Skessuhorn


Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 20176 Framkvæmda- lokum seinkar AKRANES: Í Skessu- horni í síðustu viku var greint frá því að stefnt væri að framkvæmd- um við Jaðarsbakka- laug myndi ljúka fyrir Akranesleikana í byrjun júní. Nú er ljóst að það mun ekki takast og er nú stefnt að verklokum seinnihluta júní. Akra- nesleikarnir munu þó fara fram um næstu helgi enda laugin nothæf þótt pottarnir séu ekki full- gerðir. Laugin verður af þeim sökum lokuð al- menningi á meðan Akra- nesleikarnir eru haldn- ir dagana 3.-4. júní. Þá verður aðeins opið til kl. 13:00 föstudaginn 2. júní. Þreksalir verða opnir á meðan Akranes- leikarnir standa yfir en búningaaðstaða lokuð. -bþb Skráningu steinasafns lokið BORGARNES: Sá áfangi náðist í Safna- húsi Borgarfjarðar nú í maí að lokið var við að greina, mynda og skrá steinasafn Náttúrugripa- safns Borgarfjarðar. Auk þess er búið um gripina upp á nýtt og þeim kom- ið í geymslur. Þar með er Náttúrugripasafn Borg- arfjarðar fyrsta safn sinn- ar tegundar sem skrá- ir safnkost sinn í Sarp. Greiningu steinasafns- ins annaðist Unnur Þor- steinsdóttir, meistara- nemi í jarðfræði, en einnig komu Bryndís Ýr Gísladóttir og Rob As- kew að verkinu. Ljós- myndun, skráning og frágangur var í hönd- um Halldórs Óla Gunn- arssonar. Stærsti hluti safnsins er steinasafn sem Þórdís Jónsdóttir frá Höfn á Borgarfirði eystra gaf náttúrugripasafn- inu árið 1983 (sjá mynd). Steinasöfnun hóf Þór- dís fyrst á efri árum og þá einvörðungu í Hafn- arfjalli og fjörum. Marg- ir steinasafnarar lögðu þá leið sína í Hafnarfjall og gaukuðu þá að henni steini og steini. Sumar- krakka í Höfn sendi hún líka út af örkinni í steina- leit. Sjá nánar á safna- hus.is. -mm Hundaeigandi sviptur dýrum sínum SV-LAND: Matvæla- stofnun hefur tekið tvo hunda og átta hvolpa úr vörslu eiganda. Ástæða vörslusviptingar er óvið- unandi aðbúnaður og um- hirða, sinnuleysi og van- þekking til að halda dýr. Umdæmisskrifstofu Mat- vælastofnunar á Suðvest- urlandi barst í vor ábend- ing um tík á lausagangi. Hún var örmagna og við það að gjóta. Haft var upp á eiganda tíkurinnar sem hafði ekki gert neinar ráð- stafanir þegar tíkin, sem var hvolpafull og komin að goti, hvarf frá heim- ili sínu. Eigandinn reynd- ist eiga aðra tík sem hald- in var við óviðunandi að- búnað og umhirðu. „Skv. 38. gr. laga um velferð dýra getur Matvælastofn- un tekið dýr úr vörslu um- ráðamanns telji stofnun- in að úrbætur þoli enga bið, hafi dýrið orðið fyr- ir varanlegum skaða sök- um vanfóðrunar, harðýgi, slysa eða slæms aðbún- aðar. Matvælastofnun er heimilt að krefja umráða- mann dýra um kostnað af þvingunaraðgerðum sbr. 40. gr. laganna,“ segir í tilkynningu. -mm Byggðarráð Borgarbyggðar hef- ur samþykkt að bjóða níu mánaða börnum í sveitarfélaginu leikskóla- pláss eftir að fæðingarorlofi foreldra þeirra lýkur, frá og með haustinu 2017. Um er að ræða tilraun með þetta fyrirkomulag sem stendur yfir í tólf mánuði til reynslu. Á fundi byggðarráðs var lagt fyrir minnis- blað frá Önnu Magneu Hreinsdótt- ur, sviðsstjóra fræðslusviðs Borgar- byggðar, þar sem bent er á að fag- legt leikskólastarf sé kostur sem þykir eftirsóknarverðastur fyrir börn og foreldra eftir að fæðingar- orlofi lýkur. Leikskólar starfi sam- kvæmt lögum, reglugerðum og að- alnámsskrá þar sem meðal annars sé kveðið á um eftirlit sveitarfélaga og ráðuneytis með starfsemi leik- skóla. Þá bendi rannsóknir til þess að verulegur faglegur ávinningur sé fyrir yngstu börnin að vera í góð- um leikskólum með vel menntuðu starfsfólki og eigi það sérstaklega við um börn með seinkaðan þroska, börn sem búi við bága félagslega stöðu og börn af erlendum upp- runa. Vonandi strax í lok sumars Í fundargerð byggðarráðs kem- ur fram að stjórnendur leikskóla í sveitarfélaginu telji sig reiðubúna til að vista börn frá því að fæðingar- orlofi foreldra þeirra lýkur ef hús- næði, starfsmannahald og fjárhagur leyfir. Vel hafi gengið að aðlaga tólf mánaða börn í leikskólana og að deildarstjórar yngstu barna deilda hafi hist og deilt hugmyndum um starfsemi með svo ungum börnum. Að sögn Björns Bjarka Þorsteins- sonar, forseta sveitarstjórnar, snýst hugmyndin um að taka börnin inn á þeim stöðum þar sem aðstæður leyfa. „Sumir leikskólarnir eru full- ir og húsnæði leyfir ekki að bæta við fleiri börnum. En það er talinn möguleiki á öðrum stöðum. Sviðs- stjóri og fræðslunefnd ásamt leik- skólastjórum eru að fara yfir málin núna, hvar sé húsrúm og mannafli til að hefja þessa starfsemi í lok sumars.“ Hann segir skort á dag- mæðrum í sveitarfélaginu tvímæla- laust spila inn í þessa ákvörðun, enda hafi dagmæðraskortur ver- ið viðvarandi í Borgarbyggð. „Við höfum boðið upp á leikskóladvöl fyrir 12 mánaða börn undanfar- ið ár og það hefur gengið vel. Það er gert á öllum leikskólum þar sem pláss leyfir. Nú vitum við að það er til húsrúm á Hvanneyri og á Bifröst og það er verið að skoða málin hér í Borgarnesi með tilliti til að taka þessi yngri börn inn. Þar er málið statt í augnablikinu,“ útskýrir Björn Bjarki. Fjölga þarf starfsfólki á leik- skólunum til að hægt sé að fjölga börnum, enda er starfsmannafjöldi í takt við fjölda barna. „Ég vona svo sannarlega að þessi starfsemi fari í gang í lok sumars, það er markmið- ið. Út á það gengur þessi samþykkt byggðarráðs og vonandi tekst okk- ar fólki á okkar stofnunum að búa þannig um hnútana að þetta geti gengið.“ grþ Bjóða upp á leikskólapláss eftir fæðingarorlof Börn að leik á leikskólanum Hraunborg á Bifröst árið 2016.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.