Skessuhorn


Skessuhorn - 31.05.2017, Page 27

Skessuhorn - 31.05.2017, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 27 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Skallagrímur tapaði gegn Árborg Skallagrímur lék sinn annan leik í C-riðli fjórðu deildar karla í knattspyrnu síðast- liðinn laugardag. Leikurinn var á Skalla- grímsvelli gegn liði Árborgar og lauk leiknum með 4-1 sigri Árborgar. Mark Skallagríms kom á 62. mínútu en þar var að verki Goran Jovanovski en Goran fékk svo rautt spjald í lok leiks. Næsti leikur Skallagríms er þriðjudaginn næstkom- andi, 6. júní á útivelli gegn Létti. -bþb Snæfell/UDN tapaði stórt Á þriðjudag í síðustu viku lék Snæfell/ UDN sinn fyrsta leik í A-riðli fjórðu deild- ar karla í knattspyrnu. Leikurinn var gegn Kórdrengjunum sem eru nýliðar í fjórðu deildinni. Snæfell/UDN tapaði leiknum stórt en hann fór 11-1 fyrir Kórdrengina. Mark Snæfells/UDN skoraði Deividas Le- skys í lok leiks úr víti. Næsti leikur Snæ- fells/UDN er þriðjudaginn næstkomandi, 6. júní á heimavelli gegn Kríu. -bþb Kári tapaði Kári tók á móti Þrótti frá Vogum í stór- leik 3. deildar karla í knattspyrnu á upps- tigningardag. Leikið var í Akraneshöll- inni. Um mikinn baráttuleik var að ræða en að lokum fór svo að Þróttarar höfðu betur með einu marki gegn engu. Mark Þróttar skoraði Andri Björn Sigurðsson á 57. mínútu. Kári hefur sex stig eftir fyrstu þrjá leiki deildarinnar. Næst mætir Kári liði KF í Akraneshöllinni laugardag- inn 3. júní næstkomandi. -kgk Manuel Rodriguez mun ekki þjálfa körfuboltalið kvenna hjá Skallagrími á næsta keppnistímabili. Manuel greindi sjálfur frá þessu á Facebook- síðu sinni sl. miðvikudag. Þar segir hann að forsvarsmenn félagsins hafi greint frá ákvörðun sinni um að þeir hyggðust leita annað eftir þjálfara. Samningur hans við liðið yrði því ekki endurnýjaður. Manuel tók við þjálfun liðsins fyrir tveimur árum, þegar meistara- flokkur kvenna var endurvakinn eft- ir að hafa legið í dvala árin á undan. Á sínu fyrsta ári stýrði hann Skalla- grími til sigurs í 1. deild kvenna og á þessu ári í bikarúrslit og undanúrslit Íslandsmótsins. Í færslu sinni færir Manuel leik- mönnum sínum þakkir fyrir erfið- ið sem þeir voru tilbúnir að leggja á sig, þakkar stuðningsmönnum og Borgnesingum fyrir að hafa staðið við bakið á liðinu og óskar Skalla- grími góðs gengis í framtíðinni. kgk Manuel mun ekki þjálfa Skallagrím áfram Manuel Rodriguez körfuknattleiksþjálfari. Ljósm. jho. ÍA mætti Þrótti frá Reykjavík á Akranesvelli síðastliðið þriðju- dagskvöld í Borgunarbikar kvenna. Bæði lið leika í fyrstu deild; þar sem ÍA er með sex stig eftir tvo leiki og Þróttur þrjú. Leikurinn var jafn og spennandi fram á síðustu mín- útu en það var Þróttur sem sigraði Skagakonur með þremur mörkum gegn tveimur. Það var strax á sjöundu mínútu leiksins sem Skagakonur komust yfir og þar var á ferðinni nýjasti leikmaður Skagans; Ruth Þórðar Þórðardóttir. Staðan var 1-0 í fyrri hálfleik. Þróttur jafnaði metin á 59. mínútu með marki frá Michaelu Mansfield. Unnur Elva Trausta- dóttir kom inn á sem varamaður á 66. mínútu og var ekki lengi að setja svip á leikinn því hún kom boltanum yfir marklínuna þremur mínútum síðar. Allt stefndi í sigur Skagakvenna en á 