Skessuhorn - 19.07.2017, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 19. júlí 20176
Veiðiþjófar í Laxá
HVALFJ.SV: Síðatliðinn
sunnudag stöðvuðu veiðiverðir
við laxá í leirársveit tvo menn
að ólöglegum veiðum í ánni.
Höfðu þeir gengið upp með
ánni frá þjóðveginum við ósa ár-
innar upp í laxfoss þar sem til
þeirra sást. Tóku þeir til fótanna
er þeir urðu veiðivarðanna varir
en voru hlaupnir uppi. lögregla
var kölluð til og tók af þeim tvær
veiðistangir og önnur veiðar-
færi sem þeir höfðu falið innan
klæða og í bakpoka. Ekki var um
neinn afla að ræða enda menn-
irnir gómaðir nánast um leið og
þeir hófu veiðar. lögreglan tók
skýrslu af mönnunum sem við-
urkenndu brot sitt. Sporðablik,
leigutakar árinnar, mun leggja
fram kæru. „Veiðivarsla mun
verða aukin við ána í framhaldi af
þessari uppákomu og hafa veiði-
verðir m.a. aðgang að dróna sem
mun verða notaður við eftirlitið
í sumar,“ segir í tilkynningu frá
Sporðabliki. -mm
Undirbúa
fullveldishátíð
LANDIÐ: Ald-
arafmæli sjálf-
stæðis og fullveld-
is íslands verður
fagnað á næsta ári
með fjölbreyttri
dagskrá um land allt. Hvanneyr-
ingurinn Ragnheiður jóna Ingi-
marsdóttir var fyrr á þessu ári
skipuð framkvæmdastjóri vegna
undirbúnings hátíðarhaldanna.
Þá hefur nefnd sem Alþingi skip-
aði til að annast undirbúning og
framkvæmd afmælishátíðarinnar
hafið störf. „Kallað verður eft-
ir frumkvæði og virkri þátttöku
landsmanna með tillögum að
verkefnum á hátíðardagskrána
sem standa mun allt árið 2018,“
segir Ragnheiður. Undirbún-
ingsnefndin leggur áherslu á að
ná til sem flestra landsmanna.
Til að ná því fram verður kallað
eftir fjölbreyttum og vönduðum
verkefnum á dagskrá afmælisárs-
ins. Meðal annars verður lögð
áhersla á samstarfsverkefni og
verkefni með nýstárlega nálgun á
viðfangsefnið, hvort sem litið er
til fortíðar, nútíðar eða framtíð-
ar. Auglýst verður eftir verkefn-
um í lok ágúst. Að sögn Ragn-
heiðar verður litið til verkefna
sem minnast aldarafmælis sjálf-
stæðis og fullveldis íslands og/
eða hafa skírskotun til þess þátt-
ar í sögu þjóðarinnar, verkefna
sem fjalla um og/eða byggja á
fullveldishugtakinu, hvort held-
ur er í fortíð, nútíð eða framtíð
og hvetja til samstarfs. Þá segir
hún að samstarf geti verið þvert
á greinar, milli landssvæða, ald-
urshópa, þjóðfélagshópa, landa,
ólíkra stofnana og félagasamtaka.
„Einnig köllum við eftir verkefn-
um sem höfða til barna og ungs
fólks og eru til þess fallin að auka
þekkingu og innsýn þeirra í sög-
una, samfélagið og fullveldishug-
takið. Við ætlum að höfða til fjöl-
breytts hóps fólks og hvetja til al-
mennrar þátttöku og draga fram
áhugaverða samlíkingu milli for-
tíðar og nútíðar í sögu lands og
þjóðar, s.s. í menntun, heilbrigð-
ismálum, náttúru, umhverfis-
málum, vísindum, stjórnmálum,
atvinnuþróun, samgöngum og í
daglegu lífi fólks.“ -mm
Monika á Merki-
gili endurútgefin
L A N D I Ð :
B ó k a ú t g á f -
an Sæmundur
hefur endur-
útgefið bókina
„Konan í daln-
um og dæt-
urnar sjö“ eft-
ir Guðmund G
Hagalín. Bók þessi kom út árið
1954 og var söguhetjan Moníka
Helgadóttir, þá 53 ára að aldri.
Hún var ekkja á sínu afskekkta
býli með sjö dætrum og einka-
syni. „í meðförum Hagalíns
verður Moníka á Merkigili ekki
aðeins barnmörg húsfreyja í sveit
heldur táknmynd íslensku sveita-
konunnar. Konunnar sem borið
hefur þjóð sína í móðurörmum
og umvafið hana með fórnfýsi
og kærleika öld eftir öld. Konan
í dalnum og dæturnar sjö kemur
nú út í nákvæmri eftirgerð fyrri
útgáfu með stuttum eftirmála
sem unninn er í samvinnu við
Skarphéðin, einkason Moníku,“
segir í tilkynningu frá Sæmundi.
Sex umferðar-
óhöpp í vikunni
VESTURLAND: Sex umferð-
eróhöpp komu inn á borð lög-
reglunnar á Vesturlandi sl. viku
en engin teljandi slys urðu á
fólki. Tilkynnt var um slasaðan
aðila sem hefði dottið af hest-
baki og var sá fluttur á sjúkra-
hús með höfuðáverka en er ekki
talinn alvarlega slasaður. Alls
voru 52 ökumenn teknir fyrir of
hraðan akstur í vikunni og voru
skráningarmerki fjarlægð af
einu ökutæki vegna vanrækslu
á tryggingum. Tveir ökumenn
eiga von á sekt vegna nagla-
dekkja sem enn voru undir bif-
reiðum þeirra. Fjórir ökumenn
voru teknir úr umferð grunaðir
um að vera undir áhrifum ávana
og fíkniefna og reyndist einn
þeirra einnig ölvaður. lögregla
lagði einnig hald á meint fíkni-
efni í neysluskömmtum í tveim-
ur þessara mála. -kgk
Alþjóðlegur sumarskóli hófst 8.
júlí síðastliðinn við Háskólann á
Bifröst. Stendur hann yfir í þrjár
viku. Þetta er í annað skipti sem
skóli þessi er haldinn en nú fjölg-
aði nemendum um 30% milli ára
þegar 26 þátttakendur mættu frá
15 löndum. í fyrsta skipti eru þátt-
takendur frá Brasilíu, Indlandi,
Kólumbíu og Bandaríkjunum. Tit-
ill sumarskólans er: „Sustainable
future: Creative leadership in the
21st Century.“ Fjallað verður um
áskoranir sem leiðtogar framtíðar-
innar munu að líkindum fást við,
bæði í atvinnulífinu og í persónu-
legu nærumhverfi.
Á dagskrá eru meðal annars
námstengdar ferðir í Hús sjávar-
klasans í Reykjavík, í Hellisheið-
arvirkjun og á Erpsstaði í Dölum.
Þátttakendur munu einnig fá tæki-
færi til að fara á hestbak, á sjós-
töng, í fjallgöngu, fuglaskoðun og
sitthvað fleira.
Alls eru sex gestakennarar sem
taka þátt í kennslu og aðstoða um-
sjónarkennarana, þau Einar Svans-
son og Dr. Auði H. Ingólfsdóttur.
Gestakennararnir koma frá Banda-
ríkjunum, Þýskalandi, Hollandi og
Austurríki. Verkefnastjóri alþjóð-
lega sumarskólans er Karl Eiríks-
son.
mm
Alþjóðlegur sumarskóli í gangi á Bifröst
Hér eru þátttakendur staddir á útsýnispallinum við Glanna.
Nú er hægt að nálgast upplýsingar
um hvaða efni er vinsælast í íslensk-
um bókasöfnum á vef landskerfis
bókasafna. Á vefsíðunni „Vinsælustu
titlarnir“ er m.a. hægt að draga út töl-
ur um vinsælustu bækurnar, vinsæl-
ustu tímaritin, hvaða kennslubók er
eftirsóttust í framhaldsskólum lands-
ins og hvað háskólaborgararnir taka
að láni. Einnig er hægt að skoða hvað
unga fólkið okkar er að lesa og hvort
munur sé á lestarmynstri höfuð-
b o r g a r b ú a
og Vestlend-
inga, svo
dæmi sé tek-
ið. Til þess
að nálgast
þessar upp-
lýsingar og
fleiri er far-
ið inn á vef-
síðuna Vin-
sælustu titl-
arnir á vef
landskerfis
bókasafna og
velja það sem
áhugi er á að skoða. Upplýsingarnar á
þessari vefsíðu byggja á upplýsingum
um útlán úr bókasafnskerfinu Gegni.
Skessuhorn sló til gaman inn sam-
eiginlegt svæði Vesturlands og Vest-
fjarða í Gegni og athugaði hvaða
titlar eru vinsælastir í útlánum allra
bókasafna í landshlutanum. Óhætt er
að segja að léttmetið eitt komist þar
á blað, þ.e. tímarit og myndablöð, og
þyngra efni fræðilegs eðlis er einfald-
lega ekki að finna á topp-10. listinn
er eftirfarandi:
1. Myndasögusyrpa = Syrpa. (1994)
1.575 útlán
2. Vikan 2016. (2016) 1.151 útlán
3. Hús og híbýli. (1972) 628 útlán
4. Gestgjafinn: Tímarit um mat. (1981)
485 útlán
5. Séð og heyrt 2016. (2016) 419 útlán
6. Vikan 2015. 391 útlán
7. Myndasögusyrpa 2015 = Syrpa 2015.
382 útlán
8. Sagan öll. (2007) 356 útlán
9. Man. (2013) 339 útlán
10. Myndasögusyrpa 2016 = Syrpa
2016.
Dimma vinsælust
Þegar leitin er einskorðuð við „full-
orðinsefni,“ voru eftirfarandi bæk-
ur vinsælastar í útlánum vestlensku
safnanna árið 2016:
1. Dimma / Ragnar jónasson. (2015)
219
2. Meira blóð / jo Nesbø (2016)
207
3. Sogið / Yrsa Sigurðardóttir.
(2015) 198
4. Stóri skjálfti / Auður jónsdóttir.
(2015) 197
5. Þýska húsið / Arnaldur Indriða-
son. (2015) 193
6. Dauðaslóðin / Sara Blædel (2016)
180
7. Brynhildur Georgía Björnsson /
Ragnhildur Thorlacius. (2015) 163
8. Konan í blokkinni / jónína leós-
dóttir. (2015) 162
9. Nautið / Stefán Máni. (2015)
162
10. Týnd í Paradís: bók eitt / eftir
Mikael Torfason. (2015)
mm
Myndasögur og glanstímarit
vinsælast í útlánum bókasafna
Syrpa er vinsælasta
efni bókasafna á
Vesturlandi og Vest-
fjörðum.