Skessuhorn - 14.06.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 20172
17. júní er næstkomandi laugardag og
verða hátíðarhöld út um allt land á lýð-
veldisdaginn. Eins og oft áður mun að öll-
um líkindum rigna á hátíðargesti ef eitt-
hvað er að marka spá veðurfræðinga. Það
á þó ekki að spilla gleði Íslendinga, ef fólk
klæðir sig eftir veðri, enda ýmsu vanir.
Hæhó og jibbýjei!
Á morgun verður norðaustan átt 5-13 m/s
og úrkomulítið. Hiti 5-17 stig, hlýjast vest-
an- og norðvestantil. Föstudagur; fremur
hæg suðaustlæg átt með dálítilli vætu, hiti
8-15 stig. Laugardaginn 17. júní, verður
hæg suðvestlæg átt, skýjað og væta með
köflum en ennþá milt í veðri. Á sunnu-
dag og mánudag má búast við fremur
hægri norðaustlægri átt og dálítilli vætu
með köflum.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Ætlar þú að heimsækja Costco?”
Vestlendingar virðast vera jákvæðir fyrir
komu Costco til landsins en 39% segjast
nú þegar vera búnir að fara, 33% segjast
ætla að fara, 16% eru ekki vissir og 12%
segjast ekki ætla að fara.
Í þessari viku er spurt:
Er fastlínutengdur
heimasími á þínu heimili?
Forsvarsmenn sjávarútvegsfyrirtækis-
ins Guðmundar Runólfssonar hf. í Grund-
arfirði eru Vestlendingar vikunnar. Tekn-
ar voru sjötíu fyrstu skóflustungurnar að
stækkuðu og endurbættu fiskvinnsluhúsi
fyrirtækisins um liðna helgi. Slík uppbygg-
ing er mikil lyftistöng fyrir Grundarfjörð
og sjávarútveginn í heild enda tæknilega
mjög fullkomið fiskvinnsluhús.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Eldur í
ketilhúsi
GRUNDARFJ: Eldur var
síðdegis í gær laus í rækju-
vinnslu FISK við Nesveg í
Grundarfirði. Allt tiltækt
slökkvilið og viðbragðsaðilar
voru kallaðir til á fimmta tím-
anum. Fólk var ekki í hættu.
Upptök eldsins reyndust vera
í ketilhúsi þar sem rækjupott-
ur er staðsettur. Undir kvöld
í gær, þegar Skessuhorn var
sent í prentun, fengust þær
upplýsingar að slökkviliðs-
menn væru að ráða niðurlög-
um eldsins.
-mm
Árétting um
Svaninn
ÓLAFSVÍK: Í síðasta blaði
Skessuhorns var frásögn um
líkan af Ólafsvíkur Svaninum
sem nú er komið til Ólafsvík-
ur og er til sýnis í Pakkhúsinu.
Það skal áréttað að textinn um
sögu þessa merka báts er að
finna í óbirtri ritgerð Péturs
Sigurðssonar fyrrum forstjóra
Landhelgisgæslunnar. Text-
inn kemur þó fram á upplýs-
ingaskilti sem Rótarýklúbbur
Ólafsvíkur kom fyrir árið 2002
ofan við fjörukambinn í Ólafs-
vík þar sem Ólafsvíkur Svanur
strandaði í norðan stórviðri í
október 1893.
-mm
Myndlistar-
sýning í
Munaðarnesi
BORGARFJ: Kristján Finns-
son hefur opnað myndlistar-
sýninguna Hús, fólk og bátar
í Munaðarnesi í Borgarfirði.
Kristján er fæddur 1943 í
Reykjavík og lærði húsgagna-
smíði hjá Ingvari og Gylfa.
Hann fór síðan í áframhald-
andi húsasmíðanám og var
byggingameistari á mörg-
um byggingum víða um land.
Kristján er hættur störfum,
hefur snúið sér að myndlist
en nýtur auk þess lífsins sem
eldri borgari.
