Skessuhorn - 07.06.2017, Blaðsíða 62
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 201762
Hvaða fiskur er bragðbestur?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Borgarnesi)
Gunnar Kristjánsson:
„Silungur.“
Ingunn Jóhannesdóttir:
,,Þorskur.“
Kolbrún Óttarsdóttir:
„Bleikja.“
Pálmi Blængsson:
„Lax og þá helst sem ég veiði
sjálfur.“
Sólveig Harðardóttir:
,,Lax.“
Á þriðjudaginn í liðinni viku tóku
Skagamenn á móti Gróttu á Akra-
nesvelli í 16 liða úrslitum bikar-
keppninnar í knattspyrnu karla.
Ein deild skilur liðin að á Íslands-
mótinu en Skagamenn spila í efstu
deild og eru þar í næstneðsta sæti
en Grótta er í níunda sæti fyrstu
deildar. Það bjuggust því allir við
auðveldum sigri Skagamanna þó
ekkert sé gefið þegar bikarkeppni
er annars vegar. Skagamenn höfðu
að endingu betur eftir framlengd-
an leik, 2-1.
Töluverð rigning hafði verið á
Akranesi fyrir leikinn og var völlur-
inn blautur og þungur þegar leik-
urinn var spilaður og setti það svip
sinn á leikinn. Gróttumenn lágu
aftarlega á vellinum og voru þéttir
til baka allan tímann. Skagamenn
áttu fá svör við leikjaplani Gróttu
og sköpuðu sér fá færi þrátt fyrir að
vera meira með boltann. Fyrri hálf-
leikur var bragðdaufur og ekkert
mark skorað.
Á 63. mínútu fengu Gróttu-
menn aukaspyrnu hægra megin á
vellinum, nokkuð frá vítateignum.
Ingólfur Sigurðsson tók spyrnuna
sem virðist hafa átt að vera fyrir-
gjöf en boltinn sveif lágt í gegn-
um allan vítateiginn þar sem eng-
inn snerti hann og þaðan í markið.
Grótta því komið í nokkuð óvænta
1-0 forystu. Það lifnaði nokkuð yfir
leiknum eftir markið. Tíu mín-
útum eftir markið barst boltinn til
Péturs Theódórs Árnasonar inn í
teig Skagamanna þar sem Páll Gísli
var hans eina hindrun en á ein-
hvern óskiljanlegan hátt kom Pétur
boltanum ekki á markið. Við þetta
hresstust Skagamenn sem tóku öll
völd á vellinum allt til leiks loka. Á
83. mínútu átti Þórður Þorsteinn
Þórðarson hornspyrnu sem Arnar
Már Guðjónsson skallaði að marki
þar sem Tryggvi Hrafn Haraldsson
komast í boltann og skallaði hann
örugglega í markið.
Skagamenn lágu á Gróttumönn-
um í lok leiks en náðu ekki að skora.
Það þurfti því að grípa til framleng-
ingar. Á 95. mínútu framlengingar
átti Arnar Már fínt skot að marki
Gróttu sem Terrance William Die-
terich markmaður Gróttu náði ekki
að halda. Tryggvi Hrafn náði til
boltans, fór framhjá Terrance og
lagði boltann í autt markið. Staðan
orðinn 2-1. Gróttumenn léku svo
síðustu tíu mínúturnar í framleng-
ingunni manni færri eftir að vara-
maðurinn Halldór Kristján Bald-
ursson fékk sitt annað gula spjald
eftir brot á Þórði Þorsteini Þórðar-
syni. Ekki var meira skorað í leikn-
um og Skagamenn unnu því 2-1
sigur á Gróttu.
Með sigrinum komust Skaga-
menn í átta liða úrslit bikarkeppn-
innar í fyrsta skiptið í áratug.
bþb
Skagamenn í átta liða úrslit bikars
í fyrsta sinn í áratug
Hér skorar Tryggvi Hrafn Haraldsson sigurmark Skagamanna. Tryggvi hefur
skorað fimm mörk í fimm leikjum í sumar.
Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
Ágúst Júlíusson sundmaður frá
Akranesi vann sér bæði inn silfur- og
bronsverðlaun á Smáþjóðaleikunum
sem fram fóru í San Marino í síð-
ustu viku. Ágúst synti á miðvikudag
100m flugsund og hafnaði í þriðja
sæti á tímanum 55.68. Þá synti hann
með boðsundssveit karla í 4x100m
fjórsundi á fimmtudaginn. Íslensku
strákarnir gerðu sér lítið fyrir og
settu Íslandsmet,
en gamla metið var
frá 2013. Það dugði
þeim til silfurverð-
launa. Ágúst synti
flugsundssprett-
inn á tímanum 54,9
sek. Með honum í
sveit voru þeir Dav-
íð frá IRB, Viktor
og Aron frá SH.
Inga Elín Cryer
sundkona af Skag-
anum keppti einnig
á mótinu. Hún varð
í fjórða sæti í 200
metra flugsundi, í
fimmta sæti í 100m
flugsundi og í fyrsta
sæti ásamt félögum
sínum í 4x100m
boðsundi þar sem
stúlkurnar settu
jafnframt mótsmet.
Ísland hlaut
hvorki meira né
minna en 22 gullverðlaun á mótinu,
13 silfur og 15 brons. Eins og í fyrra
varð Ísland í öðru sæti á verðlauna-
töflunni með samtals 50 verðlauna-
peninga. Lúxemborg var í fyrsta sæti
með 81 verðlaunapening. Mynd-
ir frá Smáþjóðaleikunum má sjá
á myndasíðu Íþróttasambands Ís-
lands, http://isi.is
mm
Ágúst með tvo verðlauna-
peninga frá San Marino
Boðsundssveit karla. Ágúst er annar frá hægri.
Inga Elín Cryer var í 4x100 m. boðsundssveit kvenna og
vann til gullverðlauna.
Í síðustu viku kynnti Eyjólfur
Sverrisson, landsliðsþjálfari U-21
árs liðs karla í knattspyrnu, hópinn
sem mun mæta Englandi í vináttu-
leik næstkomandi laugardag. Leik-
ið verður fyrir luktum dyrum á æf-
ingasvæði Englendinga í St. Georg‘s
Park. Tveir Skagamenn voru vald-
ir í hópinn. Framherjinn Tryggvi
Hrafn Haraldsson og miðjumaður-
inn Albert Hafsteinsson. Báðir hafa
þeir leikið vel á tímabilinu; Tryggvi
hefur skorað fimm mörk í fimm
leikjum og Albert Hafsteinsson er
með þrjár stoðsendingar það sem af
er sumri auk þess að hafa verið einn
besti leikmaður ÍA.
Tryggvi Hrafn hefur leikið tvo
U-21 landsleiki á árinu og einn
leik fyrir A-landslið Íslands. Al-
bert Hafsteinsson hefur hins veg-
ar aldrei áður verið valinn í lands-
liðshóp yngri landsliða og eru allar
líkur á því að hann þreyti frumraun
sína í bláu treyjunni 10. júní næst-
komandi. bþb
Tryggvi Hrafn og Albert
í landsliðsverkefni
Tryggvi Hrafn Haraldsson og Albert Hafsteinsson hafa báðir leikið vel í sumar og
eru nú á leið í landsliðsverkefni. Ljósm. gbh.
Eins og Skessuhorn greindi frá í
síðustu viku greindist Samira Su-
leman leikmaður kvennaliðs Vík-
ings Ólafsvíkur með æxli í kviðar-
holi í vor. Stjórn Víking ákvað strax
eftir að Samira greindist með æxl-
ið að hún skyldi fá þá læknisþjón-
ustu sem hún þyrfti hérlendis. Eft-
ir aðgerðina tekur við erfitt bata-
ferli hjá Samiru en hún mun ekki
leika með liði Víkings í sumar.
Síðastliðið föstudagskvöld var
stórleikur í 16 liða úrslitum Borg-
unarbikars kvenna í knattspyrnu
þegar lið FH og Vals mætast á
Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. Lið-
in ákváðu bæði að allur ágóði af
leiknum rynni til Samiru og óska
félögin henni góðs bata. Þá hefur
kvennalið ÍR styrkt Samiru um 50
þúsund krónur og hvetur önnur
1. deildar lið til að gera slíkt hið
sama.
Víkingur Ólafsvík setti af stað
fjársöfnun fyrir Samiru en öllum
er frjálst að leggja frjáls framlög
inn á eftirfarandi reikning:
Reikningsnúmer:
0190-05-060550.
Kennitala: 470579-0139. bþb
FH, Valur og ÍR styrktu
Samiru Suleman
Samira Suleman í leik með Víkingi
Ólafsvík.