Skessuhorn - 19.07.2017, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 19. júlí 201720
Fagurblár Plymouth Concord, ár-
gerð 1951, hefur sést allnokkr-
um sinnum á ferðinni í Reykholti
og Borgarfirði í sumar. Bíllinn er í
eigu Tryggva Konráðssonar í Reyk-
holti, sem hefur haft veg og vanda
að uppgerð hans, eins og reyndar
fleiri fornbíla. „Ég fann þennan bíl
á Ólafsfirði fyrir tveimur árum síð-
an. Fyrri eigendur höfðu gefist upp
á að gera hann upp,“ segir Tryggvi
í samtali við Skessuhorn. Síðan þá
hefur hann unnið öllum stundum
að uppgerð hans. „í þetta fer frí-
tíminn,“ segir Tryggvi og hlær við.
„Það er alveg eins gott að gera upp
bíla og að fara á golfvöllinn eða í
hesthúsið. Ég sé engan mun á þessu
og öðrum hobbíum. Mitt hobbí er
að vera inni í bílskúr að dunda,“
bætir hann við.
Krómið tekið með
tannbursta
„Þetta er orginal sex sílindra flat-
heddari með sex volta rafkerfi. Þeg-
ar ég fæ bílinn var búið að klára inn-
réttinguna en að öðru leyti þurfti
að taka hann allan í gegn. Hann
var gangfær, eða svoleiðis, en það
var bara allt rifið. Ég fór reyndar
ekkert í vélina en það var allt ann-
að tekið í gegn. Hann var strípaður
bara niður þangað til maður maður
sá ekkert af bílnum,“ segir Tryggvi.
„Síðan er bara að byrja einhvers
staðar. Þessi bíll var í raun og veru
bara í kössum þegar ég keypti hann,
krómið og fleira var bara í körum
og kössum þegar við sóttum bílinn
á Ólafsfjörð. Ég varð að byrja á að
reyna að átta mig á því hvar hlutirn-
ir áttu að vera. Síðan er bara byrjað
á að sjóða í allt ryð og máta, athuga
hvort hlutirnir passa. Þetta er auð-
veldara að gera þetta þegar maður
fær að rífa bílinn í sundur líka, þá
veit maður allavega hvar hlutirnir
eiga að vera,“ segir hann og bros-
ir. „Krómið var síðan tekið í gegn
með tannbursta, páskahelgin fór í
að tannbursta og pússa króm ásamt
dóttur minni Guðrúnu Helgu sem
hjálpaði til við uppgerðina,“segir
hann og hlær við. „Það þarf að hafa
fyrir því að gera upp gamlan bíl.“
P fyrir Snæfells- og
Hnappadalssýslu
Númer bílsins er P-23, en P var
bókstafur Snæfells- og Hnappa-
dalssýslu hér áður fyrr. Tryggvi er
úr Ólafsvík og kappkostar að fá P
númer á alla sína fornbíla. „Þess
vegna held ég mig við P númer-
in. Það getur verið erfitt að fá þau
númer sem maður vill, mörg eru
upptekin en maður reynir að grípa
í þessi sem maður finnur. Mér þótti
heppilegra að hafa tveggja tölu-
stafa númer á þessum bíl og greip
því P-23 fyrst það var laust,“ seg-
ir Tryggvi. Geta má þess að aðr-
ir fornbílar Tryggva bera meðal
annars númerin P-33, P-44, P-55,
P-88, P-126, P-127, P-128 og
P-1515.
Fínn í snattið
Tryggvi kveðst ánægður hvernig
til tókst með Concordinn og hefur
fengið nokkra athygli þar sem hann
hefur ekið honum. Hann sýndi bíl-
inn meðal annars á landsmóti á
Selfossi og á sýningu Fornbílafj-
elags Borgarfjarðar í Brákarey á
17. júní. „Hann kemur bara virki-
lega vel út og þessi litur samsvar-
ar sér mjög vel við krómið. Það
er ljúft að keyra hann, sérstaklega
miðað við aldur,“ segir Tryggvi og
kveðst ætla að reyna að aka honum
sem mest í sumar. „Ég er alltaf til-
búinn á rúntinn. Ég skrepp á hon-
um úr vinnunni, nota hann í snatt-
ið hérna í Reykholti, heim í hádeg-
ismat og svoleiðis,“ segir Tryggvi
léttur í bragði.
kgk/ Ljósm. Guðlaugur Óskarsson.
„Það þarf að hafa fyrir því að gera upp gamlan bíl“
Tryggvi og Guðlaugur Óskarsson ljósmyndari brugðu sér á rúntinn um Reykholt á dögunum. Bíllinn speglast hér í Geirstjörn.
Plymouth og Snorri, báðir gamlir en þó ekki jafnaldrar.
Hestar Guðlaugs í Reykholti og Plymouth Concord Tryggva. Fararskjótar í fortíð og nútíð.