-mm
Sviptur á
staðnum eftir
ofsahraða
VESTURLAND: Síðastlið-
ið sunnudagskvöld stöðvuðu
lögreglumenn hjá LVL akst-
ur bifreiðar í umdæminu eftir
að hafa mælt ökuhraða hennar
189 km/klst. Leyfilegur öku-
hraði var 90 km/klst. Öku-
maðurinn viðurkenndi brot-
ið og var sviptur ökuleyfi á
staðnum til bráðabirgða.
-mm
Meðfylgjandi mynd var tekin um
sexleitið síðastliðið mánudags-
kvöld á Garðavelli á Akranesi. Milli
trjánna sést í flugvél sem snertilent
var á vellinum skömmu síðar. Flug-
maður vélarinnar tók hana hins veg-
ar á loft að nýju en lenti á malarvegi
sem liggur samsíða skógræktinni.
Meðan þessu fór fram var golf-
völlurinn fullur af fólki og m.a var
í gangi innanfélagsmót fyrir börn
og unglinga á vegum golfklúbbs-
ins Leynis. Foreldrar barna sem
voru á mótinu líta málið alvarleg-
um augum og einhverjir þeirra til-
kynntu málið tafarlaust til lögreglu.
Í samtali við Skessuhorn sagði einn
faðirinn að það væri beinlínis galið
þegar menn væru farnir að leika sér
á flugvélum við hársvörðinn á fólki
og reyna auk þess lendingu á golf-
velli.
Lögreglan á Vesturlandi stað-
festir við Skessuhorn að málið hafi
verið tilkynnt í gær og væri í rann-
sókn. Búið er að hafa uppi á flug-
manni vélarinnar.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
flugvél er lent á Garðavelli. Sumar-
ið 2013 var fisflugvél lent á 1. braut
vallarins. Þá hafi tveir vinir ákveð-
ið að taka hring á vellinum. Annar
þeirra flogið frá Akureyri en hinn
komið að sunnan. Þegar vélin hóf
sig á loft mátti litlu muna að illa
færi þegar vélin nánast sleikti nær-
liggjandi húsþak.
mm
Flugvél snertilent á golfvelli
þar sem fjölmenni var til staðar
Segja má að gamall giftingarhring-
ur í eigu Guðrúnar Gestsdóttur frá
Eskiholti í Borgarhreppi hafi lent á
ótrúlegu flakki. Saga hringsins fór
eins og eldur í sinu um samfélags-
miðla frá því í síðustu viku. Þann-
ig var að Guðrún Bjarnadóttir í
Hespuhúsinu við Andakílsvirkjun
jurtalitar band sem hún framleið-
ir og selur. Til að finna rétta brúna
litinn sýður hún bandið í laukhýði
sem hún fær reglulega í verslun
Nettó í Borgarnesi. Þegar Guðrún
var að henda hrati úr laukhýðispotti
nýverið fann hún gamlan giftingar-
hring með áletruninni „Sveinn“
grafið inn í hringinn. Lýsti hún
eftir eiganda hringsins á Facebo-
ok síðu sinni og tóku nokkrir vef-
miðlar fréttina auk þess upp. Guð-
rún í Eskiholti sá færslu Hespu-
húss-Guðrúnar á Facebook og vitj-
aði hringsins. Hún kveðst hafa bor-
ið hringinn í yfir 50 ár, verið all-
an þann tíma gift Sveini Finnssyni
bónda í Eskiholti. Hún kveðst jafn-
framt afar glöð með að hafa endur-
heimt hringinn sem hún týndi í vet-
ur í verslunarferð í Nettó. Kalt hafi
verið í veðri og hringurinn því set-
ið laus á fingrinum og fallið í lauk-
körfuna. mm
Gamall giftingarhringur
fór á ótrúlegt flakk
Nöfnurnar Guðrún Bjarnadóttir og
Guðrún Gestsdóttir. Eigandi hringsins
alsæl með að endurheimta giftingar-
hringinn og heldur á hespunni með
lauklitaða bandinu sem hún fékk að
gjöf.
