Skessuhorn


Skessuhorn - 14.06.2017, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 14.06.2017, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 20178 Leitum verður flýtt BORGARBYGGÐ: Búið er að samþykkja að flýta öllum fyrri leitum í Borg- arbyggð, að undanskil- inni Arnarvatnsheiði, sem smöluð er til Fljótstungur- réttar sem og á Suðurfjalli sem smalað er til Rauðsgils- réttar. Sveitarstjórn Borg- arbyggðar hefur samþykkt fyrir sitt leyti tillögu fjall- skilanefndar frá 7. júní sl. sem kveður á um að seinni leitum næsta haust verð- ur flýtt þar sem það þyk- ir henta. Seinni leitum frá Sanddalsá og vestur um að Haffjarðará verður breytt þannig að þeim er flýtt um eina viku. Yfirstjórn fjall- skilamála í fjórum sveitar- félögunum; Hvalfjarðar- sveit, Akranesi, Skorradal og Borgarbyggð, staðfesti á fundi sínum síðdegis í gær tillögu Borgarbyggð- ar. Meðal breytinga má nefna að Þverárrétt verður flýtt um viku sem verður til að samsmalað verður að þessu sinni við Arnarvatns- heiði. Það þykir til bóta enda liggja girðingar niðri milli afréttanna. Þá verður ekki breytt tímasetningu seinni leita á Arnarvatns- heiði og á afrétti Þverár- réttar. Gert er ráð fyrir að leitar- og réttardagar verði tilkynntir sérstaklega með auglýsingu þar sem víða er um breytingar að ræða frá fyrri árum og jafnvel öld- um. -mm Fá veiðileyfi endurgreidd BORGARFJ: Tekin hef- ur verið ákvörðun um að engin stangveiði verði í Andakílsá í sumar og fá þeir veiðimenn sem keypt höfðu veiðileyfi þau end- urgreidd, eða úthlutað veiðileyfum í öðrum ám eftir samkomulagi. Þetta er sameiginleg ákvörð- un SVFR, sem hefur ána á leigu, og stjórnar Veiði- félags Andakílsár og bygg- ir á ráðlegginum sérfræð- inga Hafrannsóknastofn- unnar í kjölfar mengun- arslyss í ánni í vor. Haf- inn er undirbúningur að því að taka fisk úr Anda- kílsá í sumar til klaks þar sem ljóst þykir að sá ár- gangur seiða sem var í ánni þegar aurinn barst í hana hafi orðið fyrir verulegum skakkaföllum. Því þurfi að huga sérstaklega að því að styðja við uppbyggingu laxastofnsins. -mm Ásbjörn RE seldur til Íran RVK: Gengið hefur verið frá sölu á ísfisktogaranum Ásbirni RE 50 til íransks út- gerðarfélags og verður tog- arinn afhentur kaupendum í þessari viku. Að sögn Vil- hjálms Vilhjálmssonar, for- stjóra HB Granda, er sölu- verð togarans 450 þúsund dollarar, eða jafnvirði um 45 milljónir íslenskra króna. Samkvæmt jónasi Guð- björnssyni, fjármálastjóra HB Granda, er endanlegur afhendingardagur ekki kom- inn á hreint en íranska út- gerðin ætlar að nota togar- ann til botnfiskveiða og verð- ur aflinn frystur um borð. -mm Aflatölur fyrir Vesturland dagana 3. - 9. júní Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 6 bátar. Heildarlöndun: 18.591 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 11.276 kg í tveimur löndun- um. Arnarstapi 23 bátar. Heildarlöndun: 27.142 kg. Mestur afli: Bryndís SH: 3.222 kg í einni löndun. Grundarfjörður 16 bátar. Heildarlöndun: 260.391 kg. Mestur afli: Steinunn SF: 115.546 kg í tveimur lönd- unum. Ólafsvík 38 bátar. Heildarlöndun: 138.098 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarna- son SH: 24.549 kg í tveimur löndunum. Rif 24 bátar. Heildarlöndun: 223.897 kg. Mestur afli: Rifsnes SH: 66.472 kg í einni löndun. Stykkishólmur 27 bátar. Heildarlöndun: 121.452 kg. Mestur afli: Kristbjörg SH: 10.705 kg í sex löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Rifsnes SH - RIF: 66.472 kg. 8. júní. 2. Steinunn SF - GRU: 58.493 kg. 6. júní. 3. Steinunn SF - GRU: 57. 053 kg. 3. júní. 4. Hringur SH - GRU: 52. 515 kg. 6. júní. 5. Helgi SH - GRU: 46.321 kg. 6. júní. -grþ Nú hefur verið staðfest að ný Faxa- flóaferja mun sigla jómfrúarsigl- ingu sína frá Reykjavík til Akra- ness á morgun, fimmtudag, klukk- an fimm síðdegis. Ferjan er komin til landsins og er nú unnið að því að merkja hana en hún mun ekki heita Akraborgin eins og orðrómur hafði verið um. Við komuna til Akranes- hafnar á morgun segir Gunnlaugur Grettisson framkvæmdastjóri Sæ- ferða að búast megi við skemmt- un. „Það verður smá húllumhæ og bæjarbúum gefst tækifæri til þess að fara í siglingu með bátum. Við ætl- um svo að hafa einhverjar siglingar um helgina og síðan að hefja reglu- legar flóasiglingar á mánudaginn. Báturinn er flottur og okkur hlakk- ar mikið til að fara hefja starfsemi,“ segir Gunnlaugur. Ferjan er 22,5 metra löng tví- bytna, háhraðaferja sem tekur 112 farþega í senn. Getur hún siglt á allt að 35 hnúta hraða en áætlað er að sigla henni á 25 hnútum milli Akra- ness