Skessuhorn - 20.09.2017, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 201718
Það var hátíðarstemning í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi þegar blásið var til veislu í
opnu húsi í tilefni af 40 ára afmæli
skólans laugardaginn 16. septem-
ber. Húsið opnaði klukkan 14 en
formleg dagskrá, sem hófst á stutt-
um hátíðarræðum en lauk með
stórtónleikum á sal skólans, stóð
frá kl. 14.30 til 18.30 auk þess sem
myndir, útskriftarbækur og fleira
úr starfi skólans í fjörutíu ár var til
sýnis víða í húsakynnum skólans.
Ávarp fluttu Ágústa Elín Ingþórs-
dóttir skólameistari FVA, Sævar
Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akra-
nesi, Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra, Lilja S. Ólafsdótt-
ir, aðstoðarskólameistari Mennta-
skóla Borgarfjarðar sem var í ein-
um fyrsta útskriftarhópi skólans
og Daníel Þór Heimisson háskóla-
nemi sem útskrifaðist í desember
2015. Veislustjóri var Halli Melló,
en hann eins og flestir þeir sem
stigu á svið, er fyrrum nemendi
skólans. Í tilefni afmælisins var
gefið út veglegt afmælisrit. Útgáfa
og ritstjórn var í höndum nemenda
í áfanganum Hagnýt fjölmiðlun
sem kenndur er við skólann. For-
síðu blaðsins prýðir verkið „Áfram
veginn“ sem Bjarni Þór Bjarnason
málaði og færði skólanum að gjöf í
tilefni afmælisins.
FVA mikilvægur sam-
félaginu á Vesturlandi
Skólameistari setti dagskrána og
stiklaði á stóru um sögu skólans,
en til hans var upphaflega stofnað
árið 1977 þegar Gagnfræðiskólinn
á Akranesi og Iðnskólinn á Akra-
nesi sameinuðust í Fjölbrauta-
skólann á Akranesi. 1987 gerðu
32 sveitarfélög á Vesturlandi og
menntamálaráðneytið samning
um rekstur skólans undir því nafni
sem hann ber í dag. Í dag standa
sex sveitarfélög á Vesturlandi að
skólanum. Það eru Akraneskaup-
staður, Borgarbyggð, Dalabyggð,
Eyja- og Miklaholtshreppur og
Hvalfjarðarsveit. Alla tíð hefur
áhersla verið lögð á bæði bók- og
verknám í skólanum. Ágústa sagði
stofnun Fjölbrautaskóla Vestur-
lands hafa markað tímamót í skóla-
málum á Vesturlandi þar sem hann
hafi stórbætt aðstöðu Vestlendinga
til þess að afla sér menntunar og
sagði hann enn gegna mikilvægu
hlutverki í samfélaginu með því
að auki tækifæri til náms í lands-
hlutanum. Í ræðu sinni fjallaði
Ágústa jafnframt um gildi skólans
og stefnu og sameiginlega ábyrgð
nemenda og starfsfólks á því að
skólinn þjóni markmiðum sínum.
Hún gat þess að reynslan sýndi að
Fjörutíu ára afmælishátíð
Fjölbrautaskóla Vesturlands
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Fjóla Ásgeirsdóttir og
Rakel Óskarsdóttir.
Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi,
Elsa Lára Arnardóttir, alþingingismaður og Bryndís Böðvars-
dóttir kennari.
Karl Hallgrímsson og Gyða Bentsdóttir.Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, afhenti Ágústu Elínu
Ingþórsdóttur skólameistara fimmhundruð þúsund króna gjöf frá
Bæjarstjórn Akraness til endurnýjunar á tölvukosti í skólanum.
Þóra Grímsdóttir og Jens B. Baldursson.
Hljómsveitin Abbababb sem stofnuð var í FVA árið 1991 skemmti áhorfendum.
Fiðlusveitin Slitnir Strengir spilaði í afmælinu. Hún er hér ásamt Ragnari
Skúlasyni stjórnanda og Ylfu Flosadóttur.
Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar á Akranesi, Sævar Freyr Þráinsson
bæjarstjóri, Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs, Margrét Birgisdóttir og Hafdís
Hannesardóttir.
Þórir Ólafsson, skólameistari FVA 1985 - 2001, og Ágústa Elín Ingþórsdóttir nú-
verandi skólameistari.
Fjölmennt var í afmælishófinu.