljum hafa Víking
Ólafsvík. Nú þarf að ákveða hversu
mikinn metnað við viljum leggja í
uppbyggingu yngri flokka starfs-
ins og síðan á að byggja umgjörð
í kringum það. Ef við viljum vera,
segjum í annari deild með karlalið-
ið, þá þarf bara búa til slíka um-
gjörð það er ekki flóknara en það.
Þetta átti að gerast fyrir löngu síð-
an. Aðstaða fyrir knattspyrnuiðkun
í Ólafsvík er hlægileg. Ef við vilj-
um vera með lið í efstu deild þurf-
um við aðstöðu til þess. Sama má
segja ef við viljum halda uppbygg-
ingu yngri flokka áfram. Meist-
araflokkur getur ekki tekið nein-
um framförum sem lið ef við erum
bara að spila á parketi allt árið og
ekki er hægt að bjóða börnunum
að æfa við þessar aðstöðu ef þau
halda áfram að vera svona mörg.
Aðstöðuleysið er þannig að þeir
sem æfa í yngri flokkum þurfa að
sitja hálfa æfinguna og horfa á því
það komast ekki allir á innanhús-
völlinn. Þetta er ekki boðlegt,“
segir Ejub. „Fótboltinn skiptir
miklu máli fyrir bæinn, hann bætir
mannlífið, er rosalega góð auglýs-
ing fyrir bæjarfélagið og býr til far-
veg fyrir börn í íþróttum. Það þarf
að fara horfa á heildarmyndina. Ég
vil frekar öfluga yngri flokka sem
halda áfram að blómstra í framtíð-
inni en bikarævintýri. Við þurfum
að fara hugsa lengra en bara að það
sé gaman á meðan vel gengur, það
þarf að hugsa til framtíðar og setja
niður markmið.“
Ejub segist líta björtum augum á
framtíðina og ætlar hann sér að ná
lengra á sínum þjálfaraferli. „Mér
og fjölskyldu minni hefur liðið vel
í Ólafsvík, börnin mín hafa alist
hér upp og hér er gott að búa. En
auðvitað vill ég komast sem lengst í
þjálfun, ég kláraði UEFA pro rétt-
indin í fyrra. Ég vona bara að ég
verði ennþá að þjálfa þegar ég verð
70 ára, sama hvar sem það verður
þá verð ég sáttur,“ segir Ejub að
endingu.
bþb
Víkingur hefur staðið framarlega í hópi íslenskra liða í innanhússfótbolta, að-
staðan skapar það. Hér er liðið Íslandsmeistarar í Futsal 2015. Efri röð frá vinstri:
Antonio Grave, Suad Begic, Tomasz Luba, Eyþór Helgi Birgisson, Steinar Már
Ragnarsson, Kristinn Magnús Pétursson og Ejub Purisevic þjálfari. Neðri röð frá
vinstri: Vignir Snær Stefánsson, Alfreð Már Hjaltalín, Brynjar Kristmundsson og
Emir Dokara. Ljósmynd: Gunnar Örn Arnarson.
Nú á vormánuðum var Birgir Leif-
ur Hafþórsson ráðinn íþróttastjóri
hjá Golfklúbbnum Leyni á Akra-
nesi. Birgir Leifur er fæddur og
uppalinn Skagamaður og spilaði
undir merkjum klúbbsins allt til
ársins 1997. Hann þekkir því vel
til en þessi reynslumikli kylfingur
starfar einnig sem atvinnukylfing-
ur samhliða því að vera íþróttastjóri
Leynis. Nú er Birgir Leifur staddur
í Sviss þar sem hann spilar á Euro-
pean Challenge Tour sem er áskor-
endamótaröð. Sem atvinnukylfing-
ur spilar Birgir Leifur undir merkj-
um GKG og að hluta til er nýja
starf hans samstarf GL og GKG.
Áður en Birgir hélt til Sviss sett-
ist blaðamaður Skessuhorns nið-
ur með honum til að ræða fyrstu
mánuðina hans í starfi íþróttastjóra
Leynis.
