Skessuhorn


Skessuhorn - 14.06.2017, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 14.06.2017, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 2017 13 Hlaupið frá Akratorgi kl. 11:00. Vegalengdir í boði: 2 km og 5 km. Forsala í íþróttamiðstöðinni Jaðars- bökkum og á Akratorgi að morgni hlaupadags 18. júní. Upphitun fyrir hlaup á Akratorgi, ávaxtaveisla í boði eftir hlaup og happdrættisvinningar. Þátttökugjald: 12 ára og yngri: 1.000 kr. 13 ára og eldri: 2.000 kr. Bolur fylgir þátttökugjaldi. Íþróttabandalag Akraness Kvennahlaup á Akranesi Skógræktarfélag Borgarfjarðar hef- ur boðað til samfélagsátaks dag- ana 15. og 20. júní við gróðursetn- ingu trjáa, en félagið ætlar að gróð- ursetja um 50 þúsund trjáplönt- ur í skógræktarlandið í Reykholti í sumar. „Miklar vonir eru bundn- ar við að innan fárra ára muni einn fegursti skógur héraðsins og sá um- fangsmesti vaxa upp í Reykholsdal til yndis og nota fyrir héraðsmenn og landsmenn alla,“ segir í tilkynn- ingu frá skógræktarfélaginu. Víða um héraðið hefur Skógræktarfélag Borgarfjarðar tekið til hendinni að undanförnu. Til dæmis við grisjun í Daníelslundi í Stafholtstungum. Hluti af plöntunum sem nú verða settar niður í Reykholti er stafa- fura sem einmitt er vaxin upp af fræi sem safnað var í Daníelslundi eftir grisjun. Nýverið var undirritað sam- komulag skógræktarfélagsins við sveitarfélagið Borgarbyggð um umsjón með fólkvanginum Ein- kunnum ofan við Borgarnes. „Vel má minnast þess að skógrækt í Ein- kunnum hófst um 1960 fyrir til- stuðlan félagsins Aspar sem var deild innan Skógræktarfélags Borg- arfjarðar. Nú eru þar frjóir yndis- reitir sem margir heimsækja til að njóta skjólsins í trjálundum borg- firsks skógar. Það hefur vorað vel fyrir gróður í Borgarfirði og má bú- ast við að skógar dafni vel í sumar og bindi kolefni úr andrúmsloftinu sem nýtist til skjóls og yndis sem og í timbur til ýmissa nota. Við viljum hvetja Borgfirðinga til að eiga með okkur ánægjulega sam- veru og taka þátt í sameiginlegri gróðursetningu og stuðla þannig að stækkun skóga,“ segir í tilkynn- ingu frá Skógræktarfélagi Borgar- fjarðar. Gróðursett verður í Reyk- holtsskógi fimmtudaginn 15. júni og þriðjudaginn 20. júní klukkan 20:00 til 22:00 báða dagana. Mæt- ing er við Höskuldargerði. mm Átak framundan í skógrækt í Reykholti Horft inn Reykholtsdal, yfir í Hálsasveit og Hvítársíðu, allt til Eiríksjökuls. Gríms- staðir í forgrunni og fjær til hægri er Reykholt. Í síðustu viku var Ísbúðin opnuð í Búðardal. Hana reka Baldur Þór- ir Gíslason og Harpa Sif Ingadótt- ir. Í sama húsi reka þau einnig veit- ingastaðinn Veiðistaðinn sem þau opnuðu fyrir ári síðan. Sumaropn- unartíminn er frá klukkan 12 til 21 alla daga, en bæði í tilfelli ísbúðar- Ísbúðin opnuð í Búðardal innar og veitingastaðarins er fyrst og fremst gengið út frá rekstri yfir sumartímann. Í Ísbúðinni er m.a. boðið upp á ís úr vél, sjeik, kúluís, bragðaref með tilheyrandi góðgæti og heitar og kaldar sósur. Einnig er krapvél væntanleg á staðinn ásamt íspinnum og þess má geta að ein tegund í ís- borðinu er mjólkurlaus. sm Stóðhestar á Skáney sumarið 2017 IS 2000135815 Sólon frá Skáney IS 2005135813 Þytur frá Skáney IS 2010135811 Skörungur frá Skáney IS 2012135816 Skagfjörð frá Skáney IS 2013135811 Sókrates frá Skáney IS 2015135803 Kapteinn frá Skáney A:8.48 B:8.24 H:8.64 1.v. fyrir afkvæmi Farsæll keppnis og kynbótahestur F: Spegill frá Sauðárkróki (8.10) M: Nútið frá Skáney (8.03) Verð: 100.000 A:8.49 B:8. 41 H:8.55 Fasmikill glæsihestur með mikinn fótaburð og skref. Farsæll keppnishestur. F: Gustur frá Hóli (8.57) M: Þóra frá Skáney (8.06) Verð: 80.000 A:8.36 B:8.39 H:8.33 Vel ættaður alhliðahestur F: Ómur frá Kvistum (8.61) M: Nútið frá Skáney (8.03) Verð: 80.000 A:8.00 B:8.48 H:7:68 Spennandi alhliðahestur F: Þytur frá Skáney (8.49) M: Reynd frá Skáney (7.98) Verð: 60.000 Topp ættaður ungur hestur sem fer vel af stað í tamningu, undan heiðursverðlaunahesti F: Stáli frá Kjarri (8.76) M: Nútið frá Skáney (8.03) Verð: 60.000 Topp ættaður foli undan Landsmótssigurvegara í A-flokki gæðinga og Íslandsmeistara í fimmgangi. F: Hrannar frá Flugumýri II (8.85) M: Líf frá Skáney (8.22) Verð: 40.000 Öll verð eru með vsk, einni sónarskoðun, hagagjaldi. Frekari upplýsingar í síma 894-6343 eða tölvupósti á netfangið randi@skaney.is.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.