Skessuhorn - 14.06.2017, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 2017 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skallagrímur
sótti þrjú stig í
vikunni
BORGARNES: Á þriðjudaginn í síðustu
viku lék Skallagrímur gegn Létti í þriðju
umferð C-riðils fjórðu deildar karla í
knattspyrnu. Leiknum lauk með 3-0 sigri
Léttis en mörkin skoruðu Andri Magnús
Eysteinsson, Ísleifur Gissurarson og Guð-
mundur Gunnar Sveinsson. Skallagrímur
lék svo aftur í C-riðli á mánudaginn síð-
astliðinn gegn Úlfunum. Skallagrímur
vann þann leik 6-2 en mörk Skallagríms
skoruðu; Milos Bursac skoraði þrennu,
Yngvi Magnús Borgþórsson, Elís Dofri
G. Gylfason og Arnór Jónsson skoruðu
allir eitt mark. Næsti leikur Skallagríms
er föstudaginn, 16. júní, gegn Kormáki/
Hvöt á Hvammstanga. -bþb
Snæfell tapaði
tveimur leikjum
SNÆF: Snæfell spilaði tvo leiki í A-riðli
fjórðu deildar karla í sl. viku. Fyrri leik-
urinn var síðastliðinn fimmtudag gegn
Kríu og lauk 13-2 fyrir Kríu. Mörk Snæ-
fells skoruðu Sindri Geir Sigurðarson
og Einar Auðunn Finnbogason. Dar-
iusz Krzysztof Wota og Deividas Leskys
voru báðir reknir útaf með rautt spjald
í liði Snæfells. Síðastliðinn mánudag
lék Snæfell svo gegn liði Hamars og tap-
aði Snæfell þeim leik 14-0. Næsti leikur
Snæfells er á heimavelli gegn GG, þriðju-
daginn 20. júní.
-bþb
Albert og
Tryggvi léku í
tapi U-21
AKRANES: Um liðna helgi lék íslenska
U-21 árs landslið karla í knattspyrnu vin-
áttuleik við U-21 árs lið Englands. Leik-
urinn fór fram á St. George‘s Parks í Eng-
landi og lauk með 3-0 sigri Englands. Lið
Englands er mjög sterkt og má þar finna
fastamenn í liðum í efstu deild en liðið
hefur leik á Evrópumótinu á föstudaginn
næsta. Tveir Skagamenn komu við sögu í
leiknum. Tryggvi Hrafn Haraldsson var í
byrjunarliðinu en hann var að spila sinn
þriðja leik fyrir U-21 árs landsliðið auk
þess sem hann á einn leik fyrir A-lands-
liðið. Albert Hafsteinsson kom svo inn á
fyrir Viktor Karl Einarsson á 50. mínútu
leiksins og lék þar með sinn fyrsta leik
fyrir yngri landslið Íslands.
-bþb
ÍA gerði jafntefli
við Hamrana
AKRANES: Um helgina var fimmta um-
ferð leikin í fyrstu deild kvenna í knatt-
spyrnu. Í Boganum á Akureyri mættust
lið Hamranna og ÍA en eitt stig skildi lið-
in að fyrir leikinn. Hamrarnir voru með
sjö stig en Skagakonur sex. Leikurinn var
sannkallaður baráttuleikur og lauk með
1-1 jafntefli. Hamrarnir komust yfir strax
á níundu mínútu með marki frá Rakel
Ólu Sigmundsdóttur. Birta Stefánsdótt-
ir jafnaði metin á 37. mínútu með marki
úr vítaspyrnu. Fleiri mörk voru ekki skor-
uð og jafntefli staðreynd. Eftir leikinn eru
bæði lið við miðja deild, Hamrarnir með
átta stig í fimmta sæti og Skagakonur
með sjö stig í sjötta sæti. Næsti leikur
Skagakvenna er á Akranesvelli á morg-
un gegn Selfossi.
-bþb
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnu-
kylfingur hjá GKG og íþróttastjóri
Golfklúbbsins Leynis, átti frábær-
an lokadag í KPMG bikarnum í
Belgíu á sunnudaginn, en mótið var
hluti af evrópsku áskorendamóta-
röðinni. Fyrir lokadaginn var Birg-
ir Leifur í 14.-16. sæti á tíu högg-
um undir pari. Eftir níu holur var
hann tveimur höggum undir pari
og var að missa af efstu mönnum.
Hann átti hins vegar afar góðan
lokasprett og setti niður fjóra fugla
á seinni níu og lék á 66 höggum eða
sex undir pari vallarins. Birgir klár-
aði mótið á sextán höggum undir
pari sem skilaði honum fjórða sæti
á mótinu, þremur höggum lakari
árangur en Austurríkismaðurinn
Martin Wiegele sem sigraði á mót-
ið. Birgir Leifur fékk 800 þúsund
krónur í verðlaunafé fyrir fjórða
sætið en árangur hans mun líklega
fleyta honum nokkuð ofar á stiga-
lista áskorendamótaraðarinnar sem
og heimslistans í golfi.
bþb
Birgir Leifur lék lokadaginn
á sex höggum undir pari
Víkingsstúlkur tóku á móti sterku
liði Sindra í fimmtu umferð 1.
deildarinnar í knattspyrnu á síðasta
laugardag. Það var Salvör Dalla
Hjaltadóttir sem gerði fyrsta mark
leiksins fyrir Sindra á 15. mínútu og
Phoenetia Browne setti svo annað
mark fyrir Sindrastúlkur á 25. mín-
útu. Víkingsstúlkur gáfust þó ekki
upp og fengu víti á 35. mínútu sem
Unnbjörg jóna Ómarsdóttir skor-
aði úr og lagaði stöðuna í 1 - 2 og
var hún þannig þegar flautað var til
hálfleiks. Víkingsstúlkur héldu bar-
áttu sinni áfram þó hún hefði ekki
tilætlaðan árangur en á 75. mínútu
bætti Inga Kristín Aðalsteinsdótt-
ir þriðja markinu við fyrir Sindra.
