Skessuhorn


Skessuhorn - 19.07.2017, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 19.07.2017, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 19. júlí 2017 7 Arion banki er líflegur og spennandi vinnustaður. Við vinnum með viðskiptavinum okkar að því að búa í haginn fyrir framtíðina. Við ræktum jákvæðan starfsanda og leggjum áherslu á að starfsfólk okkar þroskist og þróist í starfi með markvissri fræðslu og þjálfun. Straumlínustjórnun er hluti af daglegri menningu með stöðugum umbótum og samvinnu allra starfsmanna. Jafn réttur kvenna og karla til starfa er okkur hjartans mál og árið ���� hlutum við Jafnlaunavottun VR. Saman látum við góða hluti gerast. Ert þú jákvæður dugnaðarforkur? Starf við þjónustutengsl í Stykkishólmi Arion banki leitar að öflugum starfsmanni í framtíðarstarf við þjónustutengsl í útibúi bankans í Stykkishólmi. Við leitum að einstaklingi sem hefur ánægju af því að veita framúrskarandi þjónustu og vill starfa sem hluti af góðri liðsheild. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið • Móttaka viðskiptavina • Að veita einstaklingum og fyrirtækjum þjónustu, upplýsingar og faglega ráðgjöf • Að framfylgja þjónustu- og sölustefnu bankans hverju sinni • Ýmis önnur verkefni í samráði við yfirmann Menntunar- og hæfniskröfur • Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni • Frumkvæði og söludrifni • Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni • Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum Vinnutími er kl. �.��–��.�� alla virka daga. Nánari upplýsingar veitir Aðalbjörg Anna Gunnarsdóttir útibússtjóri, sími ��� ����, netfang adalbjorg.gunnarsdottir@arionbanki.is. Umsóknarfrestur er til og með �.ágúst ����. Sótt er um starfið á arionbanki.is. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Starfsfólki HB Granda á Akra- nesi, sem sagt var upp störfum í tengslum við breytingar á bolfisk- vinnslu félagsins, var gefinn kost- ur á að sækja um áframhaldandi vinnu á öðrum starfsstöðvum á Akranesi og í Reykjavík. Frestur til þess rann út 30. júní síðastliðinn. í frétt frá fyrirtækinu segir að nú hafi 57 starfsmönnum verið boð- ið nýtt starf á öðrum starfsstöðvum HB Granda eða hjá dótturfélög- um. „Að svo stöddu er ekki hægt að verða við óskum 14 starfsmanna af þeim 92 sem sagt var upp,“ segir í tilkynningu. „Allir sem tóku fram að Norður- garður í Reykjavík kæmi til greina sem vinnustaður fá boð um vinnu þar, alls 29 starfsmenn. 28 starfs- menn fá boð um störf á Akranesi, hjá dótturfélögum HB Granda, í Norðanfiski og hjá Vigni G. jóns- syni en einnig við sameiginlega þjónustu, þ.e. umsjón tækja, lóða og fasteigna félagsins. 21 starfs- maður hyggst fara eða hefur þegar farið til annarra vinnuveitanda, eða í nám. Félagið hefur enn ekki fund- ið lausnir fyrir 14 starfsmenn sem hafa vinnu til 1. september næst- komandi en mun áfram aðstoða þá eftir megni við atvinnuleit innan félagsins sem utan,“ segir í frétt HB Granda. mm Tveir menn voru á miðvikudags- kvöld í liðinni viku staðnir að verki þar sem þeir höfðu landað laxi úr veiðistaðnum Efra-Rauðabergi ofar- lega í Kjarará án þess að hafa veiði- leyfi. Veiðistaður þessi er með þeim efstu sem veiðimenn í Kjarará reyna alla jafnan fyrir sér á, en þangað er ekki akfært og nokkur ganga neðan frá Gilsbakkaeyrum. Hvergi á land- inu gengur lax jafn langt frá sjó enda eru menn komnir langleiðina að Arnarvatnsheiði á þessum stað, eða svæði sem nefnist Kjör, sem Kjarará dregur nafn sitt af. Veiðimenn þess- ir höfðu hins vegar nálgast svæðið úr annarri átt, gengið frá Hólma- vatni niður með lambá sem rennur út í Kjarará. Höfðu þeir fyrst reynt að veiða í fossinum þar sem lambá fellur í ána en fært sig þá neðar og landað laxi úr Efra-Rauðabergi. Beittu þeir maðki sem auk annarra brota þeirra er stranglega bannað. Veiðiverði við ána var gert viðvart og náði hann að standa veiðiþjófana að verki og mynda þá við iðju sína. Veiðifélagsmenn líta málið mjög al- varlegum augum. Samkvæmt heimildum Skessu- horns gengu mennirnir við broti sínu en báru við háu verði veiði- leyfa. Veiði og veiðarfæri voru gerð upptæk og farið var með mennina til skýrslutöku á lögreglustöðina í Borgarnesi strax um kvöldið. Veiði- félagið Starir, leigutaki árinnar, mun leggja fram kæru þar sem farið verð- ur fram á háar fjárkröfur fyrir veiði- þjófnað. mm Veiðiþjófar gómaðir við laxveiði með aðstoð dróna Búið að tryggja 57 starfsmönnum önnur störf en 14 eru enn án úrræða Mennirnir beittu maðki og voru búnir að landa laxi úr Efra-Rauðabergi þegar til þeirra náðist. Ljósm. úr safni Skessuhorns og tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Reykholtskirkja Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju S K E S S U H O R N 2 01 7 - L jó sm . G Ó Messa sunnudaginn 23. júlí kl. 14 6. s. e. trinitatis Sóknarprestur

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.