Skessuhorn


Skessuhorn - 14.06.2017, Qupperneq 1

Skessuhorn - 14.06.2017, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 24. tbl. 20. árg. 14. júní 2017 - kr. 750 í lausasölu Við viljum hafa pláss fyrir allt Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun bilið í bílakaupunum. Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á arionbanki.is Loratadin LYFIS - fæst án lyfseðils www.skessuhorn.is Minnum á fríar smáauglýsingar á vef Skessuhorns 15 dagar í Írska og við teljum niður... Það var hátíðleg stund í Grundarfirði síðastliðinn laugardag þegar sjötíu börn tóku fyrstu skóflustungurnar að nýju og tæknilega vel búnu fiskvinnsluhúsi GRun á laugardaginn. Sjá nánar bls. 10. Ljósm. sá. Þórsnes ehf. í Stykkishólmi hef- ur fest kaup á nýju Þórsnesi SH og kom skipið í gær frá Noregi. Skip- ið var áður gert út af lítilli útgerð í Álasundi í Noregi og hét Veidar 1. Það er 43,3 metrar á lengd, 10,5 á breidd og skráð 880 brúttótonn. Gamla Þórsnesi hefur nú verið lagt og reiknar Eggert Halldórsson fram- kvæmdastjóri með því að það verði selt í brotajárn. Kaupverð nýja skips- ins segir Eggert vera trúnaðarmál. Þórsnes ehf. á yfir að ráða 1200-1300 tonna þorskígildiskvóta. Nú eftir heimkomuna munu verða gerðar breytingar á millidekki skips- ins, en meðal annars þarf að breyta slægingarlínunni áður en haldið verður til veiða. Hægt verður að gera skipið út hvort heldur sem á línu eða net. Fyrst í stað er stefnt á veiðar á grálúðu norðan við land. Aðspurður segir Eggert að þokka- lega gangi hjá Þórsnesi ehf. en auð- vitað hafi hátt gengi krónunnar sín áhrif eins og hjá öðrum útgerðum. Fyrirtækið er með 23-24 í vinnu í landi meðal annars við saltfisk- svinnslu auk 14 sjómanna. Þá hefur fyrirtækið einnig staðið fyrir bygg- ingu íbúðarhúsnæðis í Stykkishólmi eins og fram hefur komið í Skessu- horni. mm Nýtt Þórsnes SH komið Nýtt Þórsnes kom til heimahafnar síðdegis í gær. Ljósm. Haukur Páll Kristinsson. Ferðaritið Luxury Travel Guide hefur valið Vesturland ,,Scenic destination of Europe 2017”. Hér er um gríðarlega mikilvæga við- urkenningu að ræða sem vafalaust mun stórauka áhuga vel borg- andi ferðamanna fyrir Vesturlandi. Luxury Travel Guide sérhæfir sig í skrifum um áfangastaði, hótel, heilsulindir, tækni og fleira. Blað- ið leggur áherslu á betur borgandi ferðamenn. Vesturland er val- ið vegna fallegrar náttúru svæðis- ins auk þess sem gott er að gera út frá Vesturlandi þegar kemur að því að kanna náttúru. „Þetta er mik- il viðurkenning fyrir Vesturland sem áfangastað. Það eru fyrirtæk- in á svæðinu sem eiga heiðurinn af þessu. Þau hafa byggt upp af gæð- um, auk þess að náttúra okkar er einstök. Þú uppskerð eins og þú sáir,“ segir Kristján Guðmunds- son forstöðumaður Markaðsstofu Vesturlands í samtali við Skessu- horn í síðustu viku, þegar úrslit voru kynnt í ákvörðun SDE. Í umsögn tímaritsins segir að Vesturland sé spennandi kostur fyrir ferðamenn sem koma til Ís- lands. Mikill fjölbreytileiki er í náttúru og landslagi og er mik- il saga á svæðinu. Vesturland hef- ur mikla sérstöðu þegar kemur að vetrarferðamennsku og nýtur landshlutinn góðs af því að vera aðgengilegur allt árið. Nálægð við höfuðborgina og snjóléttir vetur gera Vesturland spennandi kost fyrir ferðamenn. Margar náttúru- perlur eru á Vesturlandi sem vin- sælt er að heimsækja. Á undan- förnum árum hefur nýsköpun ver- ið mikil í ferðaþjónustu á Vestur- landi auk uppbyggingar á gistingu hefur tryggt ferðamönnum góða upplifun. mm Vesturland myndrænasti áfangastaður Evrópu 2017

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.