Skessuhorn


Skessuhorn - 20.09.2017, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 20.09.2017, Blaðsíða 1
Sævar Freyr Þráinsson bæjar- stjóri á Akranesi hefur fyrir hönd Akraneskaupstaðar ritað Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur landbún- aðar- og sjávarútvegsráðherra bréf þar sem óskað er eftir að byggða- kvóta verði úthlutað á Akranes. Vísað er til sérstöðu bæjarfélagsins og þeirrar hefðar sem þar er fyr- ir útgerð og vinnslu. Á síðasta ári var landaður bolfiskur á Akranesi einungis 4,8% af því sem hann var árið 2005. Byggðakvóta sem feng- ist yrði úthlutað til smærri útgerð- araðila sem gert yrði skylt að landa á markaði og til vinnslu á Akranesi. Sjá nánar bls. 2. FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 38. tbl. 20. árg. 20. september 2017 - kr. 750 í lausasölu Loratadin LYFIS - fæst án lyfseðils Yfir ��� tilboð Allir viðskiptavinir Arion banka eru í Einkaklúbbnum Náðu í appið og nýttu þér tilboðin Til alþingismanna Tökum upp US Dollar Pétur Geirsson SK ES SU H O R N 2 01 7 Glæsilegur dömufatnaður Verðum í Félagsbæ Borgarnesi föstudaginn 22. september frá 12-18 Vertu velkomin Á sunnudaginn var réttað í Þver- árrétt í Eyja- og Miklaholtshreppi. Réttarhald gekk vel enda góð að- stoð sem bændum bauðst nú sem fyrr. Meðal annarra var forseti Ís- lands, Guðni Th Jóhannesson, á ferð og aðstoðaði hann réttarstjór- ann, Halldór Jónsson á Þverá, við að draga rígvæna dilka í réttinni. Meðfylgjandi mynd tók Iðunn Silja Svansdóttir í réttinni. mm Forsetinn í fjárdrætti Sótt um byggðakvóta á Akranes Útgerð frá Akranesi er í sögulegu lágmarki um þessar mundir. Þeirri þróun vilja heimamenn snúa við hið fyrsta. Ljósm. gbh. Mikið róstur var á vettvangi lands- málanna undir vikulokin. Seint á fimmtudagskvöld ákvað stjórn Bjartr- ar framtíðar að slíta ríkisstjórnarsam- starfinu við Viðreisn og Sjálfstæðis- flokkinn. Ástæðuna sagði flokkurinn alvarlegan trúnaðarbrest innan ríkis- stjórnarinnar. Að tveir ráðherrar rík- isstjórnarinnar, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Sigríður And- ersen dómsmálaráðherra, hafi leynt samráðherra sína og samflokka í rík- isstjórn því að faðir forsætisráðherra, Benedikt Sveinsson, hafi skrifað með- mælabréf vegna umsóknar dæmds kynferðisbrotamanns um uppreist æru. Það gat Björt framtíð ekki sætt sig við og því ákveðið einhliða að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu. Viðbrögð Viðreisnar voru á svipaða lund. Dag- inn eftir tilkynnti Bjarni Benedikts- son forsætisráðherra að stjórnin væri fallin og að boðað yrði til kosninga við fyrsta hentugleika. Guðni Th Jóhannesson forseti Ís- lands tilkynnti svo á mánudaginn, í framhaldi viðræðna hans við forystu- fólk flokka sem sæti eiga á þingi, að starfsstjórn fráfarandi ríkisstjórnar muni sitja fram að kosningum til Al- þingis. Þær hafi verið ákveðnar laug- ardaginn 28. október, 354 dögum eft- ir þær síðustu. Þing mun starfa fram að kjördegi og verður þá rofið. Fram kom á blaðamannafundi sem forset- inn hélt að ekki hefði verið talinn grundvöllur fyrir myndun minni- hlutastjórnar eða stjórn sem varin yrði vantrausti. Kosningabarátta til Alþingis er því hafin. Fastlega er búist við að þeir flokkar sem buðu fram lista fyrir síð- ustu kosningar muni bjóða fram að nýju og jafnvel að einhverjir bætist við. Þó er tíminn fram að kosningum afar naumur og því óvíst hvort litlir flokkar nái í tæka tíð að vígbúast og bjóða fram. Talið er ólíklegt að fram- boðslistar frá síðustu kosningum taki stórfelldum breytingum þótt dæmi séu um að þingmenn hyggist ekki gefa kost á sér að nýju. Í þeirra röð- um verður m.a. Birgitta Jónsdóttir kafteinn Pírata, Theódóra Þorsteins- dóttir Bjartri framtíð og Eygló Harð- ardóttir Framsóknarflokki. Þá munu samkvæmt heimildum Skessuhorns allir sitjandi þingmenn Norðvestur- kjördæmis gefa kost á sér til endur- kjörs. mm Stjórnin fallin - kosið 28. október Silicor Materials Icleland ehf. hef- ur með formlegum hætti tilkynnt Faxaflóahöfnum að fyrirtækið hafi fallið frá áformum um byggingu sólarkísilverksmiðju í Katanes- landi við Grundartanga í Hvalfjarð- arsveit. Tilkynningin felur í sér að lóðarsamningur, lóðarleigusamn- ingur og hafnarsamningur við Faxa- flóahafnir, sem upphaflega voru undirritaðir í apríl 2015, taka ekki gildi. „Öll réttindi og allar skyldur beggja aðila á grundvelli samning- anna eða vegna þeirra falla niður,“ segir í bókun stjórnar Faxaflóahafna sem tók bréfið til afgreiðslu á fundi sínum á mánudaginn. Þar var hafn- arstjóra falið að tilkynna niðurstöð- una til atvinnuvegaráðuneytisins. Ástæða þess að bandaríska fyr- irtækið er hætt við áform sín um byggingu sólarkísilverksmiðju á Grundartanga er sú að ekki tókst að ljúka fjármögnun verkefnisins. Búið var af þeim sökum að hægja á þróunarvinnu við verkefnið og seinka byggingaráformum. Verksmiðja Silicor Materials átti samkvæmt áætlunum fyrirtækisins að skapa 450 störf við framleiðslu kísils í sólarrafhlöður. Að sögn Gísla Gíslasonar hafnarstjóra hafa Faxa- flóahafnir ekki lagt í kostnað vegna lóðarinnar í Kataneslandi annan en snýr að skipulagsmálum og forn- leifarannsóknum. Sú vinna mun hins vegar nýtast komi til annarrar nýtingar á lóðinni þótt síðar verði. mm Fallið frá byggingu sólarkísil- verksmiðju á Grundartanga Silicor Materials átti frátekna 22 ha lóð í Kataneslandi við Grundartanga.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.