Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 11
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2017
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Miðvikudaginn 7. júní
Fimmtudaginn 8. júní
Föstudaginn 9. júní
Allar stærðir ökutækja skoðaðar
Tímapantanir í síma 570 – 9090
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Leikskólinn Skýjaborg
í Hvalfjarðarsveit
Matráður óskast
Matráður óskast til starfa í leikskólanum Skýjaborg frá og með
ágúst 2017. Um framtíðarstarf er að ræða í 100% stöðu. Við
leitum að matráði sem hefur brennandi áhuga á að elda hollan,
góðan og næringarríkan mat í samræmi við Manneldismarkmið
Lýðheilsustöðvar. Umsækjandi þarf að hafa góða skipulags-
hæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af starfi
í mötuneyti æskileg.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2017.
Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Laun eru samkvæmt
viðkomandi kjarasamningi.
Nánari upplýsingar er að finna á www.hvalfjardarsveit.is.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Laugardaginn 13. maí var umhverf-
isdagur í Reykhólahreppi. Var dag-
urinn meðal annars nýttur til upp-
setningar á nýjum frisbígolfvelli,
sem staðsettur er í Hvanngarða-
brekku. Var það Umf. Aftureld-
ing sem hafði frumkvæði að upp-
setningu hans og nutu heimamenn
liðsinnis frá Frisbígolfbúðinni við
verkið. Settar voru upp sex af þeim
níu körfum sem verða á vellinum,
en fleiri körfur voru ekki til á lager.
Verður þeim komið fyrir um leið
og fleiri körfur koma til landsins.
Merkingar vantar á stikur og verða
þær sömuleiðis merktar við fyrsta
tækifæri. Að öðrum kosti er völlur-
inn tilbúinn til notkunar. Íbúar og
gestir Reykhólahrepps ættu því að
geta tekið frisbígolfið föstum tök-
um á sumri komanda.
Fleiri vellir væntanlegir
Frisbígolfvellir eru í bígerð víðar í
landshlutanum. Búið er að teikna
upp slíkan völl í Dölum. Verður
hann staðsettur í dalverpinu fyr-
ir neðan tjaldsvæðið í Búðardal,
skammt frá Dalabúð. Níu brautir
verða á þeim velli og áætlað er að
hann verði tilbúinn til notkunar í
kringum mánaðamótin næstu.
Þá stendur einnig til að setja upp
frisbígolfvöll í Snæfellsbæ á næst-
unni en þeim velli hefur ekki verið
fundinn staður. Má vænta fregna af
þeim velli snemmsumars. kgk
Frisbígolfvöllur settur
upp á Reykhólum
Krakkarnir í Reykhólaskóla reyna sig á nýja vellinum í Hvanngarðabrekku á
Reykhólum. Ljósm. Reykhólaskóli.
Í síðustu viku var vatnshæð Skorra-
dalsvatns hækkuð. Á þremur dög-
um, frá föstudegi til sunnudags,
hækkaði vatnsyfirborðið í vatninu
um sex sentimetra og var á sunnu-
dagsköld samkvæmt mæli Veður-
stofunnar við úthlaup þess 62,12
cm yfir sjávarmáli. Orka náttúrunn-
ar hefur gefið það út að vatnsstaðan
skuli ekki vera hærri en 62,18 cm. Í
raun er Skorradalsvatn vatnsmiðlun
fyrir Andakílsárvirkjun og er vatns-
hæð við útfallsstíflu stýrt af Orku
náttúrunnar sem á og rekur virkj-
unina. Íbúar í dalnum sem Skessu-
horn hefur rætt við eru ekki sam-
mála því að leyfi sé fyrir fyrrgreindri
hámarksvatnshæð, segja mælipunkt
í starfsleyfi fyrir virkjunina vera á
reiki.
