Skessuhorn - 14.06.2017, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 201712
Í sumar mun nýr sérútbúinn bíll á
vegum já, í samstarfi við Toyota,
taka 360° myndir við helstu kenni-
leiti og götur bæja hér á landi fyrir
kortavefinn á já.is. Um er að ræða
umhverfisvænan Toyota Yaris Hy-
brid bíl. já-bíllinn verður á ferð-
inni á höfuðborgarsvæðinu og á
Suðurnesjum í júní en fer síðan
um Suðurland, Austurland, Norð-
urland, Vestfirði og Vesturland í
júlí og ágústmánuði. Hægt verð-
ur að fylgjast með ferðum bílsins á
Facebooksíðu já og á já.is er hægt
að nálgast ferðaáætlun bílsins. Sér-
stakur hugbúnaður er notaður við
verkefnið og á bílnum er áföst 360°
myndavél. Öll myndagögnin eru
með GPS hnitum og verða þau
tengd kortavefnum á já.is. Fyrir
utan götumyndir á kortavefnum þá
er einnig hægt að skoða 360°mynd-
ir innandyra hjá fyrirtækjum.
Notendur já, íslenskir sem er-
lendir, nýta kortavefinn til skoða
götumyndir áður en lagt er af stað í
ferð um landið. Með aukinni notk-
un snjallsíma hefur notkun korta-
vefsins aukist verulega en um 240
þúsund manns nota kortvef já.is.
360° myndirnar eru opnaðar um
80- 90 þúsund sinnum í hverjum
mánuði.
„Þetta er algjört draumastarf, ég
fæ tækifæri til að ferðast um allt
landið í sumar, skoða helstu nátt-
úruperlurnar og heimsækja af-
skekkta staði. Verkefnið fléttast
einnig skemmtilega saman við mitt
helsta áhugamáli sem er ljósmynd-
un. Það verður hægt að fylgjast
með ferðalaginu mínu á Facebook
síðu já en við munum vera dugleg
að setja efni þar inn,“ segir Frí-
mann Kjerúlf Björnsson bílstjóri
já-bílsins. mm
Já 360° bílinn myndar
um allt land í sumar
Síðastliðinn laugardag voru tvær
sumarsýningar opnaðar í Norska
húsinu í Stykkishólmi. Að þessu
sinni verða sýningarnar tvær tals-
ins; myndlistarsýning eftir Ernu
Guðmarsdóttur, Fuglar og Fantasí-
ur og ljósmyndasýning eftir Hjör-
dísi Eyþórsdóttur af Snæfellsnesi.
Báðar sýningarnar standa til 31.
ágúst 2017.
Erna Guðmarsdóttir er fædd í
Reykjavík árið 1940 og stundaði
fyrst listnám við Myndlistaskóla
Reykjavíkur og lauk svo prófi með
kennsluréttindum frá Myndlista-
og handíðaskóla Íslands. Erna hef-
ur mikla tengingu við Stykkishólm
og á hún hús þar ásamt eiginmanni
sínum Steinþóri Sigurðssyni. Á
sýningunni Fuglar og Fantasí-
ur gefur að líta nýjustu verk Ernu
þar sem efniviðurinn er sóttur í
margbreytilegan og litríkan heim
fuglanna. Fuglar Ernu eru ýmist af
tegundum sem við þekkjum vel eins
og hrafnar, lóur, gæsir og tjaldar en
sjálf hefur listakonan farið á hugar-
flug og skapað nýjar tegundir sem
mæla sér mót við kirkjuglugga eða
eiga fagnaðarfund á grein.
Hjördís Eyþórsdóttir er fædd
í Reykjavík árið 1991. Hún hef-
ur undanfarin tvö ár verið búsett í
Stykkishólmi. Sýningin Snæfells-
nes er fyrsta sýning Hjördísar. Hún
hóf að taka ljósmyndir árið 2016
og hefur lengi haft mikinn áhuga á
ljósmyndun. Hún tekur oftast ljós-
myndir af nærumhverfi sínu sem er
Snæfellsnes. Í janúar síðastliðinn
fór hún til Kína og dvaldi þar í sex
vikur, ferðaðist og ljósmyndaði það
sem fyrir augu bar. Ljósmyndirnar
á sýningunni eru teknar á árunum
2016 og 2017. -fréttatilkynning
Tvær sumarsýningar í Norska
húsinu í Stykkishólmi
Í vetur hefur verið unn-
ið við stækkun á veiðihúsi
Þverár við Helgavatns-
múla í Þverárhlíð. Var 250
fermetra stækkun tekin í
notkun um liðna helgi þeg-
ar fyrstu veiðimenn mættu
á svæðið, en veiði hófst í
ánni á laugardaginn. Við-
byggingin er öll hin glæsi-
legasta. Í henni eru sjö
rúmgóð tveggja manna
herbergi með baði en auk
þess er ýmis aðstaða bætt,
svo sem heitur pottur og
sauna á sólpalli. Þessi her-
bergi bætast við önnur sjö
sem veiðimenn geta nýtt,
til dæmis í þeim tilfell-
um þegar tveir deila sömu
stönginni, en alls er veitt
á sjö stangir í hverju holli.
Yfirverktaki í framkvæmd-
unum var Hlynur Kárason
byggingameistari en undir-
verktakar í héraði tóku að
sér ýmsa verkþætti. Ragna
Þórisdóttir innanhússarki-
tekt hannaði húsið að innan
og er það allt hið smekkleg-
asta eins og sjá má á með-
fylgjandi myndum.
Leigutaki Þverár og Kjar-
arár er einkahlutafélagið
Starir sem er í eigu þeirra
Davíðs Mássonar, Halldórs
Hafsteinssonar og Ingólfs
Ásgeirssonar. Ingólfur sagði
í samtali við Skessuhorn að
prýðilega hafi gengið að
selja veiðileyfi í ána í sumar
og eru þau uppseld.
mm
Stækkað veiðihús tekið í notkun við Þverá
Horft heim að veiðihúsinu við Helgavatnsmúla. Aðstaðan öll er hin myndarlegasta, hér er pallur með sauna og heitum potti.
Útsýni úr einu herbergjanna. Herbergin í nýja veiðihúsinu eru öll hin smekklegustu, um 20 fm hvert og öll með
baði.