Skessuhorn


Skessuhorn - 19.07.2017, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 19.07.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 19. júlí 20172 Spáð er hita víða um land um helgina, allt að 20 stigum í innsveit- um. Fólk er minnt á að njóta góða veðursins á meðan það varir. Á morgun verður austan- og suð- austan 5-10 m/sek og víða lítilsháttar væta af og til, hiti 10-15 stig. Á föstu- dag fram á sunnudag má búast við að það verði hægviðri og skýjað en yfirleitt úrkomulítið, hiti víða að 20 stigum í innsveitum. Á mánudag er útlit fyrir fremur hæga suðlæga átt með lítilsháttar vætu. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns: Ert þú hlynnt/ur því að nota lúpínu til landgræðslu? Meirihluti svaranda var hlynntur því að nota lúpínu til landgræðslu eða 61%, það voru svo 32% sem sögðust svo ekki vera hlynnt því og loks voru 7% hlutlaus í málinu. Í þessari viku er spurt: Hvaða hópíþrótt finnst þér skemmtilegast að fylgjast með? Tryggvi Konráðsson ver öllum sín- um frístundum í að gera upp gamla bíla er Vestlendingur vikunnar. Bílar Tryggva eru mikið augnayndi fyr- ir alla bílaáhugamenn. Hægt er að lesa um Tryggva og „nýjasta“ bílinn á bls. 20. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Næstu útgáfur SKESSUHORN: Skessu- horn kemur út næstu tvo mið- vikudaga, 26. júlí og 2. ágúst. Eftir það fara starfsmenn í viku sumarleyfi og kemur því ekki út blað miðvikudag- inn 9. ágúst. Auglýsendur og þeir sem þurfa að koma efni á framfæri eru beðnir að gera ráð fyrir þessu. -mm Syngja á bernskuslóðum VESTURLAND: Vestlend- ingarnir og óperusöngvararn- ir Guðrún Ingimars og Elm- ar Gilbertsson, sem hafa búið og starfað um árabil erlendis, verða á heimaslóðum helgina 12.-13. ágúst nk. Guðrún og Elmar verða með tónleika í Dalabúð í Búðardal 12. ágúst kl. 20.00 og í Borgarneskirkju 13. ágúst kl. 17. Á efnisskránni verða íslensk sönglög og söng- leikjatónlist. Miðaverð er 2.500 krónur (ekki er tekið við greiðslukortum). Tónleikarn- ir eru styrktir af Sóknaráætlun Vesturlands. -fréttatilk. Sækir um styrk til bókaútgáfu AKRANES: Þorsteinn jóns- son ættfræðingur hefur ósk- að eftir styrk frá Akraneskaup- stað til að undirbúa útgáfu rit- verksins „Skagamenn – Fólk- ið sem byggði bæinn.“ í fjög- urra binda bókverki yrði rak- in forsaga byggðar á Akranesi frá 1900 til 1930 og rakin saga húsanna og allra húsráðenda í tæplega 600 þáttum. Sam- kvæmt erindi sem Þorsteinn sendir Akraneskaupstað seg- ir hann handrit að fjögurra binda verki vera komið á það stig að hægt væri að senda hús- ráðendum beiðni um myndir til að skreyta með bækurnar. „Kostnaður við hvert bindi er áætlaður um sex milljónir, að frátöldum höfundarlaunum. Hluta þess kostnaðar þarf að afla með styrktarfé til að höf- undur ráðist í útgáfuna, því ekki er gert ráð fyrir að bók- salan standi undir öllum til- fallandi kostnaði,“ skrifar Þor- steinn jónsson. Bæjarráð vís- aði erindi hans til umsagnar í menningar- og safnanefnd. Gista í bílum VESTURLAND: Nokk- uð hefur verið um að lög- regla hafi afskipti af erlend- um ferðamönnum sem gista í bifreiðum sínum á bílastæðum eða á öðrum svæðum sem ekki eru ætluð til slíks. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Vesturlandi. Um er að ræða brot á lögreglusamþykkt og er ferðafólki vísað á næsta tjald- stæði. -kgk Into the Glacier, sem selur ferð- ir í ísgöngin í langjökli, er hundr- aðasta fyrirtækið sem slæst í hóp þeirra fyrirtækja sem innleiða Vakann, gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar á íslandi. Göng- in voru opnuð fyrir gesti í júní 2015 og hefur gestum fjölgað gríðarlega á þeim tveimur árum sem liðin eru. Að sögn Sverris Árnasonar, gæða- stjóra Into the Glacier, fer starf- semin fram við krefjandi aðstæður og leggja starfsmenn mikið upp úr ábyrgri umgengni við náttúruna. „langtímamarkmið Into the Glacier er að vera leiðandi á sem flestum sviðum í íslenskri ferðaþjónustu og er viðurkenning Vakans mikilvægur áfangi í þeirri vegferð og staðfesting á að við séum á réttri leið. Engum slíkum áfanga væri þó náð án elju og dugnaðar starfsfólks fyrirtækisins. Við leggjumst öll á árarnar til að veita afburða þjónustu á öruggan og ábyrgan hátt, í sátt við umhverfi og samfélag,“ segir Sverrir. mm Into the Glacier hundraðasta fyrirtækið í Vakanum Við munna ísganganna á vestanverðum Langjökli. Ljósm. úr safni. Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri afhenti Sigurði Skarphéðinssyni framkvæmdastjóra Into the Glacier viðurkenningarskjal um þátttökuna í Vakanum. Talið er að á milli tvö og þrjú tonn af úrgangsolíu hafi lekið út í jarð- veg á Breið á Akranesi síðastliðinn Olía lak út í jarðveg á Breiðinni Torfæruklúbbur Suðurlands held- ur síðustu umferð íslandsmeist- aramótsins í torfærukeppni í mal- argryfjunum við Fellsenda í Hval- fjarðarsveit sunnudaginn 23. júlí. Keppnin hefst klukkan 11 og er áætlað að henni ljúki klukkan 17. Keppt verður í sex brautum í flokki götubíla, sérútbúinna bíla og sér- útbúinna götubíla. Skráningar- frestur rennur út á miðnætti mið- vikudaginn 19. júlí. Aðgangseyrir á mótssvæðið er 1500 krónur en frítt fyrir 12 ára og yngri. mm fimmtudag þegar Olíudreifing var að dæla úrgangsolíu. lok eða ventill á lögninni gaf sig með fyrrgreindum afleiðingum. jarðvinnuverktaki var fenginn til að hreinsa upp mengað- an jarðveg. leiðslan sem um ræð- ir er gömul og niðurgrafin. liggur hún frá Akraneshöfn og upp að ol- íubirgðastöðinni á Breiðinni. mm Torfærukeppni í gryfjunum við Fellsenda á sunnudaginn Svipmynd frá keppninni á Fellsenda í fyrra. í Skessuhorni í síðustu viku var sagt frá veiði í nokkrum laxveiði- ám. Meðal annars birtist mynd af Sólveigu Einardóttir sem hélt á tveimur löxum sem hún hafði þá veitt í Straumunum í Borgarfirði. Mynd þessi vakti athygli áhuga- manna um laxveiði þar sem ann- ar laxinn var augljóslega ekki úr villtum stofni, heldur eldislax sem einhversstaðar hefur slopp- ið úr kvíum. í framhaldi af því var óskað eftir því að Skessuhorn birti upplýsingar til veiðimanna um hvernig þekkja megi eldislax- inn frá villtum löxum og hvernig bregðast eigi við ef hann veiðist. Eftirfarandi upplýsingar eru frá Veiðimálastofnun: „Á síðustu árum hefur laxeldi í sjókvíum aukist hér við land. Umtalsverður fjöldi laxa af upp- runa kynbættra norskra eldislaxa eru því í eldiskvíum hér við land. Brýnt er að eldisbúnaður og verk- ferlar við eldið sé með þeim hætti að laxar haldist í kvíum og sleppi ekki úr þeim. Ef það gerist geta eldislaxar gengið í ár og blandað- ist íslenskum laxi og þar með haft áhrif á erfðir og aðlögunarhæfni villtra laxastofna. Mikilvægt er að veiðimenn séu vakandi fyrir því hvort eldislaxar veiðast í ám en oft má þekkja þá frá villtum löx- um á útlitseinkennum en einnig með því að greina uppruna þeirra með greiningum á hreistri og með greiningu erfðaefnis. Veiðimálastofnun og Fiskistofa hafa sett saman myndir sem eiga að geta nýst veiðimönnum við að þekkja algeng útlitseinkenni á eldislöxum. Ef eldislaxar veiðast er mikilvægt að veiðimenn geri Veiðimálastofnun og/eða Fiski- stofu viðvart, og komi fiskum með möguleg einkenni til frekari rann- sóknar. Reiknað er með að að leið- beiningar verði settar upp í veiði- húsum en þær má einnig finna hér í prentvænni útgáfu með texta bæði á íslensku og ensku.“ mm Eldislaxar meðal fiska úr íslenskum ám Leiðbeiningar til að þekkja eldislaxa í veiðiám. Villti laxinn til vinstri er úr Elliðaánum, en eldislaxinn til hægri veiddist í Patreksfirði. Heimild: Veiðimálastofnun. Myndin sem vakti athygli áhuga- manna um lífríki laxveiðiáa. Laxinn til hægri er greinilega eldislax en sá til vinstri er úr villtum stofni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.