Skessuhorn


Skessuhorn - 14.06.2017, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 14.06.2017, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 2017 17 SK ES SU H O R N 2 01 7 Umhverfisviðurkenningar 2017 Eins og undanfarin ár vill Borgarbyggð veita viðurkenningar fyrir snyrtimennsku og hvetja íbúa til að hjálpa okkur að gera Borgarbyggð að einu snyrtilegasta sveitarfélagi landsins. Veittar verða umhverfisviðurkenningar í Borgarbyggð 2017 í eftirfarandi fjórum flokkum: Snyrtilegasta bændabýlið1. Snyrtilegasta lóð við íbúðarhús2. Snyrtilegasta lóð við atvinnuhúsnæði3. Sérstök viðurkenning umhverfis,-skipulags- og landbúnaðarnefndar vegna umhverfismála4. Óskað er eftir tilnefningum í áðurnefndum flokkum og getur hver og einn sent inn margar tilnefningar. Tilnefningar óskast sendar í Ráðhús Borgarbyggðar í bréfi eða tölvupósti á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eigi síðar en 15. ágúst 2017. SK ES SU H O R N 2 01 7 náð miklu í gegn og umgengnin orðin mikið meiri. Hann er í leik- skóla á Suðurnesjum svo ég þarf í raun að fá frí heilu og hálfu dag- ana og það er erfitt fyrir feður að fá slík frí. Ég held að þessi rekstur muni passa betur meðan við for- eldrarnir búum í sitthvoru bæj- arfélaginu. Ég hafði ekki hugsað mér að fara út í atvinnurekstur á þessum tímapunkti en með all- an þann stuðning sem ég hef frá fjölskyldu og vinum þá held ég að það sé best fyrir okkur feðgana að ég fari út í fyrirtækjareksturinn,“ segir Doddi. Samband föður og sonar Þórður, þessi þróttmikli og bros- lyndi maður, verður heldur þyngri í fasi þegar talið berst að forræð- isdeilum sem hann hefur stað- ið í undanfarin ár. „Ég og móð- ir Hjartar Leós slitum sambandi fyrir fæðingu hans. Það var öll- um fyrir bestu, en ef ég hefði vit- að hvaða hindranir biðu mín bara til að fá það sem ég tel jöfn rétt- indi til umgengni við barnið mitt, hefði ég frekar haldið sambandinu áfram. Ég ákvað strax að leggja allt í sölurnar til að ná mínu fram. Fólk sagði strax við mig að ég væri að leggja í vonlausan baráttu, kerf- ið snýst um móðurina og móður- rétturinn er rosalega sterkur. Ég komst fljótlega að því hvað kerfið er slæmt fyrir einstæða feður. Ég fékk ekki einu sinni fæðingarorlof með Hirti. Auðvitað á þessi bar- átta ekki að snúast um mæður og feður, þetta á að snúast um barn- ið og hag þess; það gleymist oft í umræðunni. Ég hef staðið í bar- áttu við kerfið bara til þess að fá að umgangast son minn meira en lágmarksumgengni kveður á um, að ég fái að hitta hann í hverri viku og geti farið með honum í sum- arfrí. Ég hvet alla feður að taka þennan slag, þetta er ekki von- laus barátta. Á móti hvet ég sýslu- mannsembættin til þess að spýta í lófana og hugsa um hag barna í þessum málum og hætta að styðja mæður sem vilja skerða réttindi feðra. Ég hef ekki áhuga á að vera faðir sem fæ að vera með syni mínum aðra hverja helgi, maður hittir barnið sitt á tólf daga fresti í lágmarksumgengni. Það myndast ekki nein tengsl foreldra og barna með svo skertri umgengni. Sam- band milli sonar og föður verður þá meira eins og samband milli frænda. Helst vildi ég vera með Hirti alla daga,“ segir Doddi. Barnið á að vera númer eitt, tvö og þrjú „Það er eins og fólk átti sig ekki á því að feður geta elskað börnin sín jafn heitt og mæðurnar og geta hugsað jafnvel um þau. Ég lifi fyr- ir son minn og geri allt fyrir hann. Þegar hann var 17 mánaða bað ég um leyfi til þess að fara með hann í tvær vikur til útlanda. Til vara bað ég um að vera í tíu daga og til vara- vara í eina viku. Þessu var öllu hafn- að og ég mátti ekki fara til útlanda með barnið mitt. Ég hafði sumar- ið sama ár verið í tíu daga sumarfríi með Hirti sem gekk ljómandi vel en það var ekki tekið mið að því. Ég var niðurlægður og ég sé í raun eftir því að hafa ekki kært þetta til umboðs- manns Alþingis. Þetta eru bara brot á mannréttindum. Það finnst öll- um þetta fráleitt í nútímasamfélagi og ég skil ekki hvers vegna þetta er svona. Móðirin gæti flutt með barn- ið til Asíu og ég gæti ekkert sagt um það, en ég gat ekki farið með honum í tveggja vikna sólarlandaferð,“ seg- ir Doddi. Vill berjast fyrir rétti annarra feðra Við fæðingu Hjartar segir Doddi að hann hafi endurhugsað lífið. „Lífið snýst um soninn núna og áherslurn- ar verða aðrar; maður hugsar lífið í nýju ljósi. Þessi barátta mun kosta mig allt að þremur milljónum króna en ég ætla ekki að gefast upp. Ég vil ryðja brautina og sýna fordæmi fyr- ir aðra feður. Ég vil ekki að sonur minn eða aðrir feður framtíðarinn- ar þurfi að standa í þessari baráttu við kerfið. Ég hef unnið marga sigra nú þegar en þá hefði ég aldrei get- að unnið nema að eiga frábæra fjöl- skyldu og vini. Ég fæ sumarfrí með Hirti í fjórar vikur í ár og í haust fæ að hitta hann í hverri viku og næsta sumar fer ég til útlanda með honum ásamt vinafólki. Þetta er allt á réttri leið og þetta er ekki vonlaus barátta. Ég vil hafa hag barnsins í huga í einu og öllu. Það er ömurlegt ef foreldr- ar geta ekki sest niður, þó svo að þeir séu ekki í sambandi lengur, og náð farsælu samkomulagi þar sem barn- ið er sett í fyrsta sæti. Barnið á alltaf að vera númer eitt, tvö og þrjú. Ég stofna þetta fyrirtæki aðallega til að get varið meiri tíma með Hirti Leó en svo er algjörlega frábært að geta loksins farið að vinna við það sem mér finnst skemmtilegast,“ segir Doddi að endingu. Hægt er að fylgjast með gangi mála inn á facebooksíðunni Sansa. is og innan skamms mun heimasíðan www.sansa.is opna. bþb Ársgömul mynd af þeim feðgum. Bilun í strandveiðibátnum Hug- rúnu RE á fimmtudaginn varð þess valdandi að Hafdís RE dróg bátinn til hafnar í Ólafsvík. Er þetta í ann- að sinn á skömmu tíma sem sami bátur dregur Hugrúnu í land eft- ir bilun. Nú ofhitnaði gírinn með þeim afleiðingum að hann er ónýt- ur. Allt gekk vel á leið til hafnar. af Dreginn í land með bilaðan gír Síðastliðinn miðvikudag hófust starfsmenn BM Vallár handa við að reisa einingar í nýja viðbygg- ingu við Fosshótel Reykholti. Síð- astliðinn vetur fóru fram jarðvegs- skipti á lóðinni og steypt plata og sökklar. Þarna mun rísa 28 her- bergja stækkun við hótelið. Þessar framkvæmdir hófust viku eftir að hótelið var opnað eftir gagngerar endurbætur á eldri húsakosti, eins og sagt var frá í síðasta Skessu- horni. mm/ Ljósm. bhs. Byrjað að reisa viðbyggingu við Fosshótel Reykholti Apótekarinn hefur í samstarfi við stuðningsfélagið Kraft hrundið af stað átaki sem ætlað er að styðja við félagsmenn Krafts sem lent hafa í fjárhagsörðugleikum vegna sjúk- dóms síns. Kraftur hefur það að leiðarljósi að aðstoða og styðja ungt fólk sem greinst hefur með krabba- mein og aðstandendur þess en inn- an félagsins hefur verið starfræktur neyðarsjóður sem styrkir meðlimi sem lenda í fjárhagslegum erfiðleik- um vegna læknis- og lyfjakostnað- ar. Apótekarinn hefur nú í samstarfi við Kraft stofnað til átaks sem ætlað er að styðja enn betur við þá félags- menn Krafts sem á þurfa að halda með því að kosta lyf og aðrar tengd- ar vörur. „Við höfum lengi fylgst með því aðdáunarverða starfi sem unnið er innan Krafts og því var það auðveld ákvörðun að fara af stað í þetta átak með þeim,“ segir Kjartan Örn Þórð- arson, fulltrúi Apótekarans. Stofnað- ur hefur verið sérstakur sjóður átak- inu til handa sem Apótekarinn mun kosta að fullu og var samningur þess efnis nýverið undirritaður. „Stuðningur sem þessi er ómet- anlegur fyrir okkar félagsmenn sem oft þurfa að greiða háar upphæðir fyrir lyf sem tengjast krabbamein- inu en eru ekki niðurgreidd í öllum tilfellum af Sjúkratryggingum Ís- lands. En þrátt fyrir þennan góða styrk verður það áfram eitt af helstu baráttumálum Krafts að krabba- meinsveikir þurfi ekki að greiða fyr- ir lyf sem tengjast sjúkdómi þeirra,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Krafts. Kraftsfélagar geta sótt um styrk í sjóðinn í gegn- um heimasíðu Krafts. mm Apótekarinn styrkir ungt fólk með krabbamein til lyfjakaupa Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæm- dastjóri Krafts og Kjartan Örn Þórðar- son frá Apótekaranum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.