Skessuhorn - 19.07.2017, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 19. júlí 201724
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Leiguakstur á Akranesi sem og á öllu Vesturlandi
Ari Grétar Björnsson
Sími: 864-2100
Email : taxar@simnet.is
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR
GARÐAÚÐUN REYNIS SIG
SÍMI: 899-0304
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Nú er ljóst að HB Grandi er að
flytja bolfiskvinnslu sína frá Akra-
nesi og þá er ekkert annað í stöð-
unni en að fá úthlutað byggðakvóta
fyir Akranes. Til að Akranes haldi
reisn sem útgerðarbær og að Ski-
paskagi standi undir nafni þá er það
skilyrðislaust verkefni stjórnmála-
manna sem tengjast Akranesi að sjá
til þess að úthlutað verði byggða-
kvóta hingað á Skagann. Annars er
það grátlegt að verða vitni að því að
það fólk sem staðið hefur framar-
lega í að fá HB Granda til að halda
áfram vinnslu á Akranesi hefur eng-
an áhuga á að gagnrýna rót vand-
ans sem er kvótakerfið sjálft. Fisk-
veiðikerfi sem byggt er upp eins og
það er í dag er ósanngjarnt og býð-
ur uppá að sameign þjóðarinnar er
að færast á færri hendur og auð-
söfnun fyrir þá sem eru handhafar
kvótans.
Það yrði grátlegt að að láta öll
þessi mannvirki standa auð sem
byggð hafa verið til fiskvinnslu og
allur mannauð-
ur er fyrir hendi.
Að fá byggða-
kvóta á Skagann
er skylduverk
fyrir fyrir þingmenn og bæjarfull-
trúa á Akranesi. Hagstæðast væri að
breytt yrði um fyrirkomulag fisk-
veiða á íslandi þannig að ekki yrði
hægt að framselja kvóta og kvótinn
verði bundinn við byggðarlög.
Guðjón Viðar Guðjónsson
Byggðakvóta á Akranes
Pennagrein
Pennagrein
Ég er búinn að fá nóg af ástandi
sundlaugar í Grundarfirði.
Sundlaugargestum, innlendum
jafnt sem erlendum, er gert að fara í
kaldar sturtur þegar þeir heimsækja
sundlaugina og vatn í heitu pottun-
um er iðulega kalt. í mörg ár hef-
ur þetta viðgengist og það eru tíðar
bilanir í vatnshitakerfinu sem veld-
ur. Kvartanir okkar og athugasemd-
ir nægja hvergi til að menn geri al-
mennilega við ýmsa hluti þarna.
Þetta er spurning um að taka vel á
móti fólki hér í byggðarlaginu og
þá er almenningssundlaug mikið at-
riði og að hún sé í góðu lagi, enda er
tjaldsvæði, sem er mikið notað, við
hliðina.
Ég varð fyrir sérstakri reynslu síð-
asta sunnudag er ég og kona mín
ætluðum að fara í sundlaugina okkar.
Við höfðum farið þarna fyrir nokkr-
um dögum, en snerum við, er okk-
ur var tjáð, að kalt vatn væri í hin-
um heitu pottum. Nú átti að reyna
aftur. Ég tók eftir því, að tvö plöst-
uð spjöld á vegg utan við útidyrnar
voru lituð að innan af mold og lítt
læsileg. Merkimiðar innan á útihurð
voru skakkir. Dyrahúnn á hurðinni
inn í karlaklefann var að detta af,
allur laus í skrúfunum. Ég tók strax
eftir því að karlmennirnir sem voru
að klæða sig voru talsvert æstir og
karlmaður var í sturtuklefanum, all-
ur í sápu og greinilegt var að vatnið
var ískalt og hann í hreinustu vand-
ræðum. Ég gekk til afgreiðslustúlku
sem sagði mér að vatnið væri kalt og
hún hafði gleymt að segja mér frá
því. Ég og kona mín gengum út aft-
ur, en hún sagði að blóð væri á gólf-
inu og engin gólfmotta, eins og væri
einnig í karlaklefanum.
Er vatnsyfirborð sundlaugarinnar
látið vera svo lágt til að koma í veg
fyrir að yfirbreiðsludúkurinn fjúki
upp eftir lokunartíma? Þá er vatn í
grunna endanum orðið full lítið til
að synda í.
Maður spyr, hvort allt sé í lagi á
þessum bæ? Á að bjóða fólki upp
á þetta endalaust og þetta er ekki í
fyrsta skipti sem ýmislegt er í ólagi
í sundlauginni. Ég starfa sjálfur í
að höndla með ferðafólk á sumr-
in á metnaðarfullum stöðum og ég
skammast mín fyrir að vera vitni af
þessu hér í bæ.
í sundlauginni hér starfa tvær kon-
ur og enginn karlmaður. Er það lög-
legt? Er leyfilegt að starfsfólk horfi
endalaust í snjallsíma sinn? Enginn
hárblásari er í kvennaklefa og konur
þurfa að fara fram
í afgreiðslu til að
fá að nota hann. Ég vil ekki heyra
afsakanir um að það sé hætta á að
honum verði stolið, er hann er stað-
settur inn í sundlaugarklefa.