og Reykjavíkur. Siglingin mun því taka um það bil hálfa klukku- stund. Ferjan var smíðuð árið 2007 og var keypt frá Noregi. Ferjusiglingar þessar verða til- raunaverkefni með stuðningin frá Reykjavíkurborg og Akraneskaup- stað. Fyrst um sinn eru áætlað- ar ferðir á virkum dögum klukk- an 7:00 frá Reykjavík og 7:30 frá Akranesi, 10:30 frá Reykjavík og 11:00 frá Akranesi og loks 17:30 frá Reykjavík og 18:00 frá Akranesi. Ekki eru áætlaðar ferðir um helgar en Sæferðir sem standa að ferjusigl- ingunum vilja hlusta á raddir fólks á svæðinu og kanna hvort mark- aður sé fyrir aðrar áætlaðar ferð- ir. Einnig ætla Sæferðir að kanna hvort möguleiki sé á því hvort hægt verði að hafa sérstakar áætlunar- ferðir í kringum Menningarnótt, knattspyrnuleiki og fleira í þeim dúr. Fólki býðst að kaupa kort sem gildir í 20 skipti og mun ferðin þá kosta 875 en stök ferð verður nokk- uð dýrari. bþb Jómfrúarsigling nýrrar ferju á morgun Sveitarstjórn Borgarbyggðar hef- ur samþykkt breytingu á aðal- og deiliskipulagi sem heimilar breytta landnotkun og stækkun lóðar gamla Húsmæðraskólans á Varmalandi. Skipulagt svæði verður nú 3,2 hekt- arar í stað 2,1 ha áður og skilgreint fyrir verslun og þjónustu auk þess sem heimilað verður að stækka hús- ið. Fyrirtækið Lava - hótel Varma- landi hefur í vetur látið endurinn- rétta húsið en markmið skipulags- breytinganna er m.a. að tryggja at- vinnuuppbyggingu í ferðaþjónustu á lóð gamla Húsmæðraskólans, eins og segir í fundargerð sveitarstjórn- ar. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni stendur til að byggja við húsið en þar hafa í vetur stað- ið yfir miklar framkvæmdir við að breyta gömlu skólabyggingunni í 60 herbergja hótel. Eins og fram kom í viðtali í Skessuhorni í vetur við eigendur hótelsins er gert ráð fyrir að í nýbyggingu við það verði móttaka og veitingasalur. mm Lava Hótel Varmalandi fær stærra land Markaðsráð kindakjöts hefur ósk- að eftir því við Samkeppniseftirlitið að veitt verði undanþága frá sam- keppnislögum vegna samstarfs slát- urleyfishafa hér á landi um útflutn- ing og markaðssetningu íslensks kindakjöts á erlendum mörkuð- um. „Með samstarfinu er mark- miðið að stuðla samhliða að betri nýtingu fjármuna og auknum ár- angri í útflutningi og markaðssetn- ingu,“ segir í tilkynningu frá Mark- aðsráði. „Við erum að framleiða hágæða vörur við einstakar aðstæður. Við teljum að þessi sérstaða geti skap- að mikil tækifæri til markaðssetn- ingar kindakjöts á erlendum mörk- uðum sé rétt staðið að málum. Það er hins vegar afar hörð samkeppni á þessum mörkuðum og því er nauð- synlegt að þeir aðilar sem koma að þessum málum hér á landi geti snúið bökum saman til að auka lík- ur á árangri,“ segir Oddný Steina Valsdóttir formaður Markaðsráðs kindakjöts. „Sauðfjárbændur hafa þurft að taka á sig afurðarverðs- lækkanir á undanförnum árum. Með öflugra útflutningsstarfi er markmiðið að breyta þeirri þróun og auka stöðugleika í útflutningi.“ Samstarfið um sölu byggir á því að Markaðsráð kindakjöts bjóði hverjum og einum sláturleyfis- hafa að taka þátt á grundvelli sér- staks samnings þar um. Í samning- unum myndi felast að sláturleyfis- hafi skuldbindi sig til að flytja út tiltekinn hluta þess lambakjöts sem hann framleiðir á gildistíma und- anþágunnar. Markaðsráð mun hafa yfirumsjón með útflutningnum og halda utan um þau gögn sem verk- efninu tilheyra. Ef af samstarfinu verður munu sláturleyfishafar láta Markaðsráði kindakjöts í té opin- ber gögn um viðskipti á erlendum mörkuðum, þ.e. afrit af reikning- um, tollskýrslum og farmbréfum sem staðfesti að afurðir hafi farið úr landi. Markaðsráð myndi halda utan um gögnin og yrði enn fremur óheimilt að miðla þeim á milli slát- urleyfishafa. Miðlun slíkra upplýs- inga hvað innanlandsmarkað varð- ar yrði áfram með öllu óheimil. Markaðsráð kindakjöts telur ekki að samstarfið sé til þess fallið að raska samkeppni hér á landi og falli í meginatriðum utan gildissviðs samkeppnislaga enda lýtur það ekki að neinu leyti að sölu eða markaðs- setningu kindakjöts á Íslandi eða innlendri starfsemi sláturleyfishafa að öðru leyti. Ósk Markaðsráðs til Samkeppniseftirlitsins felur í sér undanþágu til 1. september 2019 og munu aðilar samstarfsins láta samstundis af samvinnunni þeg- ar undanþágan rennur út. Við lok frestsins skal skila Samkeppniseftir- litinu greinargerð um framkvæmd samkomulagsins og hvernig því er lokið gagnvart aðilum þeim sem verkefnið lýtur að. mm Markaðsráð óskar eftir undanþágu frá samkeppnislögum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.