Skessuhorn - 14.06.2017, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 201724
Brákarhátíð verður haldin í Borg-
arnesi um aðra helgi, dagana 23.-
24. júní. Að venju er allur undir-
búningur fyrir hátíðina unninn í
sjálfboðaliðavinnu með stuðningi
frá fyrirtækjum og sveitarfélaginu
Borgarbyggð en Hollvinasamtök
Borgarness halda utan um skipu-
lagningu hátíðarinnar. „Þetta er í
raun sjálfsprottin hátíð en Holl-
vinasamtökin sjá um að halda þessu
gangandi, að skipuleggja undir-
búningsfundi og þess háttar,“ segir
Eiríkur Þór Theodórsson formað-
ur Hollvinasamtaka Borgarness í
samtali við Skessuhorn. „Félagið
sjálft heldur til dæmis utan um að
safna styrkjum í gegnum auglýs-
ingar og áheit. En Brákarhátíð er
sjálfsprottin íbúahátíð, íbúar sjá til
dæmis sjálfir um að skreyta og við
reynum sem minnst að stjórna og
erum meira að hjálpa til. Þetta er
hátíð allra Borgnesinga og Borg-
firðinga, fyrir alla sem vilja vera
með,“ bætir hann við. Dagskrá
Brákarhátíðar í ár verður með
hefðbundnu sniði, fjölbreytt og
skemmtileg. Í ár hefst hátíðin degi
fyrr en áður en Arion banki stend-
ur fyrir fjölskyldutónleikum og
pylsupartýi á fimmtudagskvöldinu
á vellinum fyrir neðan Þórðargötu,
þar sem Hljómlistarfélag Borgar-
fjarðar og fleiri munu spila.
Leðjuleikar og
skrautvagnakeppni
Á föstudag verða hin hefðbundnu
götugrill en þá munu íbúar Borg-
arbyggðar skreyta sínar götur í við-
eigandi litum eftir hverfum. Að
vanda verða svo veitt verðlaun fyr-
ir bestu skreytingarnar. „Hljóm-
listarfélag Borgarfjarðar ætlar að
sjá um öll tónlistaratriði á Brák-
arhátíð. Á föstudeginum munu þeir
fara á milli hverfa og halda uppi
stemningu með söng í götugrill-
unum. Svo verður félagið með at-
riði í garðinum á laugardeginum og
á kvöldvökunni á laugardagskvöld-
inu,“ segir Eiríkur.
Líkt og fyrr segir verður dag-
skrá hátíðarinnar fjölbreytt og er
hún enn að taka á sig lokamynd. Að
vanda verður boðið upp á bátsferð-
ir í Brákarey og markaðsstemning
verður í Skallagrímsgarði, víking-
ar og hestar. Þá verða nokkrar nýj-
ungar á döfinni. „Það nýjasta er að
við ætlum að vera með óvélvædda
skrautvagnakeppni í skrúðgöng-
unni á laugardag. Þá geta hverf-
in búið til frumleg farartæki í sín-
um lit og með þessu má lífga upp
á skrúðgönguna og mynda karni-
val stemningu,“ segir Eiríkur. Þá
verða Leðjuleikarnir í leirvogin-
um endurvaktir á Brákarhátíð í ár
og verða í „Wipe out“ stíl. Komu
hugmyndirnar um Leðjuleikana og
vagnana frá íbúum Borgarness á
íbúafundum sem haldnir voru um
Brákarhátíðina. Krakkar í Borgar-
nesi komu með þá hugmynd að sér-
stök keppni yrði milli barna og full-
orðinna en þá þyrftu þeir fullorðnu
að hafa bundið fyrir augun og fætur
bundna saman til að leikurinn yrði
sanngjarn. Latabæjarþrautabraut
verður á íþróttavellinum og þar er
stefnt að því að einhverjir munir
úr Latabæjarsafninu verði sýndir á
svæðinu. „150 ára afmæli Borgar-
ness fær auðvitað sinn sess á há-
tíðinni. Ljósmyndasýning verður
í Óðali þar sem yfir 600 myndir
verða sýndar úr Sögu Borgarness
og svo verður farin söguganga frá
íþróttahúsinu. Þá er gaman að segja
frá því að Lífland á einmitt afmæli
þessa helgi og því ætla þeir að halda
grillveislu og vera með hesta í garð-
inum hjá sér,“ segir Eiríkur. Hátíð-
in endar að vanda með dansleik í
Hjálmakletti sem Knattspyrnudeild
Skallagríms stendur fyrir. Í ár verð-
ur það Sálin hans jóns míns sem
leikur fyrir dansi.
