Skessuhorn


Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 9 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum. S K ES SU H O R N 2 01 7 Félagsráðgjafi óskast til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar Félagsþjónusta Borgarbyggðar auglýsir lausa stöðu félagsráðgjafa. Um er að ræða 100% starf. Helstu verkefni og ábyrgð: o Greining og meðferð barnaverndarmála o Félagsleg ráðgjöf og fjárhagsaðstoð o Þjónusta og ráðgjöf við fólk með fötlun o Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu o Forvarnarstarf og fræðsla Menntun og hæfniskröfur: o Starfsréttindi sem félagsráðgjafi o Reynsla á sviði barnaverndar æskileg o Lipurð í mannlegum samskiptum o Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi o Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félagsráðgjafafélags Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum berist til borgarbyggd@borgarbyggd.is fyrir 1. júní 2017. Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir, félags- ráðgjafi í síma 433 7100, netfang: vildis@borgarbyggd. is og Anna Magnea Hreinsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 840-1522, netfang: annamagnea@borgarbyggd.is Stykkishólmsbær Hafnargötu 3 340 Stykkishólmur Sími: 433-8100 netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is KT.: 620269-7009 SK ES SU H O R N 2 01 7 Laust starf forstöðumanns Amtbókasafnsins Stykkishólmsbær auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns Amtbókasafnsins, stofnun mennta, menningar og upplýsingatækni. Starfið felur í sér allt sem viðkemur starfsemi bóka- og ljósmyndasafnsins, s.s. rekstur, mannaforráð, gerð fjárhagsáætlana, innkaup, grisjun og stjórnun. Umsækjendur þurfa að búa yfir skipulagshæfileikum, færni í mannlegum samskiptum og hafa reynslu af öflun og miðlun upplýsinga. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið námi í bókasafns- og upplýsingafræðum eða annarri háskólamenntun sem nýtist í starfi og hafi góða þekkingu á tölvum og möguleikum hugbúnaðar í safnaþjónustu. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Nýtt safnahús er að rísa við Grunnskóla Stykkishólms og og mun safnið starfa í nánu stjórnunar- og rekstrarlegu sambandi við skólann. Stefnt er að opnun nýja safnahússins á haustmánuðum. Umsóknarfrestur er til 20. júní 2017. Umsóknum skal skilað til Sturlu Böðvarssonar bæjarstjóra, Hafnargötu 3 eða á netfangið sturla@stykkisholmur.is, sem einnig veitir nánari upplýsingar um starfið ásamt Ríkharði Hrafnkelssyni rikki@stykkisholmur.is, sími433-8100. „Við munum opna Norðurá form- lega á laugardaginn næsta. Laxinn er kominn en við sáum laxa á Brotinu um helgina,“ sagði Einar Sigfús- son sölustjóri árinnar í samtali við Skessuhorn. Nýtt veiðihús verð- ur jafnframt vígt sama dag við ána en framkvæmdir hafa staðið yfir frá því veiðitímabilinu lauk í fyrrahaust. Hafa þær gengið vel og stækkunin sómir sér vel á einum fallegasta út- sýnisstað héraðsins, þaðan sem Lax- foss og Baula blasa við. „Þetta lítur vel út. Laxinn er komin og verið að klára húsið,“ sagði Einar. Sést hefur til laxa víða í ánum í Borgarfirði meðal annars í Þverá og Kjarará. Nokkuð er síðan sást til lax- agöngu áleiðis upp í árnar við Sel- eyri. Menn spá því að byrjunin gæti orðið góð í ánum, í það minnsta er laxinn að mæta jafn snemma eða jafnvel fyrr en á síðasta ári. gb Laxveiðitímabilið hefst á laugardaginn Norðurá verður formlega opnuð á laugardaginn, en myndin er frá opnuninni í fyrra og sýnir hvar Einar Sigfússon hnýtir á réttu fluguna. Kristinn Sigmundsson til hægri. Ljósm. gb. Í fyrra var settur upp áningarstað- ur við Svöðufoss á Snæfellsnesi. 1,6 km vegur frá þjóðveginum var lagfærður, bílaplan steypt sem og útsýnisstaður að fossinum. Farið var í framkvæmdirnar til að mæta fjölgun ferðamanna á Snæfellsnesi og voru þær fyrsti áfangi uppbygg- ingar áningarstaða fyrir ferða- menn á svæðinu. Framkvæmdirnar þykja vel heppnaðar og er aðgeng- ið að fossinum mjög gott í dag. Hér má sjá mynd af Svöðufossi og nýja áningarstaðnum sem tekin var í kvöldsólinni í maímánuði. grþ / Ljósm. Kristinn Jónasson. Svöðufoss í kvöldsólinni Á morgun, fimmtudaginn 1. júní, hefst Viðburðasumar í Frystiklefan- um í Rifi. Á dagskrá eru 90 menn- ingarviðburðir á jafn mörgum dög- um. „Þetta verður sannkallað við- burðamaraþon hjá okkur. Á dag- skránni í sumar verður meðal annars söngleikurinn Journey to the centre of the earth, gestaleiksýningin Pur- gatorio, kvikmyndin Hrútar og fjöldinn allur af tónleikum. Ber þar helst að nefna Mugison, Valdimar, Jónas Sig & ritvélar framtíðarinnar og síðast en ekki síst tónlistarhátíð- ina Rafmagnslaust í Rifi sem haldin verður 1. og 2. september og verð- ur lokapunktur viðburðasumarsins,“ segir Kári Viðarsson eigandi og list- rænn stjórnandi Frystiklefans. Kári segir risavaxið verkefni í menningarlífi landsins á ferðinni og vonast til að Íslendingar láti sig ekki vanta á Snæfellsnesið í sumar. mm Viðburðasumar að hefjast í Frystiklefanum í Rifi Hér sést stækkun veiðihússins við Rjúpnaás. Ljósm. sas.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.