89. mínútu náði Þróttur að jafna metin með marki Sierru Marie Lelli. Það þurfti því að grípa til framlengingar. Baráttan hélt áfram í framleng- ingunni, liðin lögðu allt í sölurnar til að komast áfram. Það var á 111. mínútu framlengingar sem Sierra Marie Lelli slökkti í bikarævin- týri Skagakvenna með góðu marki. Lokatölur 3-2 fyrir Þrótt og sem kemst því áfram í næstu umferð. bþb Skagakonur féllu úr í leik í bikarnum Hér fagna Skagakonur marki Unnar Elvu Traustadóttur. Ljósm. gbh. Ganverjinn Samira Suleman, sem leikið hefur með kvennaliði Vík- ings Ólafsvík undanfarin ár, hefur greinst með stórt æxli í kviðarholi. Samira er 26 ára gömul og við lækn- isskoðun þegar hún kom aftur til félagsins í vor kom æxlið í ljós. Það er ljóst að Samira mun ekkert spila í sumar en stjórn Víkings ákvað strax að hún skyldi fá þá læknisþjónustu sem hún þyrfti hérlendis. Samira hefur gert mikið fyrir Víking Ólafs- vík síðustu þrjú tímabil en hún hef- ur skorað 23 mörk í þeim 30 leikj- um sem hún hefur skorað. Hún hef- ur einnig starfað við þjálfun yngri flokka auk þess að vera leiðtogi inn- an sem utan vallar. Framundan hjá Samiru er erfið aðgerð og bataferli eftir það. Ferlið verður fjárhagslega erfitt fyrir Samiru og hefur félagið sett af stað fjáröflun til að létta und- ir með henni. Öllum er frjálst að leggja söfnun- inni lið með frjálsum framlögum á eftirfarandi reikning: Reiknings- númer: 0190-05-060550. Kenni- tala: 470579-0139. bþb Fyrirliði Víkings Ólafsvík með æxli í kvið Samira í leik með Víkingi Ólafsvík. Í Kópavogi á sunnudag kepptu lið Breiðabliks og Víkings Ólafsvíkur í fimmtu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Mikil eftirvænting var fyrir leiknum og þá sérstaklega í ljósi þess að Milos Milojevic, nýráð- inn þjálfari Breiðabliks, stýrði lið- inu í fyrsta sinn í leiknum en hann hóf tímabilið sem þjálfari Víkings Reykjavíkur. Það var slæmur kafli í fyrri hálfleik sem varð Víkingi að falli og lauk leiknum með 2-1 fyrir Breiðabliki. Víkingur var betri aðili leiksins á upphafsmínútunum en eftir rúm- ar tíu mínútur hrundi leikur liðsins og við tók slæmur kafli. Blikar skor- uðu fyrra mark sitt á 13. mínútu en þar var á ferðinni Arnþór Ari Atl- ason. Fimm mínútunum síðar skor- uðu Blikar svo seinna mark sitt en það mark skoraði fyrrum leikmað- ur Víkings Ólafsvíkur, Hrovje To- kic. Útlitið var svart fyrir Víkinga eftir seinna mark Blika og var allt eins útlit fyrir að Blikar myndu valta yfir Víking. Það varð þó ekki svo og Víkingur rétti úr kútnum þegar leið á leikinn. Á 34. mínútu minnkaði Kwame Quee muninn fyrir Víking og staðan því 2-1 í hálfleik. Ejub stillti upp þriggja manna varnarlínu í upphafi leiks en í síð- ari hálfleik skipti hann yfir í fjögurra manna. Víkingar börðust vel í síð- ari hálfleik en náðu ekki að skapa sér nógu góð færi til þess að jafna met- in. Blikar stóðu uppi sem sigurveg- arar í leiknum, 2-1. Þetta þýðir að Vesturlandsliðin tvö hlúa nú hvort að öðru á botni deildarinnar. Næsti leikur Víkings er í Ólafsvík á mánudaginn, 5. júní þegar heima- menn fá lið KA í heimsókn. bþb Víkingur Ólafsvík tapaði gegn Breiðabliki Úr leik Víkings og KR fyrr í sumar. Ljósm. Alfons Finnsson.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.