Óvenjuleg björgunar-
aðgerð himbrimavarps
Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum,
innsta bæ við austanvert vatnið, hef-
ur verulegar áhyggjur af hækkandi
vatnsborði vegna fuglalífs. Him-
brimi verpir til að mynda í litlum
hólma austast í vatninu. Sá Hulda
fram á að ef vatnsyfirborð hækk-
aði meira myndi fljóta yfir hreiður
fuglsins. Hún fór því ásamt Ingi-
björgu Björnsdóttur út í hólmann á
sunnudagskvöldið og freistaði þess
að fuglinn sætti sig við að hreiður-
stæðið yrði hækkað. Það mun hafa
lukkast því fuglinn lagðist á það að
nýju. Hulda kveðst hafa ráðfært sig
við fuglafræðing áður en hún lagði
í þessa óvenjulegu björgunarað-
gerð. Jafnframt upplýsir hún blaða-
mann um að ef vatnsborðið verður
hækkað enn meira, muni hún fara
aftur út í hólmann og hækka und-
ir hreiðrinu. „Það er einungis hægt
að gera þetta í litlum áföngum þar
sem fuglinn er í rauninni bæklað-
ur, á afar erfitt með gang og því er
ekki hægt að hækka hreiðurstæðið
nema lítið,“ segir Hulda. Hún bæt-
ir því við að íbúar í dalnum hafi í
áratugi barist fyrir því að vatnshæð
í Skorradalsvatni hætti að „rokka“
eftir höfði Andakílsárvirkjunar, en
ekki hafi verið hlustað á sjónarmið
þeirra. Því komi ítrekað upp agnúar
í samkiptum virkunarinnar við land-
eigendur sem telja of oft að gengið
sé á hagsmuni lífríkisins við vatnið.
Hækkar þar til annað
verður ákveðið
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hreið-
ur á votlendinu fyrir innan vatnið
verða fyrir barðinu á stjórn virkjun-
arinnar,“ segir Hulda. Hún biðlaði
um helgina til forsvarmanna Anda-
kílsárvirkjunar að opna fyrir útfall-
ið úr Skorradalsvatni þannig að það
hætti að hækka í vatninu af þeirri úr-
komu sem fellur til jarðar þessa dag-
ana. Kristinn Rafnsson framleiðslu-
stjóri hjá ON segir í svarbréfi til
Huldu á sunnudaginn:
„Eins og þú eflaust veist þá erum
við að glíma við afleiðingar af vatns-
tæmingu inntakslóns fyrir Anda-
kílsvirkjun. Til að lágmarka þann
skaða sem orðin er þá munum við
ekki auka streymið í ána nema í sam-
ráði við og eftir ráðleggingum sér-
fræðinga frá Hafrannsóknastofnun
ásamt sérfræðings í straumvatns-
fræði,“ sagði Kristinn.
Síðastliðinn mánudag var fund-
ur með öllum hagsmunaaðilum við
Andakílsá ásamt fulltrúum sveitar-
félaga og sérfræðingum Hafrann-
sóknastofnunar. Í framhaldi af
þeim fundi var áætlað að tekin yrði
ákvörðun um næstu skref.
Hulda á Fitjum upplýsti svo síð-
degis á mánudaginn að byrjað væri
að hleypa úr vatninu að nýju. Bjóst
hún því við að fara aftur út í hólm-
ann og lækka hreiðrið á nýjan leik
þannig að himbriminn ætti greiða
leið upp í það. mm
Varp í hættu vegna hækkunar
í Skorradalsvatni
Himbriminn á hólmanum. „Nú er að hækka í Skorrradalsvatni og þá flæðir inn í
hreiðrið og önnur hreiður smærri fugla sem ekki eru jafn áberandi. Hver cm skiptir
máli eftir að fuglinn hefur verpt,“ skrifar Hulda. Ljósm. khg.
Óvenjuleg tilraun til björgunar himbrimavarps var gerð sl. sunnudagskvöld í
„Skrubbunni,“ en svo nefnist kíllinn í votlendið austast í vatninu þar sem him-
briminn hefur komið sér fyrir. Hulda á Fitjum fór við annan mann út í hólmann og
freistaði þess að hækka hreiðrið þannig að ekki flæddi í það. Með semingi sætti
fuglinn sinn við það og lagðist að nýju á hreiðrið. Ljósm. ib.