„Það er frábært að fá að starfa
fyrir uppeldisklúbbinn. Það hef-
ur verið tekið vel á móti mér, bæði
krakkarnir og starfsmenn klúbbs-
ins. Ég finn fyrir meðbyr alls stað-
ar á Skaganum vegna starfsins.
Þetta er mjög gaman,“ segir Birg-
ir Leifur þegar hann er inntur eft-
ir því hvernig fyrstu mánuðirnir
hafi verið. „Þegar ég ákvað að taka
þetta starf að mér heillaði metnað-
ur klúbbsins mig mikið. Það er gott
samstarf milli mín og stjórnarinnar
þar sem allir hlusta á alla og menn
geta komið hugmyndum sínum á
framfæri. Það er mjög mikilvægt að
allir séu að róa í sömu átt og að allir
séu með skýra sýn á framtíðina.“
Stemning og liðsheild
mikilvægur þáttur
Birgir Leifur telur mikilvægt að
klúbburinn sé samheldinn. „Það
sem ég vil leggja mesta áherslu á er
að það verði stemning, sterk liðs-
heild og allir séu velkomnir í klúbb-
inn; ungir sem aldnir, karlar og kon-
ur. Það sem er svo allra mikilvægast
í klúbbi eins og Leyni er að hlúa vel
að barna- og unglingastarfinu. Það
þarf að skapa góða umgjörð þar
sem er hvati fyrir yngri iðkendur að
stunda golf og ná langt. Það er frá-
bært fyrir félagið að vera með fyr-
irmynd eins og Valdísi Þóru Jóns-
dóttur innan klúbbsins sem krakkar
geta litið til,“ segir Birgir Leifur.
„Leynir hefur alltaf verið flottur
klúbbur og staðið sig vel en við vilj-
um efla hann enn frekar. Við erum
að sjá jákvæða þróun og hlutirnir líta
vel út núna. Fyrstu GSÍ mót sum-
arsins í unglingaflokki gengu vel;
það voru margir sem tóku þátt hjá
okkur, 14 kylfingar í tveimur mót-
um. Síðan skemmdi ekki fyrir að
kylfingunum gekk vel. Við komu-
st nokkrum sinnum á verðlaunapall
og fengum ein gullverðlaun þegar
Bára Valdís Ármannsdóttir vann
stúlknaflokkinn 15-18 ára. Það eru
margir efnilegir kylfingar á Akra-
nesi í dag,“ segir Birgir Leifur.
„Stelpugolf“
næsta mánudag
Birgir Leifur er spenntur fyrir
framhaldinu. „Við þurfum bara að
halda áfram að vinna að markmið-
um okkar og það er margt fram-
undan. Næsta mánudag verðum við
með viðburð sem kallast Stelpugolf
en þá ætlum við að bjóða öllum
konum, sama á hvaða aldri þær eru,
að koma og prófa golf. Við ætlum
einnig í júní að bjóða öllum stelp-
um yngri en 18 ára að koma og
prófa að æfa golf hjá okkur. Síðan
verðum við í sumar með golfleikj-
anámskeið fyrir krakka á aldrin-
um sex til tíu ára. Allt miðar þetta
að því að kveikja áhuga og kynna
sportið. Við viljum að allir viti að
þeir eru velkomnir í klúbbinn og fái
að vera hluti af sterkri liðsheild. Ég
er mjög spenntur fyrir framhald-
inu. Ég bý yfir töluverðri reynslu
sem ég vona að ég geti miðlað til
yngri iðkenda,“ segir Birgir Leifur
að endingu.
bþb
Vonast eftir því að geta miðlað
reynslu sinni til yngri iðkenda
Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri GL, og Birgir Leifur Hafþórsson, íþróttastjóri GL.
„Það þarf að skapa góða umgjörð þar sem er hvati fyrir yngri iðkendur að stunda golf og ná langt. Það er frábært fyrir félagið
að vera með fyrirmynd eins og Valdísi Þóru Jónsdóttur innan klúbbsins sem krakkar geta litið til,“ segir Birgir Leifur.