grþ
Brákarhátíð verður um aðra helgi
Brákarhátíð verður haldin helgina 23. - 24. júní næstkomandi. Skrúðgangan verður á sínum stað og nú verður einnig
skrautvagnakeppni þar.
Síðdegis á mánudaginn varð jón
Björnsson þjóðgarðsvörður á Snæ-
fellsnesi var við reyk í Beruvíkur-
hrauni. Kviknað hafði í mosa og
lyngi við gömlu vermannagöt-
una sem liggur frá Sandhólum um
Beruvíkurhraun í Dritvík. Logaði
eldurinn á um 1500 fm svæði og
breiddist hratt um mosabreiðuna
sem liggur um 300 metra frá bíla-
stæðinu hjá gönguleiðinni. Þjóð-
garðsvörður, landverðir og sjálf-
boðaliðar Þjóðgarðsins brugðust
skjótt við að hefta útbreiðslu elds-
ins og náðu að lokum að slökkva
hann. Tók verkið um tvær klukku-
stundir og var svæðið vaktað fram
að miðnætti.
jón er starfsmaður Umhverfis-
stofnunar sem hefur umsjón með
friðlýstum svæðum. Segir hann
mikið happ að hann skyldi hafa
orðið eldsins var svo skjótt, því eld-
urinn hefði að öðrum kosti breiðst
mjög hratt út um þurran gróðurinn.
Hann telur eldsupptök þau að reyk-
ingamaður hafi hent frá sér logandi
sígarettustubbi í skraufþurran mos-
ann. Lítið hafi rignt í þjóðgarðin-
um í þrjár vikur og nærri hafi legið
að mjög illa færi. Þjóðgarðsvörður
vill brýna fyrir gestum Þjóðgarðs-
ins að fara varlega með eld. Henda
alls ekki sígarettustubbum út í nátt-
úruna heldur taka þá með sér. Auk
eldhættu sé sóðaskapur af stubbum.
Því má við þetta bæta að Mýraeld-
arnir miklu vorið 2006 kviknuðu
einnig af völdum sígarettu sem
hent var úr bíl. mm
Sígarettuglóð
talin hafa kveikt
gróðureld í þjóðgarði
Slökkvistarf í gangi. Ljósm. Bjargey Ólafsdóttir landvörður.
Hafnir eru lífæðar allra samfé-
laga sem kenndar eru við útgerð
og vinnslu. Þaðan koma menn og
fara, ræða saman og miðla upplýs-
ingum, fá jafnvel í soðið. En fyrst
og síðast er þar landað fiski, mikil-
vægustu auðlind Íslendinga fyrr og
síðar. Í seinni tíð er í vaxandi mæli
farið að sigla með fólk út á sund-
in. Meðfylgjandi myndir voru tekn-
ar sitt hvorum megin við Snæfells-
jökul á lygnum og fallegum Hvíta-
sunnudegi. Á helgum dögum sem
þessum er lítið um að vera. Ein-
staka karlar voru þó að huga að bát-
um sínum, taka eldsneyti eða ditta
að búnaði og veiðarfærum. Hafnir
hafa allar sinn sjarma, hver á sinn
hátt. Myndirnar eru frá Arnarstapa
og Rifi.
mm
Hafnir hafa sinn sjarma