Það fór því svo að leikurinn endaði
1 - 3. Víkingsstúlkur eru því enn
í neðsta sæti eftir fimm umferðir
með eitt stig. Þær eiga næst leik við
Tindastól á Sauðárkróki föstudag-
inn 16. júní. þa
Víkingsstúlkur
þurftu að lúta í gras
Í síðustu viku var dregið í 8-liða
úrslit Borgunarbikarsins í knatt-
spyrnu karla. ÍA var eitt af þeim
átta liðum sem voru í pottinum en
sex úrvalsdeildar lið og tvö fyrstu
deildar lið eru eftir. Skagamenn
drógust á móti fyrstu deildar liðinu
Leikni Reykjavík og fer leikurinn
fram í Breiðholtinu mánudaginn 3.
júlí. Skagamenn náðu sínum besta
árangri í bikarkeppninni í áratug á
dögunum þegar þeir slógu út lið
Gróttu í 16-liða úrslitum.
bþb
Skagamenn mæta Leikni
Úr leik ÍA og Gróttu í 16-liða úrslitum.
Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
Golfklúbbur Leynir og kylfing-
urinn Valdís Þóra jónsdóttir hafa
skrifað undir afrekssamning. Það
var gert um helgina þegar styrktar-
mót fyrir Valdísar Þóru fór fram á
Garðavelli. „Um er að ræða tíma-
mótasamning sem innifelur stuðn-
ing við atvinnukylfinginn Valdísi
Þóru sem keppir á Evrópumótaröð
kvenna (Ladies European Tour) og
leikur undir merkjum Leynis. Golf-
klúbburinn Leynir hefur markvisst
síðustu misseri unnið að undirbún-
ingi samninga við kylfinga Leynis
og er þetta fyrsti samningurinn af
þessum toga við afrekskylfing úr
röðum Leynis. Með samningnum
vill Golfklúbburinn Leynir gera af-
rekskylfingum kleift að iðka golfí-
þróttina og efla sig til að ná enn
betri árangri,“ segir í tilkynningu
frá félaginu.
Afrekssamningurinn felur m.a. í
sér að Leynir styrkir Valdísi Þóru
vegna mótahalds á Eimskipsmóta-
röðinni og Evrópumótaröð kvenna
ásamt öðrum stuðningi er varðar
aðgengi að Garðavelli fyrir styrkt-
armót og afnot af æfingasvæði og
æfingaboltum Leynis án endur-
gjalds.
mm
Golfklúbburinn Leynir gerir
afrekssamning við Valdísi Þóru
Valdís Þóra Jónsdóttir og Guðmundur Sigvaldason framkvæmdastjóri Leynis við
undirskrift afrekssamnings.
Í vor greindist Samira Suleman fyr-
irliði kvennaliðs Víkings Ólafsvíkur
með æxli í kviðarholi. Samira fór í
aðgerð á sjúkrahúsinu á Akranesi
síðastliðinn fimmtudag þar sem æxl-
ið var fjarlægt. Í fréttatilkynningu
sem Víkingur sendi frá sér næsta
dag er haft eftir lækninum sem
framkvæmdi aðgerðina að hún hafi
gengið afar vel og bjartsýni sé á að
Samira nái góðum bata.
Þegar ljóst var að Samira væri
með æxli í kviðnum og þyrfti að
fara í kostnaðarsama læknismeð-
ferð ákvað félagið að stofna til söfn-
unar til þess að létta undir með
henni. Segir í fréttatilkynningu Vík-
ings að sú söfnun hafi gengið von-
um framan. Skessuhorn greindi frá
því að önnur knattspyrnufélög hafi
lagt sitt að mörkum; félögin FH og
Valur gáfu allan ágóða af leik sínum
í 16-liða úrslitum Borgunarbikars
kvenna og einnig styrkti kvennalið
ÍR Samiru um 50 þúsund krónur.
Stjórn Víkings Ólafsvíkur og Sam-
ira vilja koma á framfæri þakklæti til
þeirra sem létu fé af hendi rakna til
söfnunarinnar og einnig fyrir þann
hlýhug sem henni var sýndur. Fram-
undan hjá Samiru er endurhæfing
og bataferli. „Hún er mikil keppnis-
manneskja og efumst við ekki um að
hún komi tvíefld til baka,“ segir lok
fréttatilkynningar Víkings. bþb
Bjartsýni á góðan bata
Samiru Suleman
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verð-
ur haldið opnunarmót frisbígolf-
vallar sem nýverið var settur upp í
Búðardal. Mótið hefur fengið tit-
ilinn „Búðardalur Open“ í anda
stórmóta í golfheiminum. Sindri
Geir Sigurðarson heldur utan
um mótshaldið og fer skráning
fram í gegnum netfangið sindri-
geir98@gmail.com Mótið er ein-
staklingskeppni fyrir 6 ára og eldri
en foreldrum er velkomið að að-
stoða yngstu börnin. Keppt verð-
ur til verðlauna í barna- og full-
orðinsflokki. Vakin er athygli á því
að keppendur þurfa að mæta með
frisbídiska. sm
Opnunarmót frisbígolfvallar
- Búðardalur Open