Skessuhorn - 14.06.2017, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 201720
Sjómannadagurinn var haldinn
hátíðlegur á Akranesi eins og víða
um land á sunnudaginn. Hátíð-
arhöld voru öllu líflegri en ver-
ið hafa síðustu ár og var ýmis-
legt í boði fyrir bæjarbúa. Hin ár-
lega sjómannadagsmessa fór fram
í Akraneskirkju þar sem sjómað-
ur var heiðraður. Í ár var Ingi-
mar Magnússon fyrrverandi skip-
stjóri heiðraður fyrir störf sín.
Eftir athöfnina er hefð fyrir því
að messugestir gangi fylktu liði
að Akratorgi þar sem blómsveig-
ur var lagður við styttuna af sjó-
manninum.
Sjóbaðsfélag Akraness hélt dýf-
ingakeppni við Langasand þar sem
keppendur stungu sér af hinum
nýjan björgunarbáti jóni Gunn-
laugssyni en áhorfendur söfnuð-
ust saman á Aggapalli. Keppt var
í tveimur flokkum; annars veg-
ar í hefðbundinni stungu og svo
stungu með frjálsri aðferð. Ald-
ursflokkarnir voru einnig tveir en
keppt var í flokki 49 ára og yngri
og 50 ára og eldri.
Hildur Björnsdóttir opnaði
ljósmyndasýningu í Akranesvita
og spiluðu Travels Tunes Iceland
við opnunina. Mikið líf var við
höfnina fyrir fólk á öllum aldri og
mætti þyrla Landhelgisgæslunnar
og sýndi björgun úr sjó. Börnin
gátu valið um ýmislegt skemmti-
legt að gera eins og kassaklifur,
vatnsbolta og ýmsar þrautir. Lítill
markaður var á svæðinu þar sem
m.a. var hægt að kaupa afurðir
unnar úr sjávarfangi og listmuni.
Býsna margir voru á ferð um
höfnina á kajökum meðan aðrir
tóku þátt í róðrarkeppni á árabát-
um. Meðan á þessu öllu stóð barst
skemmtilegt harmónikkuspil til
eyrna.
Slysavarnadeildin Líf færði
Akraneskaupstað gjöf með form-
legum hætti niðri á Breið um
morguninn. Deildin afhenti þá
bæjarstjóranum, Sævari Frey Þrá-
inssyni, tvo björgunarhringi sem
staðsettir verða á Breið.
bþb
Sjómannadagurinn á Akranesi
Slysavarnardeildin Líf færði Akraneskaupstað tvo björgunarhringi að gjöf. Björg-
unarhringirnir verða á Breiðinni.
Sjóbaðsfélagið stóð fyrir dýfingakeppni þar sem keppt var í hefðbundni stungu og
stungu með frjálsri aðferð.
Sjómannadagsmessa fór fram í Akraneskirkju. Eftir messuna gengu kirkjugestir
að Akratorgi þar sem blómsveigur var lagður að styttunni af sjómanninum. Vil-
hjálmur Birgisson leiddi gönguna.
Dorgveiðikeppni var haldin á Sementsbryggjunni þar sem þessir hressu feðgar
voru meðal keppenda.
Ingimar Magnússon fyrrverandi skipstjóri var heiðraður fyrir störf sín. Við hlið
hans er eiginkona hans Ásthildur Theódórsdóttir.
Þyrla Landhelgisgæslunnar mætti á svæðið og sýndi björgun úr sjó.
Krakkarnir gátu spreytt sig á ýmsum þrautum á bryggjunni, meðal þeirra var
bátagerð sem þessi unga stúlka reyndi fyrir sér í.
Nokkuð fjölmennt var á bryggjunni þar sem í gangi var lítill markaður, leiktæki
fyrir börn og fleira.
Á bryggjunni voru börnin hress og kát.
Margir sigldu í rólegheitum á kajökum um Akraneshöfn.
Harmónikkutónlist ómaði um hafnarsvæðið.