Lýst var
eftir eiganda gift-
ingarhringsins á
Facebook. Upp-
lýsingarnar inni
í hringnum gáfu
m.a. til kynna
hvenær hann var
smíðaður auk
þess sem nafnið
„Sveinn“ var
grafið í hann.
Skrifað hefur verið undir samning
um smíði á 81,30 metra löngum og
17 metra breiðum frystitogara fyr-
ir HB Granda hf. Þar er norður-
spænska skipasmíðastöðin Astille-
ros Armon Gijon sem smíðar skip-
ið. Samingsverðið er 4,9 milljarðar
króna. Afhending togarans er áætl-
uð um mitt ár 2019 en stefnt að því
að skipið verði þá einn stærsti og
fullkomnasti flakafrystitogari sem
gerður verður út við norðanvert
Atlantshaf. Byrjað verður á smíð-
inni um miðjan september í haust
þannig að smíðatíminn verður
tæplega tvö ár.
Að sögn Rafns Haraldssonar
verkefnisstjóra hjá HB Granda
er skipið, sem verður um 5.000
brúttótonn að stærð, hannað af
Rolls-Royce sem m.a. á Hydraulic
Brattvaag í Noregi. Hönnun þess
tekur mið af orkusparnaði bæði
á veiðum og á siglingu og verð-
ur skrúfan fjórir metrar í þver-
mál. Aðalvélin verður af gerðinni
Bergen-Diesel og er afl hennar
5400 kW. Skipið verður búið öfl-
ugu rafvindukerfi frá Rolls-Royce
og verður rafmagn fyrir vindurnar
og annan búnað framleitt með ás-
rafali. Fullkomnasti búnaður til
flökunar og frystingar verður í
skipinu og er framleiðslugetan
áætluð rúm 100 tonn á sólarhring.
Þá verður fiskmjölsverksmiðja um
borð fyrir það sem fellur til við
flakavinnsluna og verður afkasta-
geta hennar um 50 tonn á sólar-
hring. Í frystilestum verður rými
fyrir allt að 1.000 tonn af afurðum,
flokkuðum á brettum.
mm
Samið um smíði eins fullkomnasta
flakafrystitogara heims
Tölvugerð mynd af togaranum sem Rolls-Royce hannaði.
Í bréfi sem Bjarni Már júlíusson for-
stjóri Orku náttúrunnar ritað Um-
hverfisstofnun 7. júní sl. lýsir fyr-
irtækið fullri ábyrgð á því þegar
um eða yfir 20 þúsund rúmmetr-
um af aur var hleypt úr uppistöðu-
lóni Andakílsárvirkjunar og niður í
Andakílsá dagana 15.-18 maí í vor.
„Fyrirtækið mun leggja sig í líma við
að hreinsa ána og umhverfi henn-
ar sem best og svo fljótt sem verða
má. ON mun að sjálfsögðu fara eftir
leiðbeiningum sérfræðinga og grípa
til þeirra aðgerða sem lagðar verða
til,“ segir í niðurlagi bréfsins.
Því má við þetta mál bæta að
Skorradalshreppur hefur lagt fram
formlega kæru til lögreglu á hend-
ur Orku náttúrunnarar í von um að
rannsakað verði til hlítar hvernig
stóð á því að seti úr uppistöðulóninu
var veitt í farveg Andakílsár.
mm
ON lýsti fullri ábyrgð á
mengunarslysinu í Andakílsá
Horft niður eftir uppistöðulóninu. Myndin er tekin í kjölfar þess að hleypt var
úr lóninu. Nú er áætlað að jafnvel yfir 20 þúsund rúmmetrar af aur hafi farið úr
lóninu og niður í ána.