Skessuhorn


Skessuhorn - 14.06.2017, Síða 29

Skessuhorn - 14.06.2017, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 2017 29 Húsnæði óskast Hjón með 3 börn óska eftir leigu- húsnæði í Borgarnesi. Anna 865-1873, Sammi 892-2944. Vantar herbergi til að leigja Óska eftir að leigja herbergi með aðgengi að eldhúsi frá 12/6 til 21/7. staff@staff.is Álfelgur til sölu 4 stk vel með farnar 15” álfelgur undan Skoda Octavia. Gatadeilingin er 5×100, passa undir eldri Skoda, margar gerðir VW og fleiri tegundir. Þær hafa eingöngu verið notaðar á sumrin og bónaðar reglulega, líta vel út. Verð kr. 40.000 fyrir ganginn. Sumardekk 14” Til sölu gangur af tæplega hálf- slitnum sumardekkjum, 185/70 R14. Þau seljast á 10.000 gangurinn. Suzuki Baleno Er með Suzuki Baleno til sölu, skráður í maí 2001. 1600cc, sjálfskiptur. Ekinn 222.600 km. Er nýskoðaður 2018. Á nýjum Nokian heilsársdekkjum að framan, hálfslitnum Toyo heilsárs- dekkjum að aftan. Ný bremsurör frá hvalbak og að afturhjólum. Diskar og klossar að framan nýjirsíðan í haust. Bremsuborðar að aftan sömuleiðis. Fram og afturhjólalegur vinstra meg- in nýjar. Nýsmurður og loftsía nýleg. Splunkunýr vatnskassi keyptur 29/05’17. Bíll í mjög flottu standi. Ásett á hann er 290þús í skiptum en eitthvað minna staðgreitt. Allar nánari upplýsingar í 662-5272 eða birna.ran.tryggva@gmail.com. Skoða skipti á nánast hverju sem er. Hnífabrýningar Brýni flestar gerðir bitjárna. Er á Akranesi. Uppl. í síma 894-0073. Greinakurlari gefins á Akranesi Á Akranesi fæst gefins greinakurlari LESCHA ZAK 1500, þarfnast smá- vægilegrar viðgerðar. Upplýsingar gefur Stefán í síma 898-2477. Markaðstorg Vesturlands Akranes - fimmtudagur 15. júní ÍA - Selfoss, 1. deild kvenna kl. 19:15. Styrktaraðilar leiksins eru Eimskip og Sæferðir en á leikdag mun ferja hefja áætlunarsiglingar á milli Akraness og Reykjavíkur. Dalabyggð - fimmtudagur 15. júní Kvöldmót UDN í Dalnum í Búðar- dal. Fyrsta mótið verður fimmtu- daginn 15. júní, annað fimmtudag- inn 20. júlí og þriðja mánudaginn 14. ágúst. Mótin hefjast kl. 18:30. Upplýsingar um skráningu, keppnisgreinar og aldursflokka er að finna á heimasíðu UDN. Borgarbyggð - fimmtudagur 15. júní Skógræktarfélag Borgarfjarðar boðar til samfélagsátaks 15. og 20. júní við gróðursetningu trjáa en félagið ætlar að gróðursetja um 50.000 trjáplöntur í skóg- ræktarlandið í Reykholti í sumar. Gróðursett verður í Reykholtsskógi 15. júní (fimmtudagur) og 20. júní (þriðjudagur) kl. 20 til 22. Mæting við Höskuldargerði. Grundarfjörður - föstudagur 16. júní Sigríðarganga - Fjallganga á Eyrar- fjall í Framsveit við Grundarfjörð kl. 20. Mæting hjá Hallbjarnareyri. Gengið á Eyrarfjall og hlaupið niður Strákaskarð. Gangan upp tekur um einn og hálfan tíma ef rólega er gengið. Síðan er hlaupið niður fjallið og er skemmsti tími 49 sekúndur, en oftast er miðað við 3 mínútur en það setur engin met í fyrstu tilraun. Dalabyggð - föstudagur 16. júní Sauðafellshlaupið 2017. Hlaupið hefst og endar við brúsapallinn á Erpsstöðum. Hlaupið er eftir þjóð- vegi 60 að Fellsenda og upp veg 585, á Fellsendabrekkunni er stefn- an tekin uppá Sauðafellið, það hlaupið þvert og niður að bænum Sauðafelli, og komið að þjóðvegi 60 á ný og þá er hringnum lokað. Hlaupaleiðin er um 12 km. Þeir sem vilja frekar hlaupa eftir vegi, geta tekið hringinn eftir þjóð- vegunum 60 og 585, þá skiljast leiðir hlaupara við Fellsenda, sú leið er um 15 km. Hlaupandi eða gangandi hver á sínum hraða. Yngsti þátttakandinn sem hefur tekið þátt er 9 ára og elsti 74 ára. Þetta er tímalaust hlaup, og hver tekur tíma á sér ef hann vill. Þó ber að geta fyrir þá sem vilja slá met að besti tími sem við vitum um er 61 mínúta. Boðið verður uppá barnagæslu á Erpsstöðum meðan á hlaupinu stendur, leikir og dýrin á bænum skoðuð. Nánari upplýsingar um skráningu og þátttökugjald er að finna á fb-síðu Erpsstaða. Borgarbyggð - laugardagur 17. júní Helgihald í Reykholtskirkju klukkan 11. Akranes - laugardagur 17. júní Hátíðarmessa kl. 13. Sr. Þráinn Haraldsson þjónar. Sveinn Þór Þorvaldsson nýstúdent flytur hátíðarræðu. Karlarnir úr Kór Akra- neskirkju leiða söng. Sveinn Arnar Sæmundsson leikur á orgel. Kaffisala kirkjunefndar kl. 14-17 í Safnaðarheimilinu Vinaminni. Nýfæddir Vestlendingar Á döfinni 31. maí. Stúlka. Þyngd 3.590 gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Helen Ósk Gísladóttir og Róbert Birgir Finnbogason, Hvanneyri. Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir. 31. maí. Stúlka. Þyngd 3.894 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar: Linda María Karlsdóttir og Úlfur Orri Pétursson, Reykjavík. Ljósmóðir: Helga R. Höskuldsdóttir. LEIGUMARKAÐUR ÓSKAST KEYPT ÝMISLEGT TIL SÖLU Akranes - mánudagur 19. júní ÍA - Fjölnir kl. 19:15. Kía er aðal- styrktaraðili á þessum leik. Kaup- félagið verður með opið fyrir stuðningsmenn Knattspyrnufélags ÍA 16.30 til 18.00 (gleðistund) . Hvetjum alla stuðningsmenn að koma saman og styðja strákana okkar til sigurs. ÝMISLEGT

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.