Skattgreiðendur borga yfirmönn-
um sveitarfélagsins kaup til að halda
þessum hlutum í lagi og gæta þess
að viðmót og fleira sem móta upp-
lifanir gesta verði í lagi. Ég er eng-
inn eftirlitsaðili hér í bæ, en það
fólk sem ekki getur staðið sig, verk-
takar og fleira, verður að víkja. Nú
eru allir yfirmenn bæjarskrifstofu
og áhaldahúss í sumarfríi sem gerir
hlutina enn verri.
Svo má bæta því við, að ekkert
vatnsnudd er í heita pottinum. Fyr-
ir einu og hálfu ári voru pottarnir
tveir gerðir upp og ákveðið að rífa
vatnsnuddkerfið frá og nú í vor voru
tveir nýir pottar settir í stað hinna
gömlu, en ekki kom vatnsnuddið
aftur. Fjöldamargir Grundfirðing-
ar keyra inn í Stykkishólm í þessa
flottu sundlaug með metnaðarfullu
þjónustustigi.
Bestu kveðjur.
Gunnar Njálsson, Grundarfirði.
Ýmsu er ábótavant í
sundlauginni okkar
Pennagrein
Á árinu 2015 var boðað að gerð-
ar yrðu minniháttar endurbætur á
Kveldúlfsgötu í Borgarnesi og átti
þeim framkvæmdum að vera lok-
ið síðla þess árs, þ.e. 2015. Eins
og alkunna er gekk það ekki eft-
ir. Eftir mikinn gröft og rask á ár-
unum 2015 og 2016 var hætt við
framkvæmdir í miðjum klíðum og
ákveðið að taka götuna alla í gegn,
en þar með viðurkenndi sveitar-
stjórn Borgarbyggðar, það sem
íbúar við götuna höfðu vitað árið
2015, að jarðvegsskipti væru nauð-
synleg og lagnir líklega ónýtar og
þörf á alsherjar endurnýjun.
Nú þegar komið er fram yfir
mitt árið 2017 er gatan enn óklár
og fyrirséð að langt er í land með
að framkvæmdum ljúki en bjart-
sýnir menn vona þó að verkið klár-
ist á þessu ári, en það er óvíst.
íbúar við Kveldúlfsgötuna hafa
því búið við rask og hálf ófæra
götu frá síðari hluta ársins 2015 og
sjá ekki enn fyrir endann á þeim
ósköpum.
Nú boðar sveitarstjórn Borgar-
byggðar breytingar á aðalskipu-
lagi Kveldúlfsgötu 29 þannig að
það sé í samræmi við deiliskipulag
lóðarinnar. Eðlilegt er að breyta
deiliskipulaginu ef þarf þegar það
er ekki í samræmi við aðalskipulag
en eins og oft áður þá hefur sveit-
arstjórnin endaskipti á hlutunum
þegar kemur að skipulagsmálum.
Hitt er að sú stóra landfylling og
sú uppbygging sem þar á að verða
mun leiða til gríðarlegra þunga-
flutninga á stórgrýti og öðru fyll-
ingarefni um Kveldúlfsgötuna og
þar á eftir byggingarefni og þ.h.
við uppbygginu á þeim íbúðum
sem þar eiga að vera. Væntanlega
verður nýja fína gatan farin að láta
verulega á sjá þegar þeim flutning-
um lýkur.
En við, íbúar við Kveldúlfs-
götu, eigum eftir að búa við stór-
fellda þungaflutninga um götuna í
tvö, þrjú ár til viðbótar, þ.e. að búa
við rask og þungaflutninga í 5-6
ár samfellt, rask sem hefur haft og
mun hafa áhrif til hins verra á bú-
setuskilyrði í götunni.
Það er nokkuð ljóst að sú breyt-
ing sem unnið er að á aðalskipulagi
til þess að það passi við deiliskipu-
lagið er ekki til þess að koma fyrir
18 íbúðum.
landfylling sú sem boðuð er er
áætluð 5.600 m2. lóðin sem út-
hluta á er sögð 3.477 m2.
Miðað við nýtingarhlutfall 0,5,
eins og aðalskipulag segir til um,
leyfir íbúðabyggð uppá 1.738 m2.
Miðað við að byggja eigi 18 íbúð-
ir þá mega þær vera tæplega 100
m2 hver sem ætti að vera meira en
fullnægjandi. Sé nýtingahlutfall-
ið sett í 1,0 eins og boðað er með
breytingum á aðalskipulagi þá get-
ur íbúðamagnið verið 3.477m2 og
hver af boðuðum 18 íbúðum því
verið tæplega 200 m2, eða hægt
verður að fjölga íbúðum um helm-
ing.
líklega er þessi breyting fyrst
og fremst til þess að gera mögu-
lega mun meiri uppbyggingu á
Kveldúlfsgötu 29, til hagsbóta fyr-
ir væntan lóðarhafa, en á kostn-
að búsetuskilyrða núverandi íbúa
götunar. En allt þetta mun leiða til
þyngri og hættulegri umferðar um
Kveldúlfsgötuna en nú er, gríðar-
legra þungaflutninga í upphafi, en
síðan aukna umferð vegna mikillar
fjölgunar íbúa á svæðinu.
Borgarnesi, 17. júlí 2017
Guðsteinn Einarsson,
Kveldúlfsgötu 13.
Kveldúlfsgata –
